Þann 3. júní síðastliðinn var greint frá því að formaður enska fótboltafélagsins Burton Albion Football Club, maður að nafni Ben Robinson, hefði selt alla meirihlutaeign sína í félaginu til Nordic Football Group (NFG). Meðal stórra hluthafa í því félagi eru þrenn íslensk hjón.
Degi eftir að tilkynnt um kaup hópsins á félaginu kynnti það til sögunnar nýjan aðalþjálfara, Mark Robinson. Mark, sem áður starfaði í uppbyggingarstarfi Chelsea, var auk þess þjálfari AFC Birmingham um tíma og þykir að sögn talsverður fengur fyrir Burton Albion.
Þá mun Fleur Robinson, dóttir fráfarandi eiganda, snúa aftur í forstjórastólinn hjá félaginu. En Fleur hefur stýrt velska fótboltaliðinu Wrexham A.F.C. síðustu þrjú árin. Wrexham, sem er í eigu Hollywood leikaranna Ryan Reynolds og Rob McElhenney, hefur færst upp úr E-deild upp í C-deild á síðastliðnum árum og öðlast töluverða frægð í gegnum sjónvarpsþættina Welcome to Wrexham.
Burton Albion spilar í ensku C-deildinni og er staðsett í breska bænum Burton upon Trent. Það hefur ekki verið tilþrifamikið í deildum ofar þeirri sem það leikur í núna, og mátti teljast heppið að halda sér í deildinni þetta tímabilið. Félagið lék tvö tímabil í ensku B-deildinni, Championship deildinni frá 2016-2018, eftir að hafa unnið sig upp úr E-deild enska fótboltans á rúmlega áratug.
Trent heillar
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Íslendingar gera sig gildandi í hluthafahópi knattspyrnuliða á Englandi, og raunar alls ekki í fyrsta sinn sem lið við ána Trent er að hluta eða stórum hluta í eigu Íslendinga. Stoke City FC var í um áratug í eigu og undir stjórn íslenskra fjárfesta, en heimavöllur þess er í borginni Stoke on Trent. Rétt er að taka fram að áin sú arna hefur ansi hreint vítt vatnasvið.
Einna hæstum hæðum náðu þó íslenskir fjárfestar þegar þeir komust yfir enska úrvaldsdeildarliðið West Ham, þegar Björgólfur Guðmundsson eignaðist meirihluta í félaginu um nokkurra missera skeið, fram að bankahruni.
Síðan þá hafa Íslendingar ekki verið áberandi þátttakendur í eigendahópi enskra knattspyrnuliða.
Þrenn íslensk hjón í hópi eigenda
Í félaginu Nordic Football Group sem keypti Burton Albion á dögunum eru ýmsir fjárfestar frá Norðurlöndunum – Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi og Íslandi. Á heimasíðu fótboltafélagsins má sjá lista yfir 18 manns sem eiga verulegan hlut í félaginu. Eru þar á meðal nöfn sex Íslendinga, þrennra hjóna.
Ein þeirra eru Bogi Þór Siguroddsson og Linda Björk Ólafsdóttir, ein ríkustu hjón landsins. Tímaritið Frjáls verslun mat auð hjónanna á 15 milljarða króna í fyrra. En í tímaritinu eru fimmtíu ríkustu Íslendingarnir útlistaðir.
Bogi Þór er aðaleigandi og stjórnarformaður Fagkaupa sem er stærsta heildsala á Íslandi m.t.t. veltu. Fagkaup er móðurfélag Johan Rönning, Sindra og Áltaks meðal annarra fyrirtækja.
Bogi Þór og Linda Björk hafa einkum verið áberandi í kaupum á íslenskum heildsölum. Þau eiga fjárfestingarfélagið Bóksal, sem hefur verið meðal stærstu hluthafa fyrirtækja s.s. Icelandair, Arion banka og Kviku banka. Bóksal var enn fremur stærsti einkaaðilinn sem tók þátt í útboði Bankasýslunnar á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Bogi Þór var í 21. sæti yfir tekjuhæstu Íslendingana á höfuðborgarsvæðinu árið 2022 með yfir hálfan milljarð í heildarárstekjur.
Fyrrverandi fótboltamenn og núverandi fjárfestar
Önnur íslensk hjón í eigendahópnum eru með bakgrunn í fótbolta. Það eru þau Hrafnhildur Eymundsdóttir og Ólafur Páll Snorrason, sem eru bæði fyrrverandi fótboltamenn. Lét Ólafur Páll þar einkum til sín taka á þeim vettvangi, hann starfaði sem atvinnumaður í íþróttinni og á að baki marga Íslandsmeistaratitla.
Ólafur Páll og Hrafnhildur eiga saman OS Eignir sem er fasteigna- og byggingarfélag. Hann er framkvæmdastjóri fyrirtækisins en hún er sölu- og markaðsstjóri þess. Þau hafa enn fremur stundað fjárfestingar í gegnum félag sitt Funaberg.
Árið 2022 var Ólafur Páll með heildarárstekjur upp á yfir 90 milljónir og var því í 318. sæti yfir tekjuhæstu einstaklingana á höfuðborgarsvæðinu.
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og stjórnarformaður Bláa lónssins, og kona hans Jóna Ósk Pétursdóttir eru einnig á listanum. Samkvæmt hátekjulista Heimildarinnar frá því í fyrra var Úlfar í 261. sæti yfir tekjuhæstu Íslendingana á höfuðborgarsvæðinu, með heildartekjur sem námu rúmri 101 milljón fyrir árið 2022.
Úlfar starfaði á árum áður sem formaður ÍR.
Jóna hefur orðið þekkt fyrir skrif sín um lífsstíl og gaf hún meðal annars út bókina Frábær eftir fertugt árið 2012.
Athugasemdir