„Hvar eru okkar drottningarviðtöl?“

Ástþór Magn­ús­son sakar Heim­ild­ina um að hampa völdum for­seta­fram­bjóð­endum á kostnað ann­arra. Í nýjasta þætti Pressu sagði Ástþór rit­stjórn Heim­ild­ar­innar hafa vegið að lýð­ræð­inu með umfjöllun sinni og að fjöl­miðl­inum bæri að end­ur­greiða skatt­greið­endum styrk­féð sem runnið hefði til hans úr rík­is­sjóði.

Ástþór Magnússon, er ekki sáttur með vinnubrögð Heimildarinnar og telur fréttir sem fjölmiðillinn hefur birt um yfirstandandi forsetakosningar vega að lýðræðinu.

For­seta­fram­bjóð­and­anum Ástþóri Magn­ús­syni varð heitt í hamsi í nýjasta þætti Pressu þar sem hann sak­aði þátta­stjórn­endur og rit­stjórn Heim­ild­ar­innar um að hampa sumum for­seta­fram­bjóð­endum fram yfir aðra.

Ásamt Ástþóri mættu for­seta­fram­bjóð­end­urnir Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir, Eiríkur Inga Jóhanns­son, Viktor Trausta­son til þess að ræða stefnu­mál sín og túlkun sína á valdsviðum og hlut­verki for­seta Íslands.

Sam­an­lagt fylgi gest­anna fjög­urra, ásamt Helgu Þór­is­dóttur, mælist 2,4 pró­sent sam­kvæmt nýj­ustu könn­unum. Við upp­haf þátt­ar­ins voru gest­irnir spurðir hversu bjart­sýnir þeir væru á mögu­leika sína á að ná kjöri í kosn­ing­unum sem fram fara eftir rúmar þrjár vikur. 

„Hvernig hafið þið stuðlað að lýðræðislegum kosningum?“

Í stað þess að svara spurn­ing­unni vakti Ástþór máls á kosn­inga­um­fjöll­unum sem birst hafa á síðum Heim­ild­ar­innar und­an­farnar vikur og mán­uði.

Beindi hann þar spjótum sínum sér­stak­lega að við­tölum við fram­bjóð­endur sem birst hafa á for­síðu blaðs­ins. Taldi Ástþór að blaðið hefði farið um suma mjúkum höndum og birt …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Sigurðsson skrifaði
    Að Heimildinni tækist að gera mig sammála Ástþóri er mikið afrek. Sem virðingarverður fjölmiðill ætti svona drottningar framleiðsla að vera annara en ykkar!! Ég hugleiði áframhaldandi áskrift mína hjá Heimildinni!
    0
  • TT
    Týr Thorarinsson skrifaði
    Hvað sem okkur finnst um Ástþór Magnússon er hann að benda á hið augljósa sem blasir við okkur öllum. Þið á Heimildinni ættuð að gera betur.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár