Tíu mánaða langri lögreglurannsókn á áhöfn Hugins VE lokið

Karl Gauti Hjalta­son, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, segir að rann­sókn á því hvort skemmdir á vatns­lögn til Vest­manna­eyja megi rekja til refsi­verðs gáleysis sé lokið. Rann­sóknin hefur staðið yfir síðan í nóv­em­ber í fyrra og hefur verið lögð fyrir ákæru­svið lög­reglu sem mun taka end­an­lega ákvörðun um það hvort grun­aðir í mál­inu verði sóttir til saka eður ei.

Tíu mánaða langri lögreglurannsókn á áhöfn Hugins VE lokið
Hver á sök? Kostn­aður við við­gerðir á vatns­lögn­inni er tal­inn vera um 1,5 til tveir millj­arðar króna. Lög­reglan í Vest­mann­eyjum hóf snemma að rann­saka hvort tjónið hafi mátt rekja til refsi­verðs gáleysis af hálfu skip­stjórn­ar­manna og vél­stjóra Hugins VE. Mynd: Shutterstock

Rannsókn lög­reglu á tjóni sem varð á neyslu­vatns­lögn til Vest­manna­eyja er lokið. Málið hefur verið lagt fyrir ákæru­svið lög­regl­unnar í Vest­manna­eyjum sem ákveður hvort ákæra verði gefin út. Þetta stað­festir Karl Gauti Hjalta­son, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, í sam­tali við Heim­ild­ina.

Í nóv­em­ber í fyrra féll akk­eri skips­ins Hugins VE útbyrðis og dróst eftir hafs­botn­inum og olli miklu tjóni á lögn sem sér Vest­manna­ey­ingum fyrir öllu sínu neyslu­vatni.

Skömmu eftir að atvikið átti sér stað hóf lög­reglan í Vest­manna­eyjum rann­sókn til þess að skera úr um það hvort skemmd­irnar mætti rekja til refsi­verðs gáleysis. Rann­sóknin hefur því staðið yfir í um tíu mán­uði.   

Þrír áhafn­ar­með­limir eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn­inni, skip­stjóri, stýri­maður og vél­stjóri Hugins VE. Tveimur dögum eftir að atvikið átti sér stað voru skip­stjóri og yfir­stýri­maður Hugins reknir. 

Lögregla fékk greiðan aðgang að öryggisupptökum

Sjó­manna­fé­lag Vest­manna­eyja og fleiri brugð­ust illa við upp­sögn­unum á sínum tíma og …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vatnslögnin til Eyja

Stefna Vinnslustöðinni svo bæjarbúar greiði ekki tjónið
FréttirVatnslögnin til Eyja

Stefna Vinnslu­stöð­inni svo bæj­ar­búar greiði ekki tjónið

Bæjarráð Vest­manna­eyja sam­þykkti í dag að höfða skaða­bóta­mál á hendur Vinnslu­stöð­inni hf. vegna tjóns sem varð á vatns­lögn­inni milli lands og Eyja síð­ast­liðið haust. Vinnslu­stöðin neitar að bæta meira en það sem trygg­ingar félags­ins dekka. Hátt í tveggja millj­arða króna kostn­aður lendir að óbreyttu á íbúum í Vest­manna­eyjum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár