Kallar stjórnarslit Bjarna „stórukalla dramapólitík“

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir nóvember óheppilegan mánuð fyrir kosningar. Hann bendir á að áður hafi þótt of seint að kjósa í október.

„Þetta er svona stórukalla drama­pólitík,“ sagði Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, um ákvörðun Bjarna Benedikts­sonar forsætis­ráðherra að slíta ríkis­stjórnar­samstarfinu. Þetta sagði hann í Pressu á Heimildinni í dag. Kannski hafi Bjarni viljað taka stjórnina eftir ályktun Vinstri grænna um að flýta kosningum til vorsins. „Svandís svona stillti honum upp við vegg varðandi vorkosningar, þá kannski fannst honum hann þyrfti að taka stjórnina aftur.“

Björn Leví ræddi stjórnar­slitin í Pressu ásamt Lilju Dögg Alfreðs­dóttur, vara­formanni Fram­sóknar og ráðherra, og Orra Páli Jóhanns­syni, þing­flokks­formanni Vinstri grænna. Þáttinn má sjá í heild sinni hér.

Björn Leví hefur lengi kallað eftir að stjórnar­flokkarnir slíti samstarfinu og boði til kosninga. En nóvember er óheppilegur tími fyrir kosningar. 

„Tvímæla­laust,“ sagði hann og benti á að árið 2021 þótti of seint að kjósa í október en nú er stefnt að kosningum í lok nóvember.

„Kosningunum 2021 var flýtt um mánuð. Þær áttu að vera í október en var flýtt fram í september. Út af veðravá og ýmislegt svoleiðis var notað sem rök fyrir því að færa kosningarnar mánuði fyrr. Nú erum við að koma mánuði seinna í miklu erfiðara ástand. Mér finnst þetta óábyrgt, eins og hefur verið notað hérna, að vera með kosningar á þessum tíma en lýðræðið er lýðræði þegar allt kemur til alls og skiptir miklu meira máli. Maður verður bara að sætta sig við það.“

Kosningar með svona skömmum fyrirvari geri líka þeim sem hafa áhuga á þing­framboði erfitt fyrir. „Að boða til kosninga með svona skömmum fyrirvara í rauninni útilokar ný framboð,“ sagði hann. Píratar stefna á prófkjör til að velja fólk á lista á meðan flestir aðrir flokkar stefna á uppstillingu.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár