Ferðamenn flykkjast að eldgosinu

Þótt ekki sé hægt að kom­ast alla leið að eld­gos­inu reynir fólk að fara eins nálægt og hægt er.

Ferðamenn flykkjast að eldgosinu

Norð­austan við Stóra-Skógfell gýs eldur úr jörðu, en hraun­flæðið eru nokkrir tugir rúmmetra á sek­úndu. Hraun­breiðan er nú orðin 15,1 kíló­metri að flat­ar­máli, sam­kvæmt Veð­ur­stofu Íslands. Þar segir að allar mæl­ingar bendi til þess að um sé að ræða stærsta eld­gosið frá því að jarð­hrær­ingar hófust haustið 2023.

Mæl­ing­arnar sem um ræðir eru á hraun­breiðu og lík­an­reikn­ingar sem áætla magn kviku sem fór úr Svarts­engi yfir í Sund­hnúks­gíga­röð­ina þegar eld­gosið hófst að kvöldi 22. ágúst, eftir skjálfta­hr­inu.

Heild­ar­lengd gossprung­unnar var um sjö kíló­metrar, þegar mest var, þótt hún hafi aldrei verið virk öll í einu. Talið er að 17 til 27 milljón rúmmetrar af kviku hafi farið úr kviku­hólf­inu í Svarts­engi á þeim tíma sem lið­inn er frá því að gosið hófst. 

Ferðamenn flykkjast að

Neyð­ar­stigi var aflétt strax dag­inn eftir að gosið hófst og fært niður á hættu­stig. Viku síðar er enn virkni norð­ar­lega á gossprung­unni, mun norðar en í fyrri gosum í þess­ari eld­gosa­hr­inu. Hraun flæðir að mestu til norð­vest­urs og mun hægar en í upp­hafi goss. Sem laðar ferða­menn að.

Töluverð umferð var að eld­gos­inu á mið­viku­dags­kvöld. Þótt ekki væri hægt að kom­ast alla leið að gígnum leit­aði fólk leiða til að kom­ast inn í myrkrið og dást að stórum og fal­legum strókum. Í næsta nágrenni böð­uðu gestir í Bláa lón­inu sig í eld­gosa­bjarm­anum. 

Til að und­ir­strika feg­urð nátt­úr­unnar döns­uðu græn norð­ur­ljós á himni. 

Varað við sprengjum 

Í ljósi þess að erlendir ferða­menn streyma inn á svæðið hefur Lög­reglan á Suð­ur­nesjum sent frá sér til­mæli til ferða­þjón­ustu­að­ila að vara við því að svæðið sunnan Voga og Reykja­nes­brautar sé mengað af virkum og óvirkum sprengjum, fall­byssu­kúlum, sprengju­vörum og æfinga­sprengjum, sem geta valdið mann­tjóni ef þær springa. Hiti og hreyf­ingar geta haft áhrif þar á.

Nákvæmar upp­lýs­ingar um útbreiðslu eða stærð þessa svæðis liggja ekki fyrir, svo fólk er hvatt til að fylgja leið­bein­ingum frá Lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum þegar það fer um svæðið og fylgja merktum göngu- og akt­urs­slóðum. Bent hefur verið á að fólk í 300 metra rad­íus frá stórri sprengju geti fallið við spreng­ingu. 

Eins er varað við mengun og gróð­ur­eldum. Loftgæði nærri gos­s­töðvum eru slæm og biðlað hefur verið til ferða­manna að skunda ekki með börnin sín inn á hættu­leg svæði. Skipu­lögð bíla­stæði eru ekki til staðar og varað er við því að leggja bíl við Reykja­nes­braut.  

Óvissustig ríkir víðar

Óvissu­stig ríkir víðar á land­inu, vegna Skaft­ár­hlaups, land­riss í Öskju og skemmda á neyslu­vatns­lögn til Vest­manna­eyja. Óvissu­stigi var hins vegar aflétt á mánu­dag á Norð­ur­landi eystra vegna mik­illa rign­inga og skriðu­hættu á Trölla­skaga um helg­ina. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár