Halda Blessing á lífi svo lengi sem hún er í íslenskri lögsögu

Brott­vísun þriggja kvenna var mótmælt í Leifsstöð í gærkvöldi. Ein þeirra, Blessing, er lífs­hættulega veik og þolandi mansals. Í læknis­vottorði frá sérfræðingi á Land­spítalanum er skrifað að það sé lífs­nauðsynlegt fyrir hana að hafa greiðan aðgang að bráða­þjónustu sérhæfðra kvenna­deilda á sjúkra­húsi. „Þannig er ljóst að brott­vísun mun stefna lífi sjúklingsins í alvarlega hættu komi hún til framkvæmdar á núverandi tímamarki.“

Vörður staðinn um mótmæli.
Vörður stað­inn um mót­mæli. Mynd: Ólafur Ólafsson

Vélin að fara á bilinu ellefu til eitt, sennilega eru þær komnar í vélina,“ segir Sema Erla Serdaroglu, stofnandi Solaris – hjálpar­samtaka fyrir hælis­leitendur og flótta­fólk. „En við erum ekki viss. Það hefur ekki fengist upp hvenær þær fljúga.“

Hún lítur í kringum sig, skimar yfir aðkomu­salinn á Leifsstöð þar sem lögreglu­maður stendur og horfir á mótmælendur með hönnunar­auglýsingar yfir innritunar­borðunum í baksýn. Það er verið að mótmæla nauðungar­flutningi þriggja kvenna frá Nígeríu.

Sema útskýrir að konurnar fari inn um inngang sem þau viti ekki hvar sé. Hún segir þær allar þrjár vera þolendur mansals, þó hafi þær ekki þekkst innbyrðis áður en þær komu til Íslands.

Í bakgrunni er barið taktvisst á trumbur, blístrað og látið klingja í málmi. Stop deportation! Engin manneskja er ólögleg! – er hrópað. Starfs­menn flug­stöðvarinnar láta sem ekkert sé, einstaka farþegi laumar sér framhjá. Einhverjir taka mynd, jafnvel …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár