Ríkisstjórnarsamstarfið á enda

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir að rík­is­stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks sé á enda. Kosið verði í nóv­em­ber.

Ríkisstjórnarsamstarfið á enda
For­sæt­is­ráð­herra Blaða­menn voru boð­aðir í Stjórn­ar­ráðið með minna en klukku­stundar fyr­ir­vara. Mynd: Golli

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hefur til­kynnt for­mönnum hinna stjórn­ar­flokk­anna að hann hygg­ist leggja til­lögu um þing­rof fyrir for­seta. Þing­kosn­ingar verði því í lok nóv­em­ber. For­sæt­is­ráð­herra telur þetta far­sæl­ast bæði fyrir þjóð­ina og fyrir stjórn­ar­flokk­ana.

Þetta sagði Bjarni á blaða­manna­fundi í Stjórn­ar­ráð­inu rétt í þessu. Enn á eftir að koma í ljós hvort skipuð verði starfs­stjórn eða hvort núver­andi rík­is­stjórn muni sitja áfram fram að kosn­ingum. 

„Þetta er ákvörðun sem að ég hef tekið eftir mikla ígrundun,“ segir Bjarni. Hann kynnti for­mönnum stjórn­ar­flokk­anna um ákvörðun sína fyrr í dag.

Bjarni segir að þegar hann hafi tekið við sem for­sæt­is­ráð­herra í vor hafi rík­is­stjórnin lagt upp með það að leggja meg­in­á­herslu á efna­hags­málin, hæl­is­leit­enda­málin og orku­málin. Ýmislegt hafi unn­ist í þessum mála­flokkum og Bjarni segir að það hafi verið rétt að halda rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu áfram í vor. 

Ágreiningur um grundvallarmál

„Þegar komið er inn á haustið hins vegar, þá fer vax­andi ágrein­ingur milli stjórn­ar­flokk­anna um ákveðin grund­vall­ar­mál.“ Ágrein­ingur sé uppi um aðgerðir í hæl­is­leit­enda­málum. „Það hefur verið opin­bert,“ segir Bjarni. Þá hafi lengi verið ágrein­ingur í stjórn­inni um fram­tíð­ar­sýn varð­andi orku­nýt­ingu.

„Þegar ég lít víðar yfir sviðið og skoða önnur þau mál sem hefði verið mik­il­vægt fyrir rík­is­stjórn­ina að klára fyrir kosn­ingar, þá sé ég ekki fram á það að við náum nið­ur­stöðu sem getur verið ásætt­an­leg fyrir stjórn­ar­flokk­ana sam­an­lagt.“ Slík mál séu til dæmis lagar­eldið.

Spurður hvort að eitt­hvað korn hafi fyllt mæl­inn segir Bjarni að hann myndi ekki vilja nálg­ast málið þannig. „Um ákveðin grund­vall­ar­mál er ólík sýn. Allt frá utan­rík­is­stefnu yfir í hæl­is­leit­enda­mál. Orku­málin.“ Hann nefnir einnig ólíka fram­tíð­ar­sýn VG sem hafi orðið greini­leg eftir lands­fund þeirra nýlega. Bjarni segir að best sé að rík­is­stjórn hafi sam­eig­in­lega sýn, því segir hann að far­sæl­ast sé að ganga til kosn­inga.

Talsvert hefur verið rætt um fram­tíð stjórn­ar­sam­starfs­ins síð­ustu daga en róð­ur­inn virt­ist vera far­inn að þyngj­ast all­veru­lega á stjórn­ar­heim­il­inu í lið­inni viku. For­sæt­is­ráð­herra sagði meðal ann­ars við mbl.is á föstu­dag­inn að stórar yfir­lýs­ingar for­manns Vinstri grænna gætu óneit­an­lega skapað vanda og að stjórnin væri í brekku.

Vinstri græn álykt­uðu á lands­fundi sínum í síð­ustu viku að stjórn­ar­sam­starfið væri að líða undir lok. Þá ætti að kjósa í síð­asta lagi í vor, en kjör­tíma­bil­inu ætti að óbreyttu að ljúka næsta haust.

Ólafur Þ. Harð­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, sagði í sam­tali við frétta­stofu RÚV fyrr í dag að hann teldi að stutt væri í stjórn­ar­slit ef flokk­arnir ætl­uðu að setja hver öðrum úrslita­kosti. 

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stjórnarslit 2024

Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.
Ekki lengur hægt að gera atlögu að Bjarna fyrir kosningar
GreiningStjórnarslit 2024

Ekki lengur hægt að gera atlögu að Bjarna fyrir kosn­ingar

Síðan Bjarni Bene­dikts­son tók við for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknum hefur því ítrekað verið velt upp hvort tími hans sé lið­inn. Enn sem komið er hefur sand­ur­inn í hans póli­tíska stund­ar­glasi ekki runnið út. Hann virð­ist ná að snúa því aftur og aftur rétt áður en síð­ustu sand­kornin detta. Með því að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu styrkti Bjarni stöðu sína og kom í veg fyrir inn­an­búð­ar­at­lögu gegn sér fyrir kosn­ingar, segir stjórn­mála­fræð­ingur.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár