Barist í bökkum velferðarsamfélags

Í Pressu verður fjallað um versn­andi fjár­hags­stöðu fjölda heim­ila á Íslandi og hvað sé til ráða. Ýmsar kann­anir hafa að und­an­förnu sýnt að byrðar fjölda fólks hafa þyngst. Þannig eiga fjögur af hverjum tíu sem eru á vinnu­mark­aði erfitt með að ná endum saman og tveir af hverjum tíu öryrkjum búa við veru­legan efn­is­legan skort eða sára­fá­tækt.

Barist í bökkum velferðarsamfélags

Í vik­unni voru birtar nið­ur­stöður tveggja kann­ana sem sýna að byrðar ýmissa þjóð­fé­lags­hópa eru að þyngj­ast. Í  mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar sem birt var á dög­unum kemur meðal ann­ars fram að leigu­verð hafi hækkað hratt umfram almennt verð­lag. Þá segir í könnun sem Maskína gerði fyrir Viðreisn að verð­bólga og háir vextir hafi mikil eða mjög mikil áhrif á heim­il­is­bók­haldið hjá 70% þjóð­ar­innar. 

Kannanir Vörðu, rann­sókna­stofn­unar vinnu­mark­að­ar­ins, hafa einnig sýnt að það fjölgar hægt og bít­andi í hópi þeirra sem berj­ast í bökkum. Í mars greindi Varða frá því að fjögur af hverjum tíu á vinnu­mark­aði eigi erfitt með að ná endum saman og að ell­efu pró­sent launa­fólks búi við skort á efn­is­legum gæðum. Staða for­eldra hafi versnað milli ára þannig að hærra hlut­fall þeirra hafi ekki efni á grunn­þáttum fyrir börnin sín. 

Þá sýndu nið­ur­stöður könn­unar Vörðu á stöðu fatl­aðs fólks að tæp­lega tveir af hverjum tíu þeirra búa við veru­legan efn­is­legan skort eða sára­fá­tækt. Staða sem var verri í lok árs í fyrra en árið á undan.

Í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar er gert ráð fyrir að greiðslum til örorku­líf­eyr­is­kerf­is­ins verði frestað til hausts­ins 2025.  Frest­unin lækkar þær greiðslur sem öryrkjar hefðu ann­ars fengið á næsta ári um 10,1 millj­arð króna. 

Rætt verður um þessi mál í Pressu í hádeg­inu í dag, föstu­dag. Þing­kon­urnar Hanna Katrín Frið­riks­son, for­maður þing­flokks Við­reisnar og Bryndís Har­alds­dóttir frá Sjálf­stæð­is­flokki, sem situr meðal ann­ars í vel­ferð­ar­nefnd, setj­ast við umræðu­borðið ásamt Kristínu Hebu Gísla­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Vörðu, en hún mun fara yfir þær upp­lýs­ingar sem liggja fyrir um stöðu launa­fólks og stöðu fatl­aðs fólks á Íslandi. 

Pressa er send út í beinni útsend­ingu alla föstu­daga klukkan 12.00 á vefnum Heim­ildin.is 

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár