Mynd: Copyright: <a href='https://www.123rf.com/profile_lightwise'>lightwise / 123RF Stock Photo</a>

Tugir grunaðra skattsvikara sleppa við refsingu og sektir

Héraðs­saksóknari hefur fellt niður um 60 mál gegn grunuðum skatt­svikurum. Skatt­stofninn í skattsvika­málum sem eru til meðferðar hjá embættinu hleypur á milljörðum. Ástæðan er rof í máls­meðferð á meðan að beðið var niður­stöðu Mann­réttinda­dómstóls Evrópu.

Héraðs­saksóknari hefur fellt niður um 60 mál þar sem grunur var um að einstaklingar hefðu framið skattsvik. Fyrstu málin voru felld niður fyrir tæpum mánuði síðan. Á meðal þeirra mála sem felld voru niður eru mál einstaklinga sem komu fyrir í Panama­skjölunum svokölluðu. Og stór hluti málanna snýst um einstaklinga sem geymdu fjármuni utan Íslands til að komast hjá skatt­greiðslum. Búist er við því að enn fleiri mál tengd ætluðum skatts­vikum verði felld niður á næstunni, en alls eru rúmlega 150 mál til meðferðar hjá embætti héraðs­saksóknara. Alls er skatt­stofninn í öllum þeim málum yfir 30 milljarðar króna.

Þegar er búið að endur­ákvarða skatt­greiðslur á flesta þeirra sem undir eru í þeim rann­sóknum. En í þeim málum sem felld hafa verið niður mun ekki verða hægt að leggja sektir á þá sem þau snúast um. Sekt fyrir skattsvik getur verið frá því að vera tvöföld sú skatt­fjárhæð sem skotið var undan og upp að tífaldri þeirra fjárhæð. Því er ljóst að íslenska ríkið verður af miklum fjárhæðum vegna þessa og þeir sem sviku stórfellt undan skatti munu enn fremur ekki þurfa að sæta refsingu fyrir að hafa framið hegningar­lagabrot.

Bryndís Kristjáns­dóttir skatt­rannsóknar­stjóri segir að embætti hennar muni óska eftir því að ríkis­saksóknari endur­skoði ákvörðun héraðs­saksóknara um niður­fellingu í að minnsta kosti hluta málanna.

Sleppa vegna máls Jóns Ásgeirs

Ástæðan fyrir þessari stöðu er rof í máls­meðferð sem varð vegna þess að ákæru­valdið og íslenskir dómstólar voru að bíða eftir niður­stöðu í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Tryggva Jónssonar fyrir Mann­réttinda­dómstól Evrópu, og síðan bið eftir því hvernig Hæstiréttur túlkaði þá niður­stöðu.

Þann 18. maí síð­ast­lið­inn komst Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu að þeirra nið­ur­stöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni og Tryggva Jóns­syni þegar þeir voru dæmdir í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir skatta­laga­brot í rekstri Baugs og fjár­fest­inga­fé­lags­ins Gaums árið 2013, ásamt Krist­ínu Jóhann­es­dótt­ur.

Þeir kærðu þann dóm til Mann­rétt­inda­­dóm­stóls­ins á þeim for­­sendum að þeir hefðu þegar hlotið dóm fyrir sömu brot. Þeir höfðu verið dæmdir til að greiða álag ofan á end­ur­á­kvörðun skatta af yfir­­skatta­­nefnd árið 2007. Málin tvö hefðu verið byggð á sama grunn­i. Og því væri verið að refsa þeim tví­vegis fyrir sama brot­ið.

Fram að þeim tíma hafði það tíðkast hér­lendis að þeir sem sviku stór­fellt undan skatti skyldu greiða hátt álag ofan á þá van­goldnu skatta sem þeir skyldu end­ur­greiða. Ef um meiri­háttar brot var að ræða þá var við­kom­andi einnig ákærður fyrir meiri háttar skatta­laga­brot, en við slíkum brotum liggur allt að sex ára fang­elsi auk þess sem viðkomandi þarf að að greiða sekt.

Þegar Mann­rétt­inda­dóm­stóll­inn hafði kom­ist að nið­ur­stöðu þá þurfti að falla dómur í Hæsta­rétti um sam­bæri­legt efni til að fram komi hver áhrif nið­ur­stöð­unnar verði á íslenska dóma­fram­kvæmd.

Sá dómur féll í lok september síðastliðins.

Þurftu að mynda eina samþætta heild

Hæstiréttur var fjöl­skipaður í málinu, sem snerist um stórfellt skatta­lagabrot manns sem hafði ekki talið fram fjár­magns­tekjur á árunum 2008 og 2009 upp á sam­tals 87 millj­ónir króna á skatt­fram­tali sínu. Um var að ræða tekjur af sölu hluta­bréfa og upp­gjör á tugum fram­virkra samn­inga.

Niður­staða dómstólsins var að sakfella manninn fyrir brotið og leggja á hann 14 milljóna króna sektar­greiðslu þrátt fyrir að skatt­yfirvöld hefðu þegar gert honum að greiða álag á vantalda skatta.

Í dómi Hæstaréttar var því ekki tekið fyrir tvöfalda refsingu. Þar var hins vegar, með vísun í dóm Mann­réttinda­dómstólsins í norsku máli sem féll fyrir um ári síðan og í mál Jóns Ásgeirs og Tryggva, sagt að sýna þyrfti fram á að sakarefni sem sé til meðferðar hjá bæði skatt­yfirvöldum og í sakamála­rannsókn séu þannig tengd að þau myndi eina samþætta heild að efni til. „Þetta feli ekki eingöngu í sér að markmiðin sem að er stefnt og aðferðirnar til að ná þeim séu til fyllingar heldur jafnframt að afleiðingar þess lögbundna fyrir­komulags feli það í sér að rekstur tveggja mála sé fyrir­sjáanlegur og að gætt sé meðalhófs,“ segir í dómi Hæstaréttar.

Um 150 mál með skattstofn upp á 30 milljarða

Á meðan að beðið var niður­stöður Mann­réttinda­dómstólsins í máli Jóns Ásgeirs og Tryggva, og á meðan að beðið var eftir því að sjá hver áhrif þeirrar niður­stöðu yrði á íslenska dóma­framkvæmd, þá voru rúmlega 150 mál sem voru til meðferðar hjá embætti héraðs­saksóknara, sem fer með rann­sóknar- og ákæruvald í málum sem þessum, sett á bið. Um var að ræða mál sem eru í rann­sókn, sem voru að bíða eftir að kom­ast í rann­sókn og mál sem búið var að rann­saka, og jafn­vel ákæra í.

Eftir að embætti héraðs­saksóknara mátaði þau mál sem það var með til meðferðar við leið­beiningar Hæstaréttar varð niður­staðan sú að máls­meðferð um 60 þeirra hjá annars vegar skatt­yfirvöldum og hins vegar héraðs­saksóknara hafi ekki verið nægilega samtvinnuð í efni og tíma, aðallega vegna þess að þeim var slegið á frest vegna máls Jóns Ásgeirs og Tryggva sem var fyrir Mann­réttinda­dómstólnum.

Það rof sem varð vegna þess að málin voru sett á bið varð á endanum til þess að þau voru látin niður falla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár