Þrjár konur ráðnar fréttastjórar á Heimildinni

Breyt­ingar eru á rit­stjórn Heim­ild­ar­innar. Margrét Mart­eins­dóttir og Ragn­hildur Þrast­ar­dóttir hafa verið ráðnir frétta­stjórar Heim­ild­ar­innar. Erla Hlyns­dóttir verður frétta­stjóri vefs­ins.

Þrjár konur ráðnar fréttastjórar á Heimildinni
Frétta­stjórar Margrét Mart­eins­dóttir, Ragn­hildur Þrast­ar­dóttir og Erla Hlyns­dóttir. Mynd: Golli

Margrét Mart­eins­dóttir og Ragn­hildur Þrast­ar­dóttir hafa verið ráðnir frétta­stjórar Heim­ild­ar­innar. Erla Hlyns­dóttir verður frétta­stjóri vefs­ins. Allar hafa þær verið starf­andi blaða­menn á rit­stjórn Heim­ild­ar­innar. 

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir er rit­stjóri Heim­ild­ar­innar og Helgi Seljan er rann­sókn­ar­rit­stjóri. Ráðning frétta­stjóra er liður í end­ur­skipu­lagn­ingu á rit­stjórn Heim­ild­ar­innar.

Þórður Snær Júl­í­us­son lét af störfum sem annar rit­stjóri Heim­ild­ar­innar í lok sum­ars. 

Margrét og Ragnhildur fréttastjórar

Margrét Mart­eins­dóttir hefur mikla reynslu af fjöl­miðlum. Hún hóf fer­il­inn árið 1997. Fyrst vann hún í 16 ár hjá á RÚV, meðal ann­ars sem vara­f­rétta­stjóri útvarps- og sjón­varps, yfir­maður íþrótta­deildar og stýrði dæg­ur­mála­deild frétta­stofu RÚV þar sem hún hafði yfir­um­sjón með fimm útvarps­þáttum: Morgun- og Síð­deg­is­út­varp­inu á Rás 2, Spegl­inum, Viku­lok­unum og Hádeg­is­út­varp­inu. Margrét var um tíma dag­skrár­stjóri Rásar 1 og Rásar 2. Hún hóf störf á Stund­inni árið 2021 og hefur verið hluti af Heim­ild­inni frá stofnun mið­ils­ins. 

Fyrr á árinu fékk hún blaða­manna­verð­laun fyrir við­tal árs­ins við Gyrði Elíasson. Áður var hún hluti af fjög­urra manna teymi Stund­ar­innar sem hlaut blaða­manna­verð­laun árið 2019 fyrir umfjöllun árs­ins um ham­fara­hlýnun. 

Árið 2014 skrif­aði hún bók­ina Vakandi ver­öld – ást­ar­óður, sem er hand­bók með leið­bein­ingum fyrir fólk um hvernig er hægt að lifa í sátt við nátt­úr­una í hring­iðu neyslu­sam­fé­lags­ins.   

Ragn­hildur Þrast­ar­dóttir lauk meistara­gráðu í blaða­mennsku frá Columbia háskóla vorið 2023, þar sem áhersla var lögð á rann­sókn­ar­blaða­mennsku, frétta­skrif og hljóð­vinnslu. Áður hafði hún lokið B.A. gráðu í bók­mennta­fræði frá Háskóla Íslands. 

Hún steig sín fyrstu skref sem blaða­maður á Stúd­enta­blað­inu árið 2016, hóf störf sem blaða­maður og kvöld­frétta­stjóri á Morg­un­blað­inu og mbl.is árið 2018 og færði sig yfir á Heim­ild­ina árið 2023. Hún sigr­aði í hand­rita­sam­keppni For­lags­ins, Nýjar raddir, og vorið 2024 kom út hennar fyrsta bók, Eyja. 

Erla veffréttastjóri

Erla Hlyns­dóttir hóf störf sem blaða­maður árið 2007 á DV og hefur síðan unnið til að mynda á Vísir.is, Stöð 2, Bylgj­unni og Frétta­tím­anum, auk þess að rit­stýra bæj­ar­blöðum. Erla var einnig frétta­stjóri og síðar aðstoð­ar­rit­stjóri DV. 

Erla hefur tvisvar verið til­nefnd til Blaða­manna­verð­launa Íslands, ann­ars vegar fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku vegna skrifa um eft­ir­launa­frum­varp þing­manna og hins vegar fyrir við­tal árs­ins vegna við­tals við Elísa­betu Ron­alds­dóttur um ofbeldi í nánu sam­bandi.

Hún er með BA-gráðu í félags- og fjöl­miðla­fræði frá Háskóla Íslands og leggur stund á meist­ara­nám í for­ystu og stjórnun með áherslu á mannauðs­stjórnun við Háskól­ann á Bifröst. Hún hefur einnig lokið námslín­unni Stafræn mark­aðs­setn­ing og við­skipti á net­inu í Opna háskól­anum í Háskól­anum í Reykja­vík.

Erla er einnig þekkt fyrir að hafa í þrí­gang lagt íslenska ríkið fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu þar sem tek­ist var á um tján­ing­ar­frelsi. Vegna bar­áttu sinnar fyrir tján­ing­ar­frelsi fékk hún húman­ista­við­ur­kenn­ingu frá Siðmennt og hug­rekk­is­við­ur­kenn­ingu frá Stíga­mótum.

Árið 2021 kom út bókin 11.000 volt - þroska­saga Guð­mundar Felix, sem Erla skrif­aði.

Vikuleg prentútgáfa 

Heim­ildin kemur út í viku­legri prentút­gáfu og birtir dag­legar fréttir á Heim­ildin.is. Samkvæmt fjöl­miðla­könnun Gallups lesa 15,5% lands­manna hvert tölu­blað Heim­ild­ar­innar.

Kjósa
63
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár