Læknir segir lífi Blessing ógnað með brottvísun

Læknir á Land­spít­ala segir að það sé ófor­svar­an­legt með öllu út frá lækn­is­fræði­legu sjón­ar­miði að Blessing Newton frá Nígeríu verði vísað úr landi á morgun. Hún sé með sex æxli í legi og lífs­nauð­syn­legt að hún hafi greiðan aðgang að bráða­þjón­ustu. Blessing er nú í gæslu­varð­haldi á Hólms­heiði að sögn lög­manns hennar. Hann segir lækn­is­vott­orðið þess eðlis að ekki sé annað hægt en að fresta fram­kvæmd brott­vís­unar.

Læknir segir lífi Blessing ógnað með brottvísun

Blessing Newton leit­aði skjóls á Íslandi fyrir sex árum seg­ist hafa verið að flýja man­sal. Hún er fædd í Nígeríu en var nokkrum áður en hún flúði til Íslands seld í man­sal þaðan til Ítalíu. Hún flúði þaðan til Íslands árið 2018. 

Nú stendur til að senda Blessing og tvær aðrar níger­ískar konur sem einnig voru þolendur mansals, frá Íslandi á morgun. Að sögn Þor­steins Silva lög­manns Blessing eru þær nú í varð­haldi á Hólms­heiði. 

Brottvísun stefnir lífi í hættu

Í lækn­is­vott­orði sem er dag­sett 11. maí, eða í gær, segir að Blessing hafi und­an­farin ár verið í mati og rann­sóknum á Kvenna­deild Land­spít­al­ans vegna blæð­inga um leggöng og kvið­verkja. Greint hafi verið hjá henni æxli í legi, eitt stórt og fimm minni. Segir þar að umtals­verður vöxtur hafi verið á stærsta æxl­inu síð­ustu tvö ár og að í ómskoðun í lok apríl síð­ast­lið­inn hafi verið stað­fest að um veru­lega stórt æxli í kvið­ar­holi sé að ræða, það nái vel upp fyrir nafla.

Þá segir í lækn­is­vott­orð­inu að lífs­nauð­syn­legt sé að Blessing hafi greiðan aðgang að bráða­þjón­ustu sér­hæfðra kvenna­deilda á sjúkra­húsi. Hún þurfi þétt eft­ir­lit, blóðprufur og blóð­gjöf eða járn­gjafir í æð þegar þess þurfi með. „Eins og staðan er núna er nán­ast öruggt að hún muni þurfa sér­hæfða hjálp vegna æxl­anna í kvið­ar­holi og bara tíma­spurs­mál hvenær hún fær aftur ein­kenni um alvar­legt blóð­leysi og þarf blóð­gjöf án tafar.“ Þetta stað­festi sér­fræð­ingar í kven­sjúk­dóma­lækn­ingum, segir í lækn­is­vott­orð­inu. 

„Brott­vísun mun stefna lífi sjúk­lings­ins í alvar­lega hættu“

Þá segir þar að þannig sé ljóst að „brott­vísun mun stefna lífi sjúk­lings­ins í alvar­lega hættu komi hún til fram­kvæmdar á núver­andi tíma­marki.“ Lækn­ir­inn sem und­ir­ritar vott­orðið starfar á Land­spít­ala og segir í lok bréfs­ins að það sé mat hennar að ,,ófor­svar­an­legt sé með öllu út frá lækn­is­fræði­legu sjón­ar­miði að fram­kvæma brott­vísun við þær aðstæður sem til staðar eru í dag“.

Vistuð á Hólmsheiði

Þor­steinn Silva, lög­maður kon­unnar segir að vott­orðið sé þess eðlis að ekki sé annað hægt en að fresta fram­kvæmd brott­vís­unar enda hafi það verið gert í öðrum málum þar sem sam­bæri­legar aðstæður og vott­orð hafi legið fyrir.

Hann segir að heilsu­far Blessing hafi varið ört versn­andi og að líf hennar sé í hættu. „Hún er gæslu­varð­haldi í fang­els­inu á Hólms­heiði,“ segir Þor­steinn spurður hvar hún dvelji núna.

Hann segir að Blessing og hinar níger­ísku kon­urnar tvær verði að óbreyttu sendar úr landi á morgun, mánu­dag. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MRG
    Margrét Rún Guðmundsdóttir-Kraus skrifaði
    Skelfilegt! Mikið finn ég til með henni. Vonandi var hún ekki send úr landi!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár