Halla boðar Bjarna til sín í dag – Forsetinn veitir ekki viðtöl

Forseti Íslands hefur boðað Bjarna Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra á fund sinn síð­degis. Þetta er í kjöl­far fund­ar­halda for­seta í gær með for­mönnum allra flokka á þingi. Bjarni hefur sagst ætla að biðj­ast lausnar fyrir sig og rík­is­stjórn­ina.

Halla boðar Bjarna til sín í dag – Forsetinn veitir ekki viðtöl
Bjarni mætir aftur til Höllu klukkan 16 í dag. Mynd: Golli

Forseti Íslands, Halla Tóm­as­dóttir, mun eiga fund með Bjarna Bene­dikts­syni for­sæt­is­ráð­herra á Bessa­stöðum klukkan 16 í dag. 

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá skrif­stofu for­seta Íslands. Þar segir að for­seti muni ávarpa full­trúa fjöl­miðla að fund­inum loknum. Í svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar til emb­ætt­is­ins kemur fram að for­seti muni hins vegar ekki veita við­töl í dag. 

Bjarni sagð­ist í gær ætla að biðj­ast lausnar fyrir sig og rík­is­stjórn­ina. Sam­starfs­flokk­arn­ir eru ekki til­bún­ir í áfram­hald­andi sam­starf fram að kosn­ing­um.

Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna og inn­við­a­ráð­herra, sagði í Silfrinu í gær að þing­flokkur sinn hefði tekið ákvörðun um að vinna ekki í rík­is­stjórn þar sem Bjarni væri for­sæt­is­ráð­herra. Óljóst er hvort það þýði að ráð­herrar flokks­ins vilji ekki sitja í starfs­stjórn en Svandís velti því upp í dag að Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fjár­mála­ráð­herra, tæki …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stjórnarslit 2024

Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.
Ekki lengur hægt að gera atlögu að Bjarna fyrir kosningar
GreiningStjórnarslit 2024

Ekki lengur hægt að gera atlögu að Bjarna fyrir kosn­ingar

Síðan Bjarni Bene­dikts­son tók við for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknum hefur því ítrekað verið velt upp hvort tími hans sé lið­inn. Enn sem komið er hefur sand­ur­inn í hans póli­tíska stund­ar­glasi ekki runnið út. Hann virð­ist ná að snúa því aftur og aftur rétt áður en síð­ustu sand­kornin detta. Með því að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu styrkti Bjarni stöðu sína og kom í veg fyrir inn­an­búð­ar­at­lögu gegn sér fyrir kosn­ingar, segir stjórn­mála­fræð­ingur.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár