Flestir vilja að Katrín verði næsti forseti

Samkvæmt nýrri könnun Maskínu er Katrín Jak­obs­dóttir, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, sig­ur­strang­leg­asti for­seta­fram­bjóð­and­inn. Þar á eftir kemur Baldur Þór­halls­son.

Flestir vilja að Katrín verði næsti forseti
Katrín Jak­obs­dóttir til­kynnti um fram­boð sitt til for­seta Íslands á föstu­dag­inn. Mynd: Golli

Tæpur þriðj­ungur svar­enda nýrrar könn­unar Maskínu segj­ast myndu kjósa Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra ef kosið væri til for­seta núna. Var hún vin­sælust þeirra fram­bjóð­enda sem afstaða var tekin til. 

Næst­vin­sælastur er Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, en tæp 27% sögð­ust vilja kjósa hann. Á eftir honum koma Jón Gnarr leik­ari, Halla Tóm­as­dóttir for­stjóri og Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri.

Könnunin fór fram 5.-8. apríl. Svar­endur voru 819. 

Katrín er áber­andi vin­sælust meðal elstu kyn­slóð­ar­innar en flestir þeir sem völdu hana voru sex­tugir eða eldri. Vin­sældir hennar fara minnk­andi eftir því sem svar­end­urnir yngj­ast. Jón Gnarr sækir, ólíkt Katrínu, mest fylgi sitt í ald­urs­hóp­inn 18-29 ára en lang­minnst í hóp eldri en 60 ára. 

93,1% þeirra sem sögð­ust myndu kjósa Vinstri græna ef kosið væri til Alþingis í dag segj­ast myndu kjósa Katrínu. Kjós­endur Pírata voru ólík­leg­astir til að kjósa hana. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (10)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Sigurðsson skrifaði
    Nei takk!!!
    0
  • Helgi Hauksson skrifaði
    Satt að segja finnst mér merkilegast við þessa könnun sem gerð er þegar allar fréttir og umfjöllun snérust um Katrínu Jakobsdóttur og fyrirætlanir hennar, hve hátt fylgi Baldurs þórhallssonar slagar í hennar. Katrín er svo að auki bersýnilega uppáhald lykil fréttmanna svo sem Heimis Más á Stöð tvö, svo öll umfjöllunin var mjög jákvæð i hennar garð — Samt munar ekki nema nokkrum prósentum á þeim. Það mun harna í dalinn fyrir Katrínu núna og spurning hvort hún haldi fylgi umfram Baldur við meira jafnræði í umfjöllun og athygli.
    Þessi slagsíða fréttafólksins sést vel á þessari fyrirsögn Heimildarinnar. „Flestir vilja að Katrín verði næsti forseti“?
    Hvað merkir orðið „flestir“? — Er þriðjungur flestir? Eða er meirihluti flestir?
    Skv Málfarsbanka Árnastofnunar merkir „Flestir“ mikinn meirihluta eimhvers.
    Hér notar fréttamaður það um minna en þriðjung þegar sá næsti er samt með 27% og mismunurnn því einungis 6%.
    Orðrétt segir í Málfarsbanka Árnastofnunar: „Þegar orðið flestir er notað er átt við mikinn meirihluta einhvers.„
    https://malfar.arnastofnun.is/grein/70180
    Þetta varpar því ljósi á mikla slagsíðu fréttamiðilsins við þessa umfjöllun í þágu Katrínar og ímyndasköpunar hennar sem sjálfkrafa val kjósenda á henni fyrir forseta.
    2
  • Ég held að Katrín muni fara með þetta embætti með sóma. Ef Baldur væri ekki býst ég við að stór hluti hans styðjenda myndi kjósa Katrínu eða Höllurnar tvær. Jón Gnarr fær ekki mitt atkvæði. Ég vil forseta sem býr ekki til grínþátt um embættið eftir forsetatíð sína
    0
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Að skipta um hest í miðri á hefur sjaldan þótt góð ráðstöfun.
    Er ekki viss um að Katrínu takist það.
    2
  • Heimir Jónsson skrifaði
    Flestir vilja Katrínu? Tæp 70% vilja alls ekki Katrínu
    5
  • BK
    Breki Karlsson skrifaði
    Þetta er skelfileg niðurstaða
    4
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hver er ábyrgur fyrir þessari könnun ?
    Ég fékk að taka þátt , og uppsetning á henni var ekki eins og áður ?
    2
  • Kári Jónsson skrifaði
    Er elsta kynslóðin í samfélaginu okkar orðin brjáluð, enginn stjórnmálamaður hefur farið jafn illa með ykkar kynslóð og einmitt Katrín Jak.
    9
    • SÍF
      Sveinn í Felli skrifaði
      Eldri kynslóðir í flestum samfélögum hafa verið að kjósa yfir okkur allskyns niðurrifsöfl; Erdogan, Orban, Brexit, Trump, og ýmislegt fleira í þeim dúr.
      Stóra spurningin er hvort það sé auðveldara að afvegaleiða eldra fólk, til dæmis á samfélagsmiðlum eða í gegnum skekkta miðla á borð við Breibart og Fox?
      4
    • SSS
      Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
      @Sveinn í Felli
      Gott innlegg hjá þér.
      En þú hefðir mátt hafa útvarp sögu með í upptalningunni á skekktum miðlum.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár