Kalla eftir því að Samherji felli niður málið gegn íslenska listamanninum

Á þriðja tug alþjóðlegra samtaka sem berjast fyrir því að uppljóstr­arar séu verndaðir kalla eftir því að Samherji felli niður málið gegn lista­manninum Odee vegna lista­verksins We're Sorry. Samtökin leggja áherslu á sameig­in­legan grundvöll lista­manna og uppljóstrara hvað varðar mikilvægi þess að lýsa upp sann­leikann. Þá hefur Lista­háskóli Íslands ákveðið að taka ekki opinber­lega afstöðu í máli Odee en verkið var útskriftar­verkefni hans frá skólanum.

Mál lista­mannsins var tekið fyrir á stjórnar­fundi Lista­háskóla Íslands á dögunum. Skólans sem nú þegar hefur útskrifað lista­manninn á forsendum þessa verks. Niður­staða stjórnarinnar var að taka ekki opinber­lega afstöðu til málsins.

Oddur Eysteinn eða Odee segir í samtali við Heimildina að það komi sér á óvart að Lista­háskólinn standi ekki með sér.

„Sérstak­lega í ljósi þess að þetta er útskriftar­verkefni sem búið er að útskrifa mig fyrir. Og farið yfir af próf­dómara.“

Ertu til í að útskýra lista­stefnuna sem þú vannst verkið út frá?

„Þetta er list­stefna sem heitir menningar­brengl eða culture jamming. Heims­þekktir listamenn hafa unnið eftir þessari listrænu stefnu, eins og Banksy, The Yes Men og Nadia Plesner. Hún gengur út á að taka yfir eða breyta samskiptum fyrir­tækja eða stofnanna. Til þess að skapa nýja tjáningu sem lista­maðurinn stýrir.“

Hvað segirðu við fólk sem segir að þetta sé ekki list?

„We're Sorry hlýtur að vera eitt þekktasta mynd­listaverk Íslands þessa dagana. Þetta er alþjóð­lega viðurkennt listform,“ segir Odee.

Vilja að Samherji felli málið niður 

Skömmu eftir samtalið við Odee og á meðan á vinnslu fréttarinnar stendur berast ný tíðindi. Að 27 alþjóðleg og leiðandi samtök fyrir vernd fyrir uppljóstrara kalli nú eftir því að Samherji, sem samtökin kalla eitt stærsta sjávar­útvegs­fyrirtæki Evrópu, felli niður málið gegn lista­manninum. Samtökin linka á bréf á vef sínum sem má vitna í og birta snemma á morgun og styðja þar Odee og listrænt frelsi hans til tjáningar – sem geri okkur kleift að íhuga og kanna siðferðislegt val okkar en um leið skilja hvernig vald virkar og hefur áhrif á okkur, hvort sem það er pólitískt, félagslegt eða efnahagslegt.

Lögð er áhersla á sameiginlegan grundvöll uppljóstrara og lista­manna hvað varðar mikilvægi þess að lýsa upp sann­leikann og afhjúpa í þágu almanna­heilla.

Skólinn styður tjáningarfrelsi 

En aftur að Lista­háskólanum og ákvörðun stjórnar hans um að taka ekki afstöðu í máli lista­mannsins. Heimildin náði tali af Kristínu Eysteins­dóttur, rektor Lista­háskóla Íslands þar sem hún var stödd í Brussel og spurði hvers vegna stjórn skólans hefði ákveðið að taka ekki afstöðu með útskriftar­verkefni lista­mannsins. „Ég er einmitt hérna á norrænum háskóla­dögum í Brussel þar sem eru sextíu rektorar eru saman­komnir og eitt af því sem við erum að ræða mjög mikið er akademískt frelsi og sjálfræði og sjálf­stæði háskólanna.“

Hún segir það vera mjög skýrt að skólinn styðji tjáninga­frelsi.

 „Siða­reglur skólans eru mjög skýrar hvað það varðar. Það er ekki stunduð ritskoðun af neinu tagi af hálfu skólans varðandi list­sköpun. Hins vegar er það líka hlutverk háskóla í lýðræðis­samfélagi að taka ekki afstöðu með eða á móti lista­verkum. Við erum lista­háskóli og þar á að vera rými fyrir fjöl­breytileika og ólíkar raddir. “

„Lista­verkin tala fyrir sig sjálf“
Kristín Eysteins­dóttir

Háskólinn sjálfur geti þó ekki tekið afstöðu með eða á móti þeirri list­sköpun sem sé ræktuð innan skólans. „Við gefum algjört frelsi í list­sköpuninni en skólinn getur ekki talað með þeim hætti að hann taki afstöðu í þeim málum. Lista­verkin tala fyrir sig sjálf,“ segir Kristín og bætir við að lista­mennirnir beri ábyrgð á sínum verkum.

„Við erum ekki ritstjórar. Skólinn stígur ekki fram með afstöðu gagnvart einstaka lista­verki.“ 

Akademíska frelsið felist í því að nemendur og starfs­fólk skólans hafi rými til að vera með ólíkar skoðanir og ólíkar niður­stöður verka sinna. 

„Að því sögðu þá styðjum við tjáningar­frelsi lista­manna og listarinnar hundrað prósent.“

Bráðabirgðalögbann

Í dóms­salnum mun lista­maðurinn Odee mæta lögmönnum Samherja en hann ætlar að flytja mál sitt sjálfur. Þá verður skorið úr um hvort málið fari áfram.  

Fyrir­tækið fékk lagt bráðabirgða­lögbann í Bretlandi á vefsíðuna samherji.co.uk. þar sem Odee hafði birt afsökunar­beiðni Samherja til handa Namibíu. Lista­maðurinn tók niður vefsíðuna en taldi það vera alvarlega aðför að tjáningar­frelsinu

Vefsíða þessi tilheyrir áður­nefndu lista­verki sem jafnframt er vegg­listaverk í Lista­safni Reykja­víkur, ásamt frétta­tilkynningu með afsökunar­beiðninni. Í fréttum hérlendis í maí var talað um að fölsuð afsökunar­beiðni hefði verið send út í nafni Samherja og vefsíða verið látin líta út eins og hún væri tengd fyrir­tækinu. Í tilkynningu á dögunum sagði Þorsteinn Már Baldvinsson þetta vera misnotkun á vörumerki Samherja sem næði til þriggja heimsálfa.

Þekktar aðferðir innan listanna

Það að Lista­háskóli Íslands taki ekki afstöðu virðist ekki ríma við yfir­lýsingu frá Sambandi íslenskra lista­manna til stuðnings lista­manninum. Né heldur við yfir­lýsingu Bandalags íslenskra lista­manna, honum eindregið til handa.

Aðspurð um þetta segir Kristín: „Varðandi BÍL og SÍM þá fögnum við þeirra yfir­lýsingum enda samræmast þær hlutverki fagfélaga en hlutverk háskóla er annað. Það getur líka verið hættulegt í lýðræðis samfélagi ef háskóli stígur fram með einharða afstöðu. Háskólinn þarf að vera samfélag með ólíka tjáningu og raddir og rými fyrir tilraunir jafnt sem rann­sóknir. Það er okkar hlutverk,“ segir hún og bætir við að þær aðferðir sem hann beiti séu mjög þekktar innan listanna. Þá vísar hún í lista­stefnuna culture jamming sem aðferð til að varpa ljósi á eitthvað í samfélaginu.

Fiskerforum fjallar um listamanninn

Nýlega fjallaði norska ríkis­útvarpið, NRK um mál hans, en lista­maðurinn stundar nú fram­haldnám við lista­háskólann í Bergen.

Greinin hefst á orðunum: „Íslenski lista­maðurinn Oddur Eysteinn Friðriksson – fremur þekktur sem Odee – er nú sóttur til saka af hinu gígantíska sjávar­útvegs­fyrirtæki Samherja.“

Þar segir jafnframt að það sé vegna útskriftar­verkefnis hans frá  Lista­háskóla Íslands. Í greininni kemur fram að Samherji hafi verið sakaður um að hafa reynt að tryggja sér fiskikvóta fyrir utan strönd Namibíu. Það hafi gerst í kjölfar uppljóstranna á samskiptum starfs­manna Samherja og ráðherra í Namibíu.

Oddur hefur sagt að hann hafi viljað biðja Namibíu­menn afsökunar fyrir hönd íslensku þjóðarinnar.

„Þeir sem bera ábyrgð og hafa hagnast á þessu arðráni, ættu að missa allan auð sinn, bæði hérlendis og erlendis,“ sagði hann á dögunum í viðtali við RÚV.

Þess má geta að umræða um listaverk hans hefur nú ratað í miðilinn FiskerForum þar sem haft er eftir lista­manninum að sá ofboðs­lega mikli stuðningur sem hann hafi fundið fyrir vitni um trú fólks á tjáningar­frelsið og mikilvægi þess að halda ábyrgð fyrir­tækja að þeim.

Þá skrifaði lista­maðurinn Oddur Eysteinn loka­ritgerð um útskriftar­verkefni sitt þar sem hann kannar meðal annars tengsl og áhrif menningar­brengls á sig og sína list­sköpun. 

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Neibb. Að villa a sér heimildir er ekki heimilt. Að tjjona þá um milljarða með gögnum er aftur a moti leyfilegt. Maðurinn fór yfir strikið. Hneykslist frekar a gormunum sem nu krefjast milljóna af fjölmiðla manninum með ókurteisu orðin.
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár