Jón Gunnarsson segir Vinstri græn senda Sjálfstæðisflokki og Framsókn puttann

Þremur dögum eftir að ný rík­is­stjórn, undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar, var kynnt er frið­ur­inn á stjórn­ar­heim­il­inu úti. Ástæðan er, enn og aftur, hval­veiðar. Þing­maður, og fyrr­ver­andi ráð­herra, úr flokki Bjarna efast um að til séu rök til að verja Svandísi Svav­ars­dóttur van­trausti.

Jón Gunnarsson segir Vinstri græn senda Sjálfstæðisflokki og Framsókn puttann
Var í stjórn­inni Jón Gunn­ars­son sat í rík­is­stjórn­inni fram á síð­asta sumar þegar honum var skipt út fyrir Guðrúnu Haf­steins­dóttur. Mynd: Heiða Helgadóttir

Jón Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi ráð­herra í rík­is­stjórn sitj­andi valda­flokka og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýnir Vinstri græn harð­lega í færslu sem hann birti á Facebook í dag, þremur dögum eftir að rík­is­stjórn­ar­starf flokks hans, Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks var end­ur­nýjað undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar. Þar skrifar skrifar Jón: „Jæja það fer vel af stað sam­starfið í nýrri rík­is­stjórn. Forysta VG sendir sam­starfs­mönnum sínum í Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki putt­ann.“

Tilefnið er for­síðu­frétt Morg­un­blaðs­ins í morgun þar sem Kristján Loftsson, fram­kvæmda­stjóri Hvals, segir útséð með hval­veiðar í sumar þar sem mat­væla­ráðu­neytið, undir stjórn Vinstri grænna, svari ekki umsóknum fyr­ir­tæk­is­ins um veiðar á lang­reyðum. Þar er haft eftir Krist­jáni að hann telji aug­ljóst „að mat­væla­ráðu­neytið, und­ir for­ystu ráð­herra Vinstri-grænna, skeyt­ir engu um niður­stöðu umboðs­manns Alþing­is og held­ur skipu­lega áfram í sinni veg­ferð að reyna að leggja at­vinnu­starf­sem­ina af, þótt hún bygg­ist á lög­um.“

Jón hefur alla tíð verið afar gagn­rýnin á ákvörðun Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þáver­andi mat­væla­ráð­herra, um að fresta hval­veiðum rétt áður en þær áttu að hefj­ast í fyrra­sumar. Ákvörðun sem umboðs­maður Alþingis komst síðar að þeirri nið­ur­stöðu um að væri ólög­leg. Allt stefndi í kosið yrði um van­traust á Svandísi 22. jan­úar síð­ast­lið­inn vegna máls­ins og óljóst var um stuðn­ing ýmissa þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks, meðal ann­ars Jóns. Áður en atkvæða­greiðslan fór fram fór Svandís hins vegar í veik­inda­leyfi eftir að hafa greinst með krabba­mein. Hún sneri aftur til starfa í byrjun mán­aðar, rétt áður en Katrín Jak­obs­dóttir til­kynnti for­seta­fram­boð.

Í upp­stokk­aðri rík­is­stjórn færði Svandís sig til í inn­við­a­ráðu­neytið og Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, flokks­fé­lagi hennar, tók við mat­væla­ráðu­neyt­inu. Enn hefur ekki verið gefið út leyfi til hval­veiða og vitað er að vilji er til þess innan ráðu­neyt­is­ins að gefa slíkt ein­ungis út til eins árs í senn, verði það yfir höfuð gefið út. Svo lít­ill fyr­ir­sjá­an­leiki gerir starf­sem­ina, að mati Hvals, í raun óstarf­hæfa.

Hótar að verja Svandísi ekki vantrausti

Jón vitnar í upp­hafi færslu sinnar í orð sem faðir hans sagði einu sinni við sig. „Hann sagði, „mundu það Nonni minn að þegar lýð­ræðið og sós­í­al­ism­inn mæt­ast verður lýð­ræðið að víkja".   

Hann gagn­rýnir svo fyrstu daga end­ur­nýj­aðs sam­starfs og segir Vinstri græn vera að senda hinum stjórn­ar­flokk­unum putt­ann. „Það er eins gott fyrir fólk í þessu landi að láta sér ekki detta í hug að starfa við atvinnu­greinar sem eru ekki þókn­an­legar stjórn­mála­fólki úr þessum flokki og öðrum sem hafa lýst vilja til að banna starf­semi sem ekki er þókn­an­leg þeirra hug­mynda­fræði. Það eru margir sem enn og aftur missa tæki­færi til að fara á ver­tíð og afla upp­grips tekna fyrir sig og sína. Venju­legt fólk sem var búið að reikna með þessum tekjum til að borga af íbúð­inni, safna í útborgun og greiða fyrir námið sitt hér­lendis og erlendis, svo eitt­hvað sé nefnt.“

Auk þess sé þetta ólög­mæt ákvörðun og fram­kvæmd stjórn­valds. „En það skiptir þetta fólk engu máli, allt víkur fyrir þeirra sjón­ar­miðum og póli­tískum skoð­unum þess. Hvaða rök eru til staðar til að þing­menn verji ráð­herra van­trausti sem fer fram með slíka vald­níðslu?“

Bjarni í forsæti svo hann gæti „smalað villiköttum“

Fyrir liggur að Flokkur fólks­ins ætlar að leggja fram van­traust­s­til­lögu á Svandísi að nýju og vitað er að margir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks vilja ekki verja hana gagn­vart því. Í nýjasta tölu­blaði Heim­ild­ar­innar er ítar­leg grein­ing á því sem gekk á bak­við luktar dyr í þeim skamm­vinnu stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður sem fóru fram um síð­ustu helgi, og á fyrstu dögum lið­innar viku. Þær sneru ekki um mál­efna­vinnu, heldur því að tryggja að það næð­ist stjórn­festa til að klára kjör­tíma­bilið. Til þess þyrfti að lægja óánægju­öldur innan stjórn­ar­innar og falla flokk­anna sem að henni standa til að toga alla í sömu átt. Sú óánægja hefur fyrst og síð­ast verið innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hjá Jóni og fleirum. 

Við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar innan rík­is­stjórn­ar­innar gripu til lýs­ingar Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, sem var for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna, á árunum 2009 til 2013, þegar þeir hafa lýst stöð­unni gagn­vart Sjálf­stæð­is­flokknum. Jóhanna sagði á þeim tíma að sam­starfið við Vinstri græn væri eins og að smala villi­köttum. Nú væru villi­kett­irnir hins vegar í Sjálf­stæð­is­flokknum. Bjarni yrði að ná að smala þeim saman. „Það getur ekki lið­ist að for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki hemil á sínu fólki,“ sagði einn við­mæl­enda Heim­ild­ar­innar innan rík­is­stjórn­ar­innar. 

End­ur­nýjað rík­is­stjórn­ar­sam­starf myndi ekki halda nema að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gengi í takt við rík­is­stjórn­ina. Það myndi ekki ger­ast nema að for­maður flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son, yrði verk­stjóri. For­sæt­is­ráð­herra. Erfiðara væri fyrir sjálf­stæð­is­menn að gagn­rýna stjórn eigin for­manns en stjórn sem flokk­ur­inn sæti í undir for­sæti ann­ars leið­toga. Því voru ekki mikil átök um það að Bjarni tæki, öðru sinni á sínum ferli, við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

Engin eining innan þingflokks um samstarf

Því fór þó fjarri að ein­ing væri innan þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks um hið end­ur­nýj­aða sam­starf.

Á þing­flokks­fundi í Sjálf­stæð­is­flokknum síð­ast­lið­inn þriðju­dag þar sem afgreidd var til­laga um stjórn­ar­sam­starf „í breiðu sam­hengi“ urðu átök og heitar umræður. Þar kom skýrt fram að sumir þing­menn flokks­ins vildu alls ekki halda áfram sam­starfi við Vinstri græn og þeir komu þeirri óánægju á fram­færi. Vara­for­maður flokks­ins, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ekki síst. En líka þing­menn sem hingað til hafa fylgt for­mann­inum „eins og skugg­inn“ – til að mynda ofan­greindur Jón Gunn­ars­son.

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • K Hulda Guðmundsdóttir skrifaði
    Eftirfarandi tilvitnun í „Nonna minn“ er leikhús fáránleikans, því orð hans gætu átt við útdeilingu á fiskveiðiauðlindinni með örlítilli textabreytingu (innan hornklofa):

    „Það er eins gott fyrir fólk í þessu landi að láta sér ekki detta í hug að starfa við atvinnugreinar sem eru ekki þóknanlegar stjórnmálafólki úr þessum flokki [Sjálfstæðisflokki] og öðrum sem hafa lýst vilja til að banna starfsemi [þjóðareign kvóta] sem ekki er þóknanleg þeirra hugmyndafræði. Það eru margir sem enn og aftur missa tækifæri til að fara á vertíð og afla uppgrips tekna fyrir sig og sína. Venjulegt fólk sem var búið að reikna með þessum tekjum til að borga af íbúðinni, safna í útborgun og greiða fyrir námið sitt hérlendis og erlendis, svo eitthvað sé nefnt.“

    „Nonni minn“ og faðir hans skrumskæla hornsstein okkar samfélags: lýðræðið.
    0
  • Helgi Hauksson skrifaði
    Varðandi „atvinnufrelsi“ til hvalaveiða, þá er það einvörðungu meint frelsi og leyfi til eins manns, Kristjáns Loftssonar til að stunda hvalveiðar — í landi þar sem nánast öll störf eru háð leyfum, réttindum og skilyrðum. Enginn annar en Hvalur hf og Kristján Loftsson á minnsta möguleika til að fá leyfi til veiða á stórhvölum.

    — Á Íslandi mega menn ekki hefja atvinnurekstur um að klippa hár, taka ljósmyndir eða baka bollur nema hafa iðnréttindi til þess, hvað þá að drepa dýr í atvinnurekstri.

    Jafnvel meindýra-eyðar þurfa leyfi og réttindi.

    Eða hvaða sláturhús er ekki háð leyfum? — Má einu sinni reka mjólkurbú nema með réttum leyfum og réttum prófum? — OG jafnvel ekki þá?

    Mestur fjöldi sérhæfðra starfa er lögverndaður og óheimill öðrum en sárafáum.

    — Svo það að Kristján Loftsson þurfi leyfi og að uppfylla skilyrði til að hafa atvinnurekstur um að drepa hvali er ekkert nema eins og svo gott sem allir aðrir þurfa um sinn atvinnurekstur.

    Þannig einfaldlega er „atvinnufrelsið“ á Íslandi. Það er háð miklum takmörkunum fyrir alla.
    3
  • Olof Sverrisdottir skrifaði
    Ég held að Kristján ætti bara að fara á ellilífeyri í stað þess að berjast þetta ..orðin 81 s árs og fattar ekki að tímarnir breytast. Þetta er ekki atvinnugrein sem hefur arðvæn áhrif fyrir þjóðina. Heldur akkúrat öfugt. Hann gæti kannski stofan Hvalaskoðunar fyrirtæki.
    9
  • ÁH
    Ásmundur Harðarson skrifaði
    Smala köttum sagði jóhanna, ekki villiköttum. Það var svo ónefndur einstaklingur sem upp frá því kallaði þessa þingmenn villiketti á vinstrivaktin.is. Og það komst á flug og lifir enn.
    2
  • Egill Arnaldur Ásgeirsson skrifaði
    Rétt hjá Jóni og Kristjáni. Best að hafa bara kosningar og leyfa þjóðinni að ákveða þetta.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár