Ásdís Rán: „Ég hefði getað orðið læknir“

Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir seg­ist vera að brjóta upp gömul gildi með fram­boði sínu til for­seta. Hún hafi ekki valið starfs­vett­vang sinn vegna þess að aðrir vegir stæðu henni ekki færir. Hún úti­lokar ekki að fólk í valda­stöðum sé sumt kyn­þokka­fullt en það sitji yfir­leitt ekki fyrir á bik­iníi.

Ásdís Rán „Þetta er úrelt að konur geti ekki bæði verið sexí, verið í valdastöðum, geti verið í forsetastöðu og hvað sem er.“

Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir segir að fram­boð sitt til for­seta sé hluti af kven­rétt­inda­bar­áttu í lík­ingu við Druslu­göng­una. Hún segir oft verða sama­sem­merki á milli þess að ef fólk sitji fyrir fák­lætt og sé kyn­þokka­fullt og að fólki þyki við­kom­andi vit­laust. 

Ásdís Rán tók þátt í kapp­ræðum í nýjasta þætti Pressu ásamt for­seta­fram­bjóð­end­unum Ástþóri Magn­ús­syni, Eiríki Inga Jóhanns­syni og Viktori Trausta­syni.

„Ég er að brjóta svo­lítið þessi gömlu gildi. Þið vitið það öll að þetta er svið sem eng­inn býst við að ég labbi inn á og taki þátt í for­seta­kosn­ingum. Þetta er úrelt að konur geti ekki bæði verið sexí, verið í valda­stöðum, geti verið í for­seta­stöðu og hvað sem er,“ segir Ásdís.

Sjálf seg­ist hún hafa valið að vinna á sínu sviði vegna þess að það hæfi henni og hún sé góð í því. „Ég hefði getað orðið rosa­lega góður lög­fræð­ingur. Ég hefði getað orðið læknir. …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár