Bjarni kallar umhugsun Höllu um þingrof formsatriði

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra segist ekki hafa átt frekari samtöl við leiðtoga hinna stjórnar­flokkanna. Hann er mættur á Bessa­staði til að biðja formlega um heimild til að rjúfa þing. Á tröppum Bessa­staða talaði hann um þann umhugsunar­frest sem Halla Tómasdóttir hefur ákveðið að taka forms­atriði.

„Við höfum ekki átt neinn fund frekar en ég geri svona frekar ráð fyrir því,“ sagði Bjarni við fjölmiðla á tröppum Bessa­staða. „Það sem við erum í raun og veru að gera er að stytta kjör­tímabilið hressilega.“

Bjarni sagðist þegar hafa talað við Höllu Tómasdóttur forseta um þingrofs­beiðnina. „Hún hefur tjáð mér að hún vilji meta stöðuna. Ég geri ekkert athuga­semdir við það,“ sagði Bjarni.

Í huga Bjarna er það samt forms­atriði. „Það getur hins vegar haft talsverð áhrif hvort þessum forms­atriðum líkur á morgun eða miðvikudaginn, og getur haft áhrif á það hvort kosið verði 23. eða 30. nóvember.“ 

Hann á ekki von á öðru en að Halla fallist á þingrof. 

„Já ég tel öll rök hníga að því og það væri afar óvenjulegt ef það myndi ekki ganga eftir,“ sagði hann áður en hann gekk á fund forseta. 

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Má ekki segja sama og í tölvuspilunum : Game over. - Búið spil
    0
  • SFG
    Sveinn Flóki Guðmundsson skrifaði
    Það er ekki hægt að búa við það við framkvæmd almennra kosninga í landinu að það ríki almennur vafi um hvort rétt hafi verið staðið að málum.

    Nema stundum er það auðvitað bara formsatriði.
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Hvað? Bjarni? stjórnar hann ekki Höllu? Hann gerði ráð fyrir því.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stjórnarslit 2024

Greining

Ágrein­ingurinn um útlendinga­málin

„Ég tel ekki að slík frumvörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svavars­dóttir. „Þar erum við innviða­ráðherra held ég ósam­mála,“ svaraði Guðrún Hafsteins­dóttir. Þetta var gamalt stef og nýtt, að flokkarnir væru ósammála í útlendinga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætlaði sér að leggja fram frumvarp um lokað búsetu­úrræði.
GreiningStjórnarslit 2024

Ekki lengur hægt að gera atlögu að Bjarna fyrir kosningar

Síðan Bjarni Benediktsson tók við formennsku í Sjálfstæðis­flokknum hefur því ítrekað verið velt upp hvort tími hans sé liðinn. Enn sem komið er hefur sandurinn í hans pólitíska stundar­glasi ekki runnið út. Hann virðist ná að snúa því aftur og aftur rétt áður en síðustu sand­kornin detta. Með því að slíta stjórnar­samstarfinu styrkti Bjarni stöðu sína og kom í veg fyrir innan­búðaratlögu gegn sér fyrir kosningar, segir stjórnmála­fræðingur.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár