Ekkert skriflegt áhættumat og skipulag aðgerða „nokkuð óreiðukennt“

Vinnu­eftirlitið segir að velta megi fyrir sér hvort að fylling í sprungu við íbúðarhús í Grindavík hafi verið áhættunnar virði. Þegar áhætta sé metin ætti fyrsta spurningin alltaf að vera hvort „algjör­lega nauðsynlegt“ sé að framkvæma tiltekið verk. Eftir­litið hefur lokið rannsókn sinni á hvarfi Lúðvíks Péturs­sonar.

Sprunga
Sprunga Undir hús­inu við Vest­ur­hóp lá sprunga. Ákveðið var að reyna að fylla upp í hana en afleið­ing­arnar urðu þær að verk­taki sem vann við fyll­ing­una hvarf ofan í sprung­una. Mynd: Golli

Verktakar sem unnu við sprungu­fyllingar í Grindavík í byrjun árs upplifðu að skipulag aðgerða hefði verið nokkuð óreiðu­kennt. Dæmi voru um að þeir sem sáu um efnis­flutninga færu á milli verka eftir beiðnum mismun­andi aðila. Sumir verk­takanna upplifðu auk þess að verk­stjórn hafi á köflum verið óskýr. Sem dæmi var starfs­maður verktaka sem var að vinna við sprungu­fyllingar við hús í götunni Vesturhóp á sama tíma að sinna þremur öðrum verkum undir annarri verk­stjórn. Það var við þetta hús sem Lúðvík Pétursson var að vinna er hann féll ofan í sprungu. 

„Talið er að jörðin hafi skyndi­lega opn­ast þar sem Lúðvík var við störf og að hann hafi fallið niður ásamt þjöpp­unni“
Úr skýrslu Vinnu­eft­ir­lits­ins

Vinnu­eftirlitið hefur nú lokið við gerð skýrslu um slysið í þeim tilgangi að leiða í ljós orsakir þess líkt og stofnunni ber að gera lögum samkvæmt. Heimildin hefur fengið skýrsluna afhenta. Hún byggir m.a. á viðtölum við fjölda verktaka, starfs­mönnum Náttúru­hamfara­trygginga Íslands (NTÍ) og fulltrúa verkfræði­stofunnar EFLU. Einnig var rætt við samstarfs­mann Lúðvíks við sprungu­fyllinguna og eiganda fyrir­tækisins sem hann vann hjá. Er það mat Vinnu­eftirlitsins að rekja megi slysið m.a. til þess að ekkert skriflegt áhættumat lá fyrir og hefði verkfræði­stofan EFLA, í ljósi aðkomu hennar að verkinu, átt að hlutast til um gerð slíks mats.

Tveir starfs­menn verktaka­fyrir­tækisins Kambs ehf. hófu vinnu við sprungu­fyllingar við hús að Vestur­hópi í Grindavík  þann 8. janúar. Þá voru liðnir um tveir mánuðir frá því að mikill jarð­skjálfti reið yfir Grindavík með þeim afleiðingum að sprungur mynduðust ofanjarðar og byggingar skemmdust og eyði­lögðust. Fljótlega eftir þann atburð var hafist handa við að fylla í sprungur í bænum, í þeim tilgangi helstum að viðbragðs­aðilar ættu um hann greiða leið. Eldgos hófst svo í Sundhjúkagígaröð um miðjan desember og lágu viðgerðir niðri á meðan.

Á þriðja degi, er verkinu við húsið við Vesturhóp var nánast lokið var annar starfs­mannanna að vinna við loka­frágang sem fólst í yfirborðs­þjöppun á jarðvegi. Þetta var Lúðvík Pétursson. Hinn sá m.a. um að sækja efni á vörubíl sem notað var til að fylla í sprunguna við húsið. Nýbúið var að losa einn farm og töldu þeir félagar það duga en ákváðu þó að sækja meira til öryggis. Sá á vöru­bílnum fór í ferð í þeim tilgangi um 9.30 að morgni 10. janúar og er hann kom aftur, um hálftíma síðar, var Lúðvík  hvergi sjáanlegur. Hann reyndi að hringja í hann en komst þá að því að sími Lúðvíks væri í gröfu sem var á staðnum og í gangi.

LúðvíkLúðvík Pét­urs­son var þraut­reyndur jarð­vinnu­verk­taki.

Fljótlega kom hann auga á holu upp við húsið í garðinum þar sem unnið hafði verið við fyllingu og áttaði sig á því að sennilega hefði Lúðvík fallið niður um hana. Hann átti þó bágt með að trúa því. Hann hringdi í starfs­menn verkfræði­stofunnar EFLU, sem hafði umsjón með verk­efninu, og í fram­haldinu í Neyðar­línuna. Um svipað leyti kom að starfs­maður EFLU sem er jarð­verk­fræðingur og einnig reyndur björgunar­sveitar­maður. Hann útvegaði viðeigandi búnað og var í framhaldi látinn síga ofan í sprunguna til að kanna aðstæður með björgun í huga. Lúðvík var hvergi sjáanlegur en jarðvegs­þjappa sem hann hafði notað við vinnuna var að finna ofan í holunni.

 Umrætt verk var unnið að beiðni Náttúru­hamfara­trygginga Íslands (NTÍ). Húsið í Vestur­hópi var tjónmetið þann 18. nóvember 2023 og í fram­haldinu fékk NTÍ upplýsingar um að sprunga væri undir vestur­enda hússins og að hún væri „ótrygg með tilliti til öryggis hússins“ eins og það var orðað við Vinnu­eftirlitið í gögnum frá NTÍ. NTÍ skráði húsið í framhaldi varasamt og deildi þeim upplýsingum með lögreglu og almanna­vörnum.

Húsið er timburhús á steyptum sökkli. Sökkullinn var á þessum tíma óskemmdur en vegna sprungu sem liggur undir húsinu var hann á kafla á lofti og var það metið, að sögn NTÍ, að hægt væri að fylla að húsinu og forða þannig frekara tjóni. „Samkvæmt lögum um náttúru­hamfara­tryggingar ber NTÍ að reyna að koma í veg fyrir frekara tjón við aðstæður sem þessar,“ segir í skýrslu Vinnu­eftirlitsins. 

NTÍ leitaði til verkfræði­stofunnar EFLU varðandi ráðgjöf um hvort hægt væri að forða frekara tjóni. Verkfræði­stofan taldi mögulegt að fylla undir húsið og NTÍ óskaði í framhaldi eftir því, eða þann 4. desember, að EFLA  tæki verkið að sér. Samdægurs komu starfs­menn verkfræði­stofunnar með tillögu um hvernig standa ætti að verkinu. Eigandi hússins samþykkti þann 5. desember að fyllt væri í sprunguna. Eftir það segist NTÍ engin afskipti hafa haft af verkinu og hlutaðist ekki til um neitt né rak á eftir því þar sem stofnunin taldi að ábyrgð á aðgengi og áhættu­mati í Grindavík væri ekki í þeirra höndum. Taldi stofnunin því verkið vera í réttu ferli.

Reynt að meta hverja sprungu fyrir sig

Verkfræði­stofan tók sem fyrr segir að sér verkið við Vesturhóp að beiðni NTÍ og í því fólst m.a. að ráða verktaka og skipuleggja framkvæmd. Samkvæmt því sem EFLA sagði við Vinnu­eftirlitið var verklagið við sprungu­fyllingar almennt þannig að reynt var að meta hverja sprungu fyrir sig. Grafið var frá sprungunni til að víkka opið þar til komið var niður á klöpp. Ef sprungur á klöpp voru nægilega vel opnar voru bakkar fleygaðir niður í trektlaga form, grófu efni og stærri steinum komið fyrir í sprungunni þannig að steinarnir mynduðu einhvers konar tappa í henni. Oft var settur sérstakur jarðveg­dúkur undir fyllinguna sem kom í veg fyrir að fínna efni „læki“ í burtu. Þetta verklag hefur lengi verið viðhaft til dæmis í tengslum við göngustíga­gerð víða um land, segir í skýrslu Vinnu­eftirlitsins.

Við Vesturhóp var sprunga hins vegar undir húsinu sem gerði það að verkum að ekki var hægt að fylla í hana og nota jarðvegsdúk. Sprungan náði við og undir sökkul hússins. Hætta hafi verið á að mati EFLU að sökkullinn myndi síga og því var hugmyndin að fylla undir og að sökklinum og húsinu til að koma í veg fyrir það. Vegna þess að ekki var hægt að nota jarðvegsdúk var verkefnið við Vesturhóp ekki „hefð­bundið“ verkefni í þessum skilningi, sagði fulltrúi EFLU við Vinnu­eftirlitið. Auk þess kom fram að þessi útfærsla á þessum stað, það er að fylla upp að húsinu, var ekki hugsuð sem endanleg lausn.

EFLA segir að í tilviki hússins við Vesturhóp hafi verið lagt upp með að verkið yrði unnið úr gröfu með áfastan „víbrósleða“ til að starfs­menn þyrfti ekki að fara út úr tækjum við vinnuna. Leitað hafi verið  til verktaka­fyrir­tækisins Kambs vegna þess að það var með þann  búnað, auk þess sem verktakinn hafði mikla reynslu af jarðvegs­vinnu.

Verklag við sprungu­fyllingar á svæðinu almennt var hvorki skriflegt né fastmótað og var tekið mið af aðstæðum á hverjum stað, segir svo í skýrslu Vinnu­eftirlitsins. Að sögn verkfræði­stofunnar var farið vel yfir stöðuna með gröfu­stjórum á hverjum tíma, hvernig vinnu við hreinsun frá sprungum skyldi háttað og hvernig verkum skyldi lögð í fram­haldinu. Sérstak­lega var að sögn verkfræði­stofunnar brýnt fyrir starfs­fólki, bæði gröfu­stjórum og öðrum sem komu að sprungu­fyllingum, að fara ekki úr tækjum sínum og vinna aldrei eitt.

Í samtölum við verktaka sem unnu sambærileg verk kom hins vegar fram að ekki könnuðust allir við að hafa fengið þessar upplýsingar og upplifðu sumir þeirra að skipulag vinnunnar hafi verið nokkuð óreiðu­kennt, segir í skýrslu Vinnu­eftirlitsins. Sama sögðu eigandi verktaka­fyrir­tækisins og starfs­maðurinn sem hafði verið á staðnum ásamt Lúðvík. „Fyrir liggur að engu skriflegu áhættu­mati var til að dreifa,“ segir í skýrslunni.

Jarðvegurinn seig

Er Lúðvík og félagi hans hófu að fylla í sprunguna undir húsinu tóku þeir eftir því að jarðvegur virtist síga örlítið á milli daga. Að sögn starfs­manna EFLU var jarðvegur stöðugur og töldu þeir að örlítið sig væri ekki óeðlilegt og að efnið væri að „vinna sig niður“. 

Lúðvík notaði lausa jarðvegs­þjöppu til verksins þar sem víbrósleðinn á gröfunni hafði bilað daginn áður. Verkfræði­stofunni var kunnugt um bilunina en fulltrúi hennar kveðst ekki hafa haft vitneskju um að til stæði að nýta lausa jarðvegs­þjöppu við verkið og að fyrirmæli hafi verið að öll vinna sem þessi á svæðinu skyldi unnin úr vélum. „Talið er að jörðin hafi skyndi­lega opnast þar sem Lúðvík var við störf og að hann hafi fallið niður ásamt þjöppunni,“ segir Vinnu­eftirlitið í skýrslu sinni.

Stuðull féll og myndaði holu

Þegar sigið var ofan í holuna kom í ljós mikið holrými. Bergið við sprunguna er stuðlað og holan virðist hafa myndast við að einn stuðull hafi losnað og stungist niður. Þegar hraunið sem húsið er byggt á rann hefur það, að mati jarð­fræðinga sem Vinnu­eftirlitið ræddi við, runnið yfir veik jarðlög, eins og mold eða set. Vatn rennur undir sprungunni til sjávar og það hafi með tímanum skolað veiku jarð­lögunum undan og þannig myndað holrými. Stuðlarnir ganga saman vegna hrjúfs yfirborðs og þrýsta hver á annan. Við stóra skjálftann 10. nóvember hafi komið gliðnun í þetta kerfi þar sem „límið“ sem hélt stuðlunum saman veiktist og einhverjir þeirra hafi hangið mjög tæpt. Dagana á undan slysinu hafði verið hláka. Líklegasta skýringin á því að stuðullinn stakkst niður er að meti jarð­fræðinganna samspil gliðnunar og að vatn vegna hláku átti greiða leið niður milli stuðlanna.

Ekki er talið líklegt, segir í skýrslu Vinnu­eftirlitsins, að þjappan sem unnið var með hafi beinlínis valdið því að stuðullinn féll. Stuðullinn virðist hafa hangið mjög tæpt og við þær aðstæður þarf lítið átak til að losa hann.

Hellar og holrými þekkt fyrirbæri

Áður en verkið hófst var talið að berg­veggurinn í sprungunni stæði á föstu undirlagi beggja vegna hennar og því kom holrýmið starfs­mönnum verkfræði­stofunnar á óvart. Húsið stendur nærri Stamp­hólagjá en vitneskja hefur verið meðal stað­kunnugra um holrými í gjánni. Í sögulegum heimildum er getið um Grinda­víkurhelli sem var hluti af gjánni. Húsið stendur á stærstu sprungunni sem liggur í gegnum bæinn og tengist Stamp­hólagjánni. Þessi sprunga er hluti af misgengi sem markar sigdalinn sem liggur í gegnum bæinn og talið er að hafi myndast fyrir um 2.000 árum.  

Jarðvegs­þjappan fannst um það bil tólf metrum fyrir neðan gatið sem opnast hafði á yfir­borðinu. Frá þeim stað sem þjappan var voru þrír metrar niður á vatn. Vatnið er talið hafa verið um fimmtán metra djúpt. Þrátt fyrir leit ofan í sprungunni í kringum þjöppuna fannst Lúðvík ekki. Eftir að leitin hafði staðið í þrjá daga var henni hætt, ekki síst vegna þess hve ótryggar aðstæður voru. 

Höfðu þekkingu á sviði jarðverkfræði

„Skriflegt áhættumat fyrir þessa vinnu var ekki framkvæmt,“ segir Vinnu­eftirlitið í skýrslu sinni. „Um mjög sérstakar aðstæður var að ræða þannig að eðlilegast hefði verið, að áliti Vinnu­eftirlitsins, að verkfræði­stofan gerði heild­stætt skriflegt áhættumat, þar á meðal að gættri sérþekkingu þeirra á sviði jarð­verkfræði.“

Jafnframt hefði verið eðlilegt að áliti Vinnu­eftirlitsins að verkfræði­stofan hefði hlutast til um að þeir verktakar sem unnu að verkum á svæðinu sem verkfræði­stofan hafði umsjón með væru með eigið skriflegt áhættumat eða undir­gengjust áhættumat sem verkfræði­stofan hefði unnið.

Óformleg kynning á hættum

Að sögn EFLU fengu verktakar kynningu á hættum á svæðinu þegar vinna við sprungu­fyllingar hófst um mánaða­mótin nóvember/desember. Flestir verktakarnir lýsa kynningunni sem almennri en einhver munur er á hve mikla kynningu verktakar upplifðu að þeir hefðu fengið, en hún var að þeirra sögn óformleg og einungis munnleg. Talað var um að vinna ætti alla vinnu úr vélum, starfs­menn væru ekki einir við vinnu og að viðeigandi fall­varnar­búnaður ætti að vera tiltækur. Í viðtölum við verktaka á svæðinu kom fram að ekki hefði verið markviss eftir­fylgni með því að öryggis­atriðum væri fylgt.

Í gegnum bæinnSprunga mynd­að­ist í gegnum íbúa­hverfi í jarð­hrær­ing­unum. Hún lá undir húsið að Vest­ur­hópi 29 þar sem Lúðvík Pét­urs­son var við störf er hann hvarf.

EFLA hefur aðra sýn á málið og telur að þrátt fyrir að formleg skjal­festing hafi ekki átt sér stað hafi engu að síður verið vel farið yfir öryggismál og verklags­reglur á hverjum verkstað með lykil­starfsfólki, svo sem gröfu­stjórum. Þá telur verkfræði­stofan að jafnvel þótt skriflegt áhættumat hefði legið fyrir hefði það grundvallast á forsendum sem byggðu á upplýsingum um svæðið sem lágu fyrir áur en slysið varð 10. janúar.

Áhrif bilaða búnaðarins

Slysið verður ekki rakið til ástands tækja­búnaðar að öðru leyti en að ekki var hægt að nota þann tækja­búnað sem lagt var upp með vegna þess að hann var bilaður og sá búnaður kom því ekki við sögu er slysið varð. „Telja má að ef búnaðurinn hefði verið notaður við verkið hefðu afleiðingar orðið aðrar,“ segir í skýrslu Vinnu­eftirlitsins. 

 Fall­varnar­búnaður sem var tiltækur var ekki notaður. Í viðtölum við sérfræðinga verkfræði­stofunnar komu fram efasemdir um að hefð­bundinn fall­varnar­búnaður, þ.e. ein lína, myndi þjóna sínu hlutverki við þessar aðstæður, það er ef stuðull stingst niður og með honum laust efni úr fyllingunni. Líklega hefði maður sem fallið hefði með stuðlinum í línu fengið lausa efnið yfir sig með þeim afleiðingum að línan hefði slitað og maðurinn fallið niður þrátt fyrir að vera í fall­varnar­búnaði. 

Þetta er óvíst að mati Vinnu­eftirlitsins og ekki útilokað að línan hefði haldið.

Niðurstaðan

Að mati Vinnu­eftirlitsins má m.a. rekja slysið til þess að skriflegt áhættumat var ekki gert. „Fullnægjandi áhættumat, þar á meðal í skriflegu formi, fyrir verkið lá ekki fyrir. Meðal annars um jarð­fræðilegar aðstæður á því svæði sem um ræðir og hvernig hægt væri að haga vinnu á svæðinu að teknu tilliti til aðstæðna og þannig að öryggi starfs­fólks yrði ekki stefnt í hættu. Að áliti Vinnu­eftirlitsins hefði verkfræði­stofan í ljósi aðkomu hennar að verkinu átt að hlutast til um gerð slíks áhættu­mats,“ segir Vinnu­eftirlitið í niður­stöðu rann­sóknar sinnar.

„Í ljósi aðstæðna í Grinda­vík, þar sem atburða­rás í tengslum við nátt­úru­ham­farir var enn í gangi, má velta upp hvort þetta til­tekna verk hafi verið áhætt­unar virði“
Úr skýrslu Vinnu­eft­ir­lits­ins

Vinnu­eftirlitið segist ekki geta fullyrt hvernig kynningu á hættum og verklagi var nákvæmlega háttað gagnvart þeim sem komu að umræddu verki ásamt því hvernig eftir­fylgni var, en ítrekar að sú kynning hefði, „hvað sem öðru líður“ átt að byggja á skriflegu áhættu­mati að undan­genginni ítarlegri greiningu á hættum á svæðinu og hvernig unnt væri að takmarka þær með tilliti til öryggis starfsfolks. „Á það skorti.“

Þá segir Vinnu­eftirlitið:

„Þegar verk eru áhættu­metin þá ætti fyrsta spurning alltaf að vera hvort algjör­lega nauðsynlegt sé að framkvæma tiltekið verk sem hefur hættur í för með sér. Í ljósi aðstæðna í Grindavík, þar sem atburðarás í tengslum við náttúru­hamfarir var enn í gangi, má velta upp hvort þetta tiltekna verk hafi verið áhættunar virði.“

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Féll í sprungu í Grindavík

AfhjúpunFéll í sprungu í Grindavík

Tilgangs­leysi og gáleysi lýst í rannsókn slyssins í Grindavík

Það svaraði ekki kostnaði að fara í framkvæmdir við að bjarga húsinu við Vesturhóp 29 í Grindavík, samkvæmt skýrslu tveggja matsmanna sem skoðuðu húsið rúmum mánuði áður en að verktaki lést við sprungu­fyllingu við húsið. Náttúru­hamfara­trygging vísar ábyrgð á undir­verktaka sinn, Eflu, sem segir engar kröfur hafa verið gerðar um áhættumat á verk­staðnum. Lögregla hafði lokið rannsókn en hóf hana aftur, af ókunnum ástæðum.

12 mín. lestur

FréttirFéll í sprungu í Grindavík

Spurði ráðherra hvort til stæði að rannsaka aðdrag­anda slyssins í Grindavík

Þór­hild­ur Sunna Æv­ars­dótt­ir spurði dóms­mála­ráð­herra á Alþingi í dag hvort til stæði að rann­saka að­drag­anda þess að Lúð­vík Pét­urs­son féll í sprungu í Grinda­vík. „Í kjöl­far slyss­ins hef­ur kom­ið fram ósk að­stand­enda um að far­ið verði í sjálf­stæða og óháða rann­sókn á til­drög­um slyss­ins.“
ViðtalFéll í sprungu í Grindavík

Leituðu svara en fengu símsvara

Enginn af þeim sem kom að ákvörðunum eða bar ábyrgð á málum í Grindavík, þegar Lúðvík Pétursson hvarf ofan í sprungu, hefur sett sig í samband við börn hans eða systkini eftir að leit að honum var hætt. „Ósvöruðum spurningum hefur bara fjölgað,“ segir Elías Pétursson, bróðir hans. Það sé sorglega íslenskt að þurfa að stíga fram og berjast fyrir óháðri rannsókn. Óboðlegt sé að yfirvöld rannsaki sig sjálf.

12 mín. lestur

Fréttir

Sprungu­fyllingar búa til ný og hættulegri vandamál

Þrír af reyndustu jarð­vísinda­mönnum landsins telja það hafa verið misráðið að reyna að fylla upp í sprungur í Grindavík í kjölfar hamfar­anna í nóvember. „Ég held að þar hafi menn valið ranga leið,“ segir Páll Einarsson. Ármann Höskuldsson telur hægt að fylla í sprungur en þeir sem taki slíkar ákvarðanir verði að hafa í huga að ekki dugi að „sturta í gatið og vita ekkert hvað maður er að gera“.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár