Harmleikur í Neskaupstað

Eldri hjón fundust látin og maður hand­tekinn í Austurbæ Reykja­víkur.

Neskaupstaður
Nes­kaup­staður Eldri hjón fund­ust látin í bænum. Mynd: Shutterstock

Voveiflegar atburður átti sér stað í Neskaupstað í nótt. Samkvæmt yfir­lýsingu frá Lögreglunni á Austur­landi rannsakar hún „alvarlegt atvik“ sem átti sér stað í heimahúsi í bænum. Tveir hafa verið úrskurðaðir látnir.

Lögreglan hefur í dag verið við aðgerðir í húsinu, sem er við Strand­götu, aðalgötu bæjarins.

Í frétt RÚV kemur fram að hin látnu hafi verið eldri hjón. Þá hafi bifreið hjónanna horfið. Í kjölfarið hafi lögregla handtekið mann í Reykjavík, eftir að hafa verið með viðbúnað á Snorra­braut og lokað umferð við Eiríks­götu. Vitni að aðgerðum lögreglu á Snorra­braut segist í samtali við dv.is hafa séð tvo menn með skamm­byssur stökkva út úr ómerktri bifreið. Um var að ræða óeinkennisklædda lögreglu­menn.

Þetta er ekki eina höggið sem samfélagið í Neskaupstað hefur fengið á sig. Í dag klukkan 18 átti að halda minningar­stund vegna andláts manns sem lést af völdum voðaskots við Hálslón í fyrradag. Maðurinn hafði misst barnungan son sinn úr bráðum veikindum fyrr í sumar.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár