Ekki marktækur munur á Viðreisn og Samfylkingu

Viðreisn mælist með 19,4 prósent stuðning í nýrri könnun Maskínu. Það er litlu minna en Samfylking, sem mælist með 20,9 prósent, og er ekki marktækur munur á flokkunum tveimur. Framsókn bætir við sig einn stjórnar­flokka á milli kannanna.

Samfylkingin er áfram stærsti flokkur landsins í nýrri fylgis­könnun Maskínu, sem birt er á Vísi. Viðreisn nálgast hins vegar flokkinn hratt og mælist nú með 19,4 prósenta fylgi, saman­borið við 20,9 prósent Samfylkingar. Yrðu þetta niður­stöður kosninga fengju þessir tveir flokkar 31 þingsæti og þyrfti því aðeins einn þingmann til viðbótar til að geta myndað tveggja flokka meirihluta­stjórn. 

UppFylgi Fram­sóknar hreyf­ist upp á við á milli kann­anna.

Framsóknar­flokkurinn rís aðeins á milli kannana og mælist nú með 7,5 prósent fylgi. Það er fyrsta sinn í langan tíma sem fylgi flokksins eykst í könnunum Maskínu, en formaður Fram­sóknar, Sigurður Ingi Jóhannsson, vakti mikla athygli með ræðu um útlendingamál í fyrstu kappræðum formanna flokkanna sem fram fóru í sjónvarpssal RÚV. Könnunin var framkvæmd dagana 1.–6. nóvember og hófst hún því daginn eftir kapp­ræðurnar. 

Sjálfstæðis­flokkur situr sem fyrr í …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár