Sex Íslendingar fjárfesta í enskum fótboltaklúbbi

Þrenn íslensk hjón eru meðal nýrra eig­enda Burton Albion FC, liðs í ensku C-deild­inni. Íslend­ingar ekki verið fyr­ir­ferð­ar­miklir í eig­enda­hópi liða í enska bolt­anum síðan fyrir hrun.

Sex Íslendingar fjárfesta í enskum fótboltaklúbbi
Burton Albion spilar í C-deild ensku knatt­spyrn­unnar. Mynd: Burton Albion FC

Þann 3. júní síð­ast­lið­inn var greint frá því að for­maður enska fót­bolta­fé­lags­ins Burton Albion Football Club, maður að nafni Ben Robinson, hefði selt alla meiri­hluta­eign sína í félag­inu til Nordic Football Group (NFG). Meðal stórra hlut­hafa í því félagi eru þrenn íslensk hjón.

Degi eftir að til­kynnt um kaup hóps­ins á félag­inu kynnti það til sög­unnar nýjan aðal­þjálf­ara, Mark Robinson. Mark, sem áður starf­aði í upp­bygg­ing­ar­starfi Chelsea, var auk þess þjálf­ari AFC Birming­ham um tíma og þykir að sögn tals­verður fengur fyrir Burton Albion.

Þá mun Fleur Robinson, dóttir frá­far­andi eig­anda, snúa aftur í for­stjóra­stól­inn hjá félag­inu. En Fleur hefur stýrt velska fót­boltalið­inu Wrexham A.F.C. síð­ustu þrjú árin. Wrexham, sem er í eigu Hollywood leik­ar­anna Ryan Reynolds og Rob McElhenney, hefur færst upp úr E-deild upp í C-deild á síð­ast­liðnum árum og öðl­ast tölu­verða frægð í gegnum sjón­varps­þætt­ina Welcome to Wrexham.

Burton Albion spilar í ensku C-deild­inni og er stað­sett í breska bænum Burton upon Trent. Það hefur ekki verið til­þrifa­mikið í deildum ofar þeirri sem það leikur í núna, og mátti telj­ast heppið að halda sér í deild­inni þetta tíma­bilið. Félagið lék tvö tíma­bil í ensku B-deild­inni, Championship deild­inni frá 2016-2018, eftir að hafa unnið sig upp úr E-deild enska fót­bolt­ans á rúm­lega ára­tug.

Trent heillar

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Íslend­ingar gera sig gild­andi í hlut­hafa­hópi knatt­spyrnu­liða á Englandi, og raunar alls ekki í fyrsta sinn sem lið við ána Trent er að hluta eða stórum hluta í eigu Íslend­inga. Stoke City FC var í um ára­tug í eigu og undir stjórn íslenskra fjár­festa, en heima­völlur þess er í borg­inni Stoke on Trent. Rétt er að taka fram að áin sú arna hefur ansi hreint vítt vatna­svið.

Einna hæstum hæðum náðu þó íslenskir fjár­festar þegar þeir komust yfir enska úrvalds­deild­ar­liðið West Ham, þegar Björgólfur Guð­munds­son eign­að­ist meiri­hluta í félag­inu um nokk­urra miss­era skeið, fram að banka­hruni.

Síðan þá hafa Íslend­ingar ekki verið áber­andi þátt­tak­endur í eig­enda­hópi enskra knatt­spyrnu­liða.

Þrenn íslensk hjón í hópi eigenda

Í félag­inu Nordic Football Group sem keypti Burton Albion á dög­unum eru ýmsir fjár­festar frá Norð­ur­lönd­unum – Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finn­landi og Íslandi.  Á heima­síðu fót­bolta­fé­lags­ins má sjá lista yfir 18 manns sem eiga veru­legan hlut í félag­inu. Eru þar á meðal nöfn sex Íslend­inga, þrennra hjóna.

Ein þeirra eru Bogi Þór Sig­urodds­son og Linda Björk Ólafs­dóttir, ein rík­ustu hjón lands­ins. Tíma­ritið Frjáls verslun mat auð hjón­anna á 15 millj­arða króna í fyrra. En í tíma­rit­inu eru fimm­tíu rík­ustu Íslend­ing­arnir útli­staðir.

Bogi Þór er aðal­eig­andi og stjórn­ar­for­maður Fagkaupa sem er stærsta heild­sala á Íslandi m.t.t. veltu. Fagkaup er móð­ur­fé­lag Johan Rönning, Sindra og Áltaks meðal ann­arra fyr­ir­tækja. 

Bogi Þór og Linda Björk hafa einkum verið áber­andi í kaupum á íslenskum heild­sölum. Þau eiga fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Bóksal, sem hefur verið meðal stærstu hlut­hafa fyr­ir­tækja s.s. Icelandair, Arion banka og Kviku banka. Bóksal var enn fremur stærsti einka­að­il­inn sem tók þátt í útboði Banka­sýsl­unnar á hlut rík­is­ins í Íslands­banka. 

Bogi Þór var í 21. sæti yfir tekju­hæstu Íslend­ing­ana á höf­uð­borg­ar­svæð­inu árið 2022 með yfir hálfan millj­arð í heild­ar­árs­tekjur. 

Fyrrverandi fótboltamenn og núverandi fjárfestar

Önnur íslensk hjón í eig­enda­hópnum eru með bak­grunn í fót­bolta. Það eru þau Hrafn­hildur Eymunds­dóttir og Ólafur Páll Snorra­son, sem eru bæði fyrr­ver­andi fót­bolta­menn. Lét Ólafur Páll þar einkum til sín taka á þeim vett­vangi, hann starf­aði sem atvinnu­maður í íþrótt­inni og á að baki marga Íslands­meist­aratitla. 

Ólafur Páll og Hrafn­hildur eiga saman OS Eignir sem er fast­eigna- og bygg­ing­ar­fé­lag. Hann er fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins en hún er sölu- og mark­aðs­stjóri þess. Þau hafa enn fremur stundað fjár­fest­ingar í gegnum félag sitt Funaberg. 

Árið 2022 var Ólafur Páll með heild­ar­árs­tekjur upp á yfir 90 millj­ónir og var því í 318. sæti yfir tekju­hæstu ein­stak­ling­ana á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Úlfar Stein­dórs­son, for­stjóri Toyota á Íslandi og stjórn­ar­for­maður Bláa lónssins, og kona hans Jóna Ósk Pét­urs­dóttir eru einnig á list­anum. Samkvæmt hátekju­lista Heim­ild­ar­innar frá því í fyrra var Úlfar í 261. sæti yfir tekju­hæstu Íslend­ing­ana á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, með heild­ar­tekjur sem námu rúmri 101 milljón fyrir árið 2022. 

Úlfar starf­aði á árum áður sem for­maður ÍR. 

Jóna hefur orðið þekkt fyrir skrif sín um lífs­stíl og gaf hún meðal ann­ars út bók­ina Frábær eftir fer­tugt árið 2012.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár