Ráðherra lætur gera úttekt á rekstri RIFF

Lilja Alfreðs­dóttir menningar- og viðskipta­ráðherra ætlar að láta gera óháða úttekt á starfsemi kvikmynda­hátíðarinnar RIFF. Þetta er gert eftir að Heimildin birti upplýsingar um háttsemi eiganda og framkvæmda­stjóra RIFF, Hrannar Marinós­dóttur. Um er að ræða annað skiptið sem opinber aðili gerir úttekt á RIFF.

Óháð úttekt
Óháð úttekt Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og við­skipta­ráð­herra, ætlar að láta gera óháða úttekt á kvik­mynda­há­tíð­inni RIFF. Mynd: Golli

Ó

háð úttekt verður gerð á starfsemi ríkis­styrktu kvikmynda­hátíðarinnar RIFF. Þetta kemur fram í svari frá menningar- og viðskipta­ráðuneyti Lilju Alfreðs­dóttur. Ráðherra hefur ákveðið að ráðast í úttektina eftir að fram hafa komið upplýsingar í Heimildinni frá starfs­mönnum hennar um stjórnunar­stíl eiganda og framkvæmda­stjóra RIFF, Hrannar Marinós­dóttur.

„Úttekt sem þessi er hluti af því að bera ábyrgð á almannafé“
Úr svari mennta- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins

Auk þess kemur fram í svarinu að RIFF hefur fengið samtals 84 milljóna króna styrki frá íslenska ríkinu síðan árið 2018. 

Í svari ráðuneytisins segir orðrétt um þetta: „Ráðuneytið telur mikilvægt að skoða styrkja­umgjörðina reglulega með það að leiðar­ljósi að bæta gagnsæi og gæði [...] Ráðherra hefur því kallað eftir óháðri úttekt á RIFF með það að leiðar­ljósi að gera grein fyrir stöðu hátíðarinnar bæði sem verðmæta­sköpun fyrir ferða­þjónustu og list­greinar og sem …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár