Framboð Katrínar tvöfalt dýrara en næst dýrasta framboðið

Kostn­aður við fram­boð for­seta­fram­bjóð­end­anna sex sem mæl­ast efst sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum nemur um 117 millj­ónum króna. Katrín Jak­obs­dóttir býst við að kostn­aður við for­seta­fram­boð hennar muni nema 40 millj­ónum króna.

117 milljónir Framboð forsetaframbjóðendanna sex sem mælast mun kosta á bilinu 7 til 40 milljónir króna. Jón Gnatt hefur eytt minnst en Katrín Jakobsdóttir mest.

Katrín Jak­obs­dóttir hefur safnað rúmum 24 millj­ónum króna í kosn­inga­bar­áttu sinni í fram­boði til for­seta Íslands. Ríflega 600 ein­stak­lingar hafa styrkt fram­boð hennar með beinum fram­lögum og 15 lög­að­ilar hafa veitt styrki. Um 20 fyr­ir­tæki hafa styrkt fram­boðið. „En við erum að gera ráð fyrir því að þetta muni kosta meira en þetta, á bil­inu, ég gæti trúað, 40 millj­ónir,“ sagði Katrín í kapp­ræðum Heim­ild­ar­innar sem fram fóru í Tjarn­ar­bíói í gær­kvöldi. 

Eftir líf­legar kapp­ræður lauk umræð­unum á spurn­ingum til fram­bjóð­enda um kostnað við kosn­inga­bar­átt­una hingað til og hvað þau áætla að heild­ar­kostn­aður verði. Framboð Katrínar er kostn­að­ar­sam­ast, um helm­ingi dýr­ara en næstu fram­boð þar á eftir. Halla Hrund Loga­dóttir, Halla Tóm­as­dóttir og Baldur Þór­halls­son gera ráð fyrir að kosn­inga­bar­átta þeirra muni kosta um 20 millj­ónir króna. 

„Þetta eru hátt í 20 millj­ónir, 70 pró­sent frá ein­stak­lingum og restin frá fyr­ir­tækjum eða öðrum aðilum,“ sagði Halla Hrund. Halla Tóm­as­dóttir segir kostnað við hennar fram­boð vera að nálg­ast 20 millj­ónir. „Ég þekki ekki nið­ur­brotið alveg á fram­lögum en ætli við séum ekki að borga helm­ing­inn sjálf og fá helm­ing­inn í fram­lögum frá vinum og vanda­mönnum, mest í litlum fram­lögum.“

Framboð Baldurs hefur kostað 12,4 millj­ónir hingað til en hann áætlar að það muni kosta um 20 millj­ónir. „Þetta eru mest stuðn­ings­menn sem eru að styðja okkur með litlum fram­lögum. Meðal fram­lög í minn kosn­inga­sjóð eru 5.000 krónur.“

Arnar Þór mun borga úr eigin vasa það sem upp á vantar og Jón Gnarr með bola- og hattasölu

Kostn­aður við fram­boð Arnars Þórs Jóns­sonar og Jóns Gnarr er aðeins lægri. Arnar Þór telur að kostn­að­ur­inn nemi um tíu millj­ónum. „Ég vil segja þó að skoð­ana­kann­anir hafa valdið því að stuðn­ings­menn hafa verið feimnir við að styðja menn, þeir hafa talið fram að þessu að það sé á bratt­ann að sækja hjá mér þó ég sé í bull­andi sókn núna. En ég geri ráð fyrir að borga þetta þá sem upp á vantar bara sjálfur. En ég er í sókn og ég borga það sem þarf til að kynna mig.“

Framboð Jóns hefur kostað um sjö millj­ónir króna. „Það eru mest fram­lög frá ein­stak­lingum. Ég veit ekki hversu margir ein­stak­lingar það eru, upp­hæðir mis­jafnar, en engin hærri en 400 hund­ruð þús­und. Svo eru ein­hver fyr­ir­tæki, hver þau eru, hvað þau eru mörg, ég er ekki klár á því, en þau eru ekki svaka­lega mörg. Svo höfum við fjár­magnað okkur með bola og hatta­sölu.“

Samtals nemur kostn­aður fram­bjóð­end­anna sex sem tóku þátt í kapp­ræð­unum í kvöld um 117 millj­ónum króna. Síð­ast þeg­ar sitj­andi for­seti var ekki í fram­boði náðu fjór­ir fram­bjóð­end­ur að á bil­inu 13,7 til 39,1 pró­sent fylgi. Þau eyddu til þess 109 millj­ón­um króna á nú­virði. Þá eyddi Davíðs Oddsson mestu, alls sam­tals tæp­lega 28 millj­ónum króna. Guðni Th. Jóhann­es­son, sem var kjör­inn for­seti, eyddi alls um 25 millj­­ónum króna í sitt fram­­boð á þávirði. Kostn­aður við fram­boð Höllu Tóm­as­dóttur nam um níu millj­ónum króna og er fram­boð hennar nú mun kostn­að­ar­sam­ara. Andri Snær Magnason eyddi um 15 millj­ónum króna í sína bar­áttu. Aðrir fram­bjóð­endur ráku mun ódýr­ari kosn­inga­bar­áttu sem kost­aði ein­ungis nokkur hund­ruð þús­und hver.

Hér má nálg­ast kapp­ræður gær­kvölds­ins; fyrstu 30 mín­útur streym­is­ins eru öllum aðgengi­legar en áskrif­endur geta horft á kapp­ræð­urnar í heild sinni: 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GG
    Guðmundur Guðmundsson skrifaði
    Ef fréttin er lesin þá segir þar:
    1. Katrín hefur safnað 24 milljónum en áætlar að heildarkostnaðurinn verði um 40 milljónir.
    2. „Halla Hrund Logadóttir, Halla Tómasdóttir og Baldur Þórhallsson gera ráð fyrir að kosningabarátta þeirra muni kosta um 20 milljónir króna.“
    3. Það kemur fram að framboð Baldurs hefur lagt út 12 milljónir en hann áætlar að heildarkostnaðurinn verði 20 milljónir.
    4. Hvað með Höllurnar? Er þetta rétt ályktun hjá blaðamanninum?
    5. Halla Hrund virðist nú þegar hafa safnað „hátt í 20 milljónum“. Er söfnun hennar lokið? Er ekki sennilegt að endanlegur heildarkostnaður hennar verði miklu hærri.
    6. Halla Tómasdóttur segir að kostnaðurinn sé nú þegar farinn „að nálgast 20 milljónir“. Eins og í tilviki nöfnu hennar finnst mér ótrúlegt að hún láti hér staðar numið. Sennilega verður endanlegt uppgjör miklu hærra en 20 milljónir.
    7. Þegar öllu er á botninn hvolft virðist framboð Katrínar hafa safnað um 4 milljónum króna meira en Höllurnar tvær hafa hvor um sig safnað. Eru það ekki tölurnar sem blaðamaðurinn ætti að bera saman? Ef blaðamanninn vantar gögn til þess að geta borið áætlaðan heildarkostnað framboðanna saman ætti hann að kalla eftir þeim áður en Heimildin birtir þessa fyrirsögn. Væri það ekki góð blaðamennska?
    1
  • PK
    Páll Kristinsson skrifaði
    Ég er hrædd um að sumir hafi ekki sagt satt.
    3
  • Kristín R. Magnúsdóttir skrifaði
    Eigum við kjósendur að kjósa þann, sem eyðir mestu í baráttuna? Er eitthvað að marka þannig framboð? Er ekki farsællegra að kjósa manneskju, sem eyðir minna?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár