Skyndilegar vinsældir nafnsins Una að öllum líkindum vegna Unu Torfa

Íslensku­pró­fessor seg­ist sann­færð um að nýtil­komnar og for­dæma­lausar vin­sældir stúlku­nafns­ins Una megi rekja til frægðar tón­list­ar­kon­unnar Unu Torfa. Spurð hvað henni finn­ist um málið segir ungst­irnið það súr­r­eal­ískt en er þó efins um að þetta teng­ist henni.

Skyndilegar vinsældir nafnsins Una að öllum líkindum vegna Unu Torfa
Una Torfa „Ef fólki finnst í lagi að börnin þeirra heiti það sama og ég þá hlýt ég að vera að gera eitt­hvað rétt.“ Mynd: Aðsend

Áári hverju birt­ist á vef Þjóð­skrár listi yfir tíu vin­sæl­ustu nöfnin sem voru gefin nýfæddum börnum á liðnu ári. Stundum breyt­ast þessir listar ekki mikið á milli ára en nöfn eiga þó stundum til að skjót­ast upp vin­sæld­ar­list­ann á gríð­ar­lega skömmum tíma. 

Árið 2023 var það nafnið Una, sem var þá níunda vin­sælasta stúlku­nafnið. Árið á undan hafði það hins vegar verið í 58. sæti, eða 49 sætum neðar.

Þetta í fyrsta skiptið sem nafnið öðl­ast raun­veru­legar vin­sældir, þótt gam­alt sé í mál­inu. Það hefur aldrei verið bein­línis sjald­gæft en Una hefur heldur aldrei náð miklu flugi.

Guðrún Kvaran, pró­fessor emeritus í íslensku og höf­undur bók­ar­innar Nöfn Íslend­inga, seg­ist sann­færð um að nýtil­komnar vin­sældir nafns­ins megi rekja til frægð­ar­sólar tón­list­ar­kon­unnar Unu Torfa. Allt bendi til þess, þótt erfitt sé að sanna það. 

Blm: Þetta hefur ekki verið neitt sér­stak­lega algengt nafn, er það?

„Alls ekki,“ segir Guðrún.

Una Torfa kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið árið 2022 og varð hratt mjög áber­andi í íslensku tón­list­ar­lífi.

Guðrún segir það algengt að nöfn þekkts fólks verði vin­sæl. „Það er mjög oft eitt­hvað svo­leiðis. Svo hefur líka verið dálítið um það að nöfn úr barna­bókum eða barna­kvik­myndum hafi skot­ist upp en það er ekki alveg eins algengt.“ 

„Mér þykir mjög vænt um þetta nafn“

Spurð hvað henni finn­ist um það að hún eigi senni­lega þátt í vin­sæld­ar­spreng­ingu nafns síns segir Una Torfa að sér þyki þetta súr­r­eal­ískt. Hún seg­ist þá eiga bágt með að trúa því að vin­sældir nafns­ins teng­ist sér. „En kannski hefur fólk fengið hug­myndir. Ég tek þessu bara sem hrósi, ætli það ekki. Ef fólki finnst í lagi að börnin þeirra heiti það sama og ég þá hlýt ég að vera að gera eitt­hvað rétt.“ 

Una er kveðst ánægð með þró­un­ina. „Mér finnst það mjög gaman því ég er mjög ánægð með að heita Una. Ég hef alltaf verið ánægð með þetta nafn.“ Hún seg­ist sam­gleðj­ast nýju nöfnum sínum og telur þær eiga gott í vændum. „Þetta þýðir hin ham­ingju­sama. Mér þykir mjög vænt um þetta nafn.“

Aðspurð seg­ist tón­list­ar­konan hafa tekið eftir því að nafnið væri að verða vin­sælla. „Ég hef heyrt í kringum mig að þetta væri að aukast. Ég hef vitað frá því að ég var lítil að við vorum mjög fáar þegar ég fékk mitt nafn. Það var eitt­hvað sem ég var með­vituð um – að ég héti sjald­gæfu nafni. Ótrúlegt hvað það er búið að breyt­ast hratt.“

Birnir vinsælasta drengjanafnið í fyrra

Vin­sælasta drengj­a­nafnið árið 2023 er einnig kunn­ug­legt í heimi tón­list­ar­innar, Birnir. Það nafn var einnig vin­sælt árið áður, þegar það lenti í fimmta sæti. Að sögn Guðrúnar bendir allt til þess að í því til­felli sé það sama uppi á ten­ingnum – að rapp­ar­inn Birnir hafi haft áhrif á vin­sældir nafns­ins, sem var nán­ast óþekkt þangað til á síð­ustu ára­tugum. En árið 1989 voru aðeins 15 karlar sem hétu Birnir að fyrsta nafni.

BirnirRapp­ar­inn ásamt Páli Óskari.

Guðrún telur að til­viljun ráði því hvaða þekktu ein­stak­lingar hafi þessi áhrif og það end­ur­spegli ekki endi­lega ást fólks á þeim. Þegar fólkið sé minna í sviðs­ljós­inu séu nöfnin fólki ekki eins ofar­lega í huga og þá dvíni vin­sæld­irnar. 

Kapítóla vinsælt en Hallgerður óvinsælt

Í gegnum tíð­ina hefur ekki aðeins frægt fólk heldur einnig bók­menntir og kvik­myndir haft mikil áhrif á tíðni nafna. „Það voru einmitt nöfn úr bókum sem urðu mjög vin­sæl, eins og Kapítóla. Það var óskap­lega vin­sæl saga fyrir ára­tugum. Það voru fleiri, fleiri konur sem fengu nafnið Kapítóla upp úr þeirri bók,“ segir Guðrún. Það sama hafi átt sér stað þegar bóka­flokk­ur­inn um Ísfólkið var hvað vin­sælastur. Margir hafi sótt nöfn þaðan.

Óvin­sældir per­sóna geti þá einnig haft áhrif. „Hall­gerður lang­brók úr Njálu hún var aldrei vin­sæl af því hún þótti fara svo illa með menn sína. Það voru eig­in­lega engar konur sem fengu nafnið Hall­gerður fyrr en kannski á síð­ustu ára­tugum. Menn forð­uð­ust það. Eins með nafnið Gróa – því það var talað um Gróu á Leiti.“ 

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GGJ
    Guðl. Gauti Jónsson skrifaði
    Frammistaða Unu Torfa við Arnarhól í kvennaverkfallinu vakti athygli mína á Unu og nafninu hennar.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár