Ár síðan kafbáturinn Titan féll saman á millisekúndu

Fyrir ári fang­aði hvarf kaf­bát­ar­ins Titan athygli heims­byggð­ar­innar. Fimm menn fór­ust þegar hann féll saman í köf­un­ar­leið­angri að flaki óláns­sama far­þega­skips­ins Titanic.

Ár síðan kafbáturinn Titan féll saman á millisekúndu
Titan sem ætl­aði að skoða Titanic Kaf­bát­ur­inn Titan hvarf af rat­sjá út fyrir Nýfundna­landi fyrir ári síðan. Fimm far­þegar voru um borð í bátnum, þar á meðal stofn­andi OceanGate, sem gerði út ferðir að braki Titanic. Talið er víst að bát­ur­inn hafi fallið saman vegna vatns­þrýst­ings. Mynd: Facebook

Fyrir ári fylgd­ist heim­ur­inn í ofvæni með afdrifum kaf­bát­ar­ins Titan sem fyr­ir­tækið OceanGate gerði út til að heim­sækja flak Titanic á hafs­botni. Skipið, sem sökk á leið sinni til Banda­ríkj­anna frá Bret­landi árið 1912, hvílir á 3.800 metra dýpi um 600 kíló­metra frá strönd Kanada.

Um borð í Titan voru fimm karlar sem höfðu freistað þess að berja flakið augum. Sá elsti var 77 ára, sá yngsti 19 ára. Inn­an­borðs var stofn­andi OceanGate, maður að nafni Stockton Rush. Ferða­lagið kost­aði á fjórða hund­rað millj­ónir króna fyrir hvern far­þega, eða um 250 þús­und Banda­ríkja­doll­ara á haus.

Ævin­týra­þrá eða háska­för? Stockton Rush stofn­aði OceanGate árið 2009 og skipu­lagði fjölda ferða til að skoða brak Titanic. Eftir að Rush hvarf voru grafin upp við­töl við hann þar sem hann lýsti yfir nokkuð kæru­lausri afstöðu sinni til örygg­is­mála.

Héldu að mennirnir hefðu …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár