Steinunn Ólína segist ekki bjóða sig fram gegn Katrínu vegna persónulegrar óvildar

Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir sagðist í Pressu fara fram fyrir hönd þeirra sem upplifa valda­leysi gagnvart stjórn­völdum. Taldi hún forseta­kosningarnar vera afar pólitískar að þessu sinni. Þrátt fyrir gagnrýni sína á ríkis­stjórn Katrínar Jakobs­dóttur, ítrekaði Steinunn að framboð hennar væri ekki vegna persónulegra óvildar hennar í garð Katrínu.

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, segir framboð sitt ekki vera persónulegt gegn Katrínu þó svo hún hafi verið gagnrýnin um ríkisstjórn hennar. Hún segir forsetakosningarnar í ár vera afar pólitískar.

Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir, sagðist í nýjasta þætti Pressu, ekki vera bjóða sig fram vegna persónulegrar óvildar í garð Katrínu Jakobs­dóttur.

Á meðan Katrín lá undir feldi um væntanlegt forseta­framboð, birti Steinunn Ólína færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún sagðist ekki treysta Katrínu í embætti forseta Íslands, að fenginni reynslu. Í færslunni lofaði Steinunn að hún myndi bjóða sig fram gegn Katrínu, ákveði hún fari hún fram.

 „Mér fyndist það bera vott um oflæti og að auki fyndist mér hún með því sýna þingi, þjóð og öðrum fram­bjóðendum óvirðingu og það get ég ekki sætt mig við.“

4. apríl, degi áður en Katrín Jakobs­dóttir tilkynnti um framboð sitt, birti Steinunn Ólína ávarp á Facebook-síðu sinni þar hún tilkynnti um framboð sitt. Athygli vakti að í ávarpinu var hvergi minnst á Katrínu. 

Spurð nánar út í forsendurnar að baki framboði sínu og gagnrýni hennar gagnvart Katrínu segist Steinunn Ólína ekki hafa verið gagnrýnin á Katrínu sem einstakling. Hins vegar hafi hún verið gagnrýnin á ríkis­stjórn hennar. 

„Það er eins og það sé einhver skömm af því að fylgjast með því sem gerist í sínu landi og skrifa um það. Ég hafna því. Það er bara hluti af því að vera þjóðfélags­þegn að fylgjast með því sem fer fram og það vill svo til að hún var forsætis­ráðherra í þessari ríkis­stjórn sem ný, er nú breytt. En þetta er ekki vitund persónulegt,“ sagði Steinunn Ólína.

Vill forseta sem er ekki hluti af stjórnmála- og embættismannakerfinu 

Í þættinum sagði Steinunn Ólína að fólk hefði hvatt sig til að fara fram, meðal annars vegna þess að hún stendur fyrir utan stjórn­málin, embættis­manna­kerfið og hafi engra viðskiptalegra hagsmuna að gæta.

Hins vegar hafi hún skoðanir á ýmsum málefnum sem hún sé óhrædd við að tjá opinber­lega um. Þá segist hún bjóða sig fram fyrir fólkið í landinu sem upplifir valda­leysi gagnvart stjórn­völdum. 

„Nú er á Íslandi, það má bara segja að ráðherrarnir haga sér eins og ríki í ríkinu. Á þinginu fara fram leik­sýningar sem enginn skilur um hvað ræðir og svo eru teknar ákvarðanir af ráðherrum og fulltrúar þjóðarinnar í ýmsum flokkum, það er bara gert grín að þeim í stjórnar­andstöðunni þegar þau reyna vinna fyrir sína umbjóðendur og koma þeirra áhyggju­efnum á framfæri.“

Segir kosningarnar í ár vera mjög pólitískar

Steinunn Ólína telur hún að fram­bjóðendur ættu ekki að fara í grafgötur með það að forseta­kosningarnar í ár eru pólitískar.

„Það eru mjög stór mál undir og það skiptir verulegu máli að íslenska þjóðin, og þá er ég ekki að tala um sjálfa mig, íslenska þjóðin veljir sér forseta sem getur staðið sjálf­stæður og lætur ekki grauta í sér af embættis­manna­kerfinu eða stjórn­málunum og getur staðið fast með hagsmunum þjóðarinnar. Og, hagsmunir þjóðarinnar eru mínir hagsmunir.“   

Sjá má þáttinn í heild sinni í spil­aranum hér:

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár