Fylgi Framsóknar í Reykjavík fjórðungur af kjörfylgi

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem var sig­ur­veg­ari síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga þegar flokk­ur­inn fékk 18,7 pró­sent atkvæða, mælist nú með ein­ungis 4,5 pró­sent fylgi í höf­uð­borg­inni. Hinir flokk­arnir í meiri­hlut­anum hafa hins vegar bætt við sig fylgi á kjör­tíma­bil­inu.

Fylgi Framsóknar í Reykjavík fjórðungur af kjörfylgi
Í brekku Einar Þor­steins­son tók við sem borg­ar­stjóri í byrjun árs. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­fylk­ingin mælist stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík­ur­borg í nýrri könnun Maskínu sem fram­kvæmd var í mars. Fylgi flokks­ins mælist 25,6 pró­sent en skammt á hæla hans kemur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 23,2 pró­sent. Báðir flokkar eru á svip­uðum slóðum og í síð­ustu mæl­ingu sem fram­kvæmd var í nóv­em­ber í fyrra. Sam­fylk­ingin hefur sam­kvæmt þessu bætt við sig 5,3 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum vorið 2022 og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem var stærsti flokk­ur­inn í borg­inni eftir þær, tapað 1,3 pró­sentu­stigum.  

Meiri­hlut­inn í borg­inni, sem skip­aður er Sam­fylk­ingu, Pírötum, Viðreisn og Fram­sókn­ar­flokki, mælist sam­tals með 51,3 pró­sent fylgi sem er minna en þau 55,8 pró­sent sem flokk­arnir í meiri­hlut­anum fengu í síð­ustu kosn­ingum. Þetta er staðan þrátt fyrir að þrír þeirra: Sam­fylk­ingin, Píratar og Viðreisn mælist með meira fylgi nú en þá, eða alls 9,6 pró­sentu­stigum meira.

Ástæðan er gríð­ar­legt fylgis­tap Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem fékk 18,7 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2022 en mælst nú með 4,5 pró­sent fylgi. Framsókn, sem leidd er af Einari Þor­steins­syni núver­andi borg­ar­stjóra, er því að mæl­ast með fjórð­ung þess fylgis sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. 

Eini Flokk­ur­inn sem mælist minni en Framsókn af þeim sem eiga full­trúa í borg­ar­stjórn eru Vinstri græn, en ein­ungis 3,8 pró­sent borg­ar­búa segja að þeir gætu hugsað sér að kjósa þann flokk í einu helsta höf­uð­vígi hans. Það er svipuð nið­ur­staða og kom upp úr kjör­köss­unum 2022, þegar fjögur pró­sent kusu Vinstri græn sem rétt skil­aði flokknum einum borg­ar­full­trúa. 

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist nú rétt yfir kjör­fylgi með 8,5 pró­sent og Flokkur fólks­ins sömu­leiðis, með 6,7 pró­sent fylgi. Mið­flokk­ur­inn, sem náði ekki inn manni í síð­ustu kosn­ingum, mælist nú með 6,5 pró­sent stuðn­ing.

Dagur vinsælli eftir að hann færði sig

Dagur B. Egg­erts­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, hætti sem borg­ar­stjóri í byrjun þessa árs í sam­ræmi við sam­komu­lag þess efnis sem gert var við myndun síð­asta meiri­hluta í borg­inni. Hann hafði þá setið í þeim stóli í næstum ára­tug sam­fleytt og verið umdeildur. Í ágúst síð­ast­liðnum nefndu ein­ungis 13 pró­sent Dag sem þann borg­ar­full­trúa sem þeim fannst hafa staðið sig best á kjör­tíma­bil­inu. Vin­sældir hans virð­ast hafa vaxið skarpt við það að hann færði sig yfir í hlut­verk for­manns borg­ar­ráðs því nú segja 22 pró­sent borg­ar­búa að Dagur sé að standa sig best allra borg­ar­búa. Til sam­an­burðar telja sjö pró­sent að Einar Þor­steins­son, sitj­andi borg­ar­stjóri, hafi staðið sig best og ell­efu pró­sent að Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Eini borg­ar­full­trú­inn sem mælist í námunda við Dag er Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks Íslands, en 19 pró­sent borg­ar­búa telja hana hafa staðið sig best allra borg­ar­full­trúa. Tölur Sönnu hafa líka farið vax­andi á kjör­tíma­bil­inu en í lok fyrra­sum­ars nefndu 14 pró­sent hana sem svar við spurn­ing­unni um hver hefði staðið sig best. 

Færri óánægðir með meirihlutann en áður

Maskína spyr líka reglu­lega um hvort fólki finn­ist meiri­hlut­inn og minni­hlut­inn í Reykja­vík standa sig vel eða illa. Í nýj­ustu könn­unni fækkar þeim sem telja meiri­hlut­ann standa sig illa úr 50 í 44 pró­sent en þeim sem telja hann standa sig vel stendur nán­ast í stað, fer úr 18 í 19 pró­sent. Hlutfall þeirra sem telja meiri­hlut­ann vera að standa sig illa hefur ekki mælst minna á þessu kjör­tíma­bili, sem er nú um það bil hálfnað. Að uppi­stöðu eru það kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks sem telja meiri­hlut­ann standa sig illa. 

Staðan hjá minni­hlut­anum er mjög svipuð og hjá meiri­hlut­anum. Alls segja 44 pró­sent að hann hafi staðið sig illa sem er lægsta hlut­fall sem telur slíkt það sem af er kjör­tíma­bili. Einungis tíu pró­sent segja að minni­hlut­inn sé að standa sig vel sem er mjög svipað hlut­fall og verið hefur í öðrum mæl­ingum á kjör­tíma­bil­inu.

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár