Berlínarblúsar

„Það eru fínir sprettir í þessari bók Vals en bæði hann og Salka þurfa grimman ritstjóra,“ skrifar Páll Baldvin Baldvinsson.

Valur Gunnarsson
Valur Gunn­ars­son
Bók

Berlínar­bjarmar

Höfundur Valur Gunnarsson
Salka
480 blaðsíður
Gefðu umsögn

Valur Gunnarsson sagn­fræðingur hefur um árabil verið afkasta­mikill greina- og bóka­höfundur, jaðar­maður sem fylgir nútíma­legum reportage-stíl, oft með sjálfan sig í miðju, á staðnum, hér og nú. Hann hefur því verið merki­legur angi af nútímalegri umfjöllun um samtímann með sann­verðuga og víðtæka þekkingu af evrópskri sögu. Það er enginn heimóttar­skapur í hans skrifum. Við eigum fáa slíka, tímarit og blöð hafa ekki efni á slíkum vinnu­brögðum, helst eru það sjónvarps­stöðvarnar sem hafa leyft sér þannig munað þótt ódýrara sé að kaupa slíkt efni inn frá útlöndum. Við sjáum líka tilhneiginguna á erlendum stöðvum sem sinna frétta­þjónustu að marka sér stöðu með þess háttar efni.

Valur býður nú upp á þrennu: fyrsti parturinn stendur honum næst, þroska­sögu sína rekur hann um leið og okkur er gerð grein fyrir þýskum uppruna hans og sögu langömmu hans sem komst til Íslands og stofnaði þar fjöl­skyldu. Í annan stað rekur Valur sögu Berlínar …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár