„Oft er mikill svipur með fangelsun og grunnskólum“

Carmela Torrini varð fyrir miklu ein­elti í grunn­skóla, sem hún líkir við fang­els­is­vist. Árum saman þurfti hún að þola augna­got, útskúfun og því að lygum væri dreift um sig. Í dag glímir hún enn við áfallastreitu vegna upp­lif­unar sinnar.

„Oft er mikill svipur með fangelsun og grunnskólum“
Lista­kona Carmela hefur alltaf verið með mjög góða teng­ingu við dýr. Henni finnst sér­stak­lega gaman að teikna þau. Mynd: Aðsend

Árið 2011 skrif­aði Carmela Torrini, sem þá var 12 ára gömul, í dag­bók sína að hún vildi að hún myndi deyja svo hún þyrfti ekki að fara í skól­ann.

Í dag er hún 25 ára en hana dreymir enn martraðir um grunn­skóla­göngu sína. „Ég var hrædd flesta daga, ekki við skrímsli eða drauga heldur jafn­aldra mína,“ skrifar Carmela í nýlegri Facebook-færslu þar sem hún opnar sig um grunn­skóla­árin. Henni finnst mik­il­vægt að deila reynslu sinni sem lið í hvatn­ingu til þess að skóla­kerfið taki ein­elti af meiri alvöru, en hún upp­lifir sömu­leiðis að búið sé að geng­is­fella orðið ein­elti. 

Carmela segir í sam­tali við Heim­ild­ina að síð­ast­liðið ár hafi hún verið í áfalla­með­ferð vegna upp­lif­unar sinnar úr grunn­skóla. „En ég þurfti síðan að taka mér pásu, af því að þetta var svo ótrú­lega mikið. Það er svo erfitt að ætla að takast á við eitt­hvað sem gerð­ist í svona langan …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Brynhildur Magnúsdóttir skrifaði
    Það eru því miður allt of margir krakkar sem koma laskaðir upp úr grunnskóla vegna ýmissa hluta, og þá skiptir ekki máli hvort um er að ræða einhvern sem er úr "venjulega" hópnum eða úr hóp sem einhverra hluta vegna sker sig út úr norminu :/
    1
  • Erna Alfreðsdóttir skrifaði
    Hræðilegt að einelti grasseri ennþá í skólum landsins,einelti er svo mikill viðbjóður að það verður að stoppa það með öllum ráðum en það virðist vera mjög lítill vilji ef nokkur að gera eitthvað af viti til þess að stoppa það
    2
  • bjørg valgeirsdottir skrifaði
    Úff það er bara hrillingur að lesa þetta :( En það versta er að það væri bara hægt að skipta um nafn og þá væri þetta mín saga. Þrátt fyrir yfri 30 ára mismun í tíma sem sagt ekkert hefur þokast áfram á þeim árum, bara ömurlegt :(
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár