Freyja Steingrímsdóttir nýr framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands

Nýr fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Íslands er Freyja Stein­gríms­dóttir. Fyrrum for­manni félags­ins var sagt upp fyrr á árinu vegna trún­að­ar­brests milli hans og stjórnar sem hefði verið við­var­andi um nokk­urra mán­aða skeið.

Freyja Steingrímsdóttir nýr framkvæmdastjóri Blaðamannafélags Íslands
Freyja Stein­gríms­dóttir nýr fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Íslands Mynd: Blaðamannafélag Íslands

Nýr fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags Íslands er stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Freyja Stein­gríms­dóttir. Hún hefur reynslu af hags­muna­bar­áttu og starf­semi stétt­ar­fé­laga, sam­skiptum við fjöl­miðla, stefnu­mótun, stjórn­sýslu og ýmis konar mál­efna­her­ferðum. Hún mun hefja störf í lok maí. Freyja var áður sam­skipta­stjóri BSRB og fyrir það vann hún á Alþingi sem aðstoð­ar­maður Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. 

Á vef Blaða­manna­fé­lags­ins segir að „stjórn BÍ tók ein­róma ákvörðun um ráðn­ing­una. Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir for­maður segir: „Við erum stolt og ánægð að fá Freyju til liðs við okkur enda kemur hún inn með mik­il­væga reynslu meðal ann­ars af hags­muna­bar­áttu og starf­semi stétt­ar­fé­laga. Hún hefur stýrt stórum verk­efnum fyrir BSRB og mun reynsla hennar og þekk­ing af íslenskum stjórn­málum og stjórn­sýslu nýt­ast vel. Auk þess hefur hún stýrt stórum mál­efna- og vit­und­ar­vakn­ing­ar­her­ferðum bæði inn­an­lands og erlendis, nú síð­ast í tengslum við Kvenna­verk­fallið 2023 sem vakti heims­at­hygli. Við hlökkum til að starfa með henni að því að efla blaða­mennsku og fjöl­miðlun, standa vörð um hags­muni stétt­ar­innar og efla fag­legt starf innan félags­ins.““

Sagt upp vegna trúnaðarbrests

Hjálmari Jónssyni, sem verið hafði fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags­ins frá árinu 2023, var sagt upp í jan­úar fyrr á þessu ári. Sú ákvörðun var ein­róma sam­þykkt af stjórn félags­ins vegna trún­að­ar­brests milli hans og stjórnar sem hafi verið við­var­andi um nokk­urra mán­aða skeið. 

Hjálmar skrif­aði grein, sem birt­ist á Vísi, eftir upp­sögn­ina þar sem hann sagði að ágrein­ingur hans við núver­andi for­mann Blaða­manna­fé­lags­ins sner­ist ein­ungis um meint brot hennar á skatta­lögum og skort á því að gera hreint fyrir sínum dyrum þegar fjöl­miðlar hafi gengið eftir skýr­ingum. „Það er eng­inn trún­að­ar­brestur okkar í milli heldur er það skylda mín sem fram­kvæmda­stjóra Blaða­manna­fé­lags Íslands að standa vörð um orðstír félags­ins.“

Hjálmar sagði að end­an­lega hafi soðið upp úr milli hans og for­manns­ins vik­una áður þegar hún vildi fá skoð­un­ar­að­gang að reikn­ingum félags­ins. „Ég hafn­aði því alfarið, enda full­kom­lega óeðli­legt að mínu mati. Stjórn og for­maður geta kallað eftir öllum upp­lýs­ingum úr bók­haldi félags­ins, en við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar um hverjir fá end­ur­greiddan sál­fræði­kostnað eða eru að glíma við krabba­mein, svo dæmi séu tekin, koma þeim að sjálf­sögðu ekki við. Stjórn styrkt­ar­sjóðs BÍ kjörin á aðal­fundi afgreiðir þau mál og er bundin ströngum trún­aði. Að veita öðrum aðild að slíkum per­sónu­grein­an­legum upp­lýs­ingum væri lög­brot og trún­aður um þessar upp­lýs­ingar þarf að vera haf­inn yfir allan vafa.“

Trúnaðarbrestur viðvarandi um nokkurra mánaða skeið

Í yfir­lýs­ingu sem stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands sendi frá sér eftir að grein Hjálmars birt­ist kom fram að hún væri til­komin vegna trún­að­ar­brests milli hans og stjórnar sem hefði verið við­var­andi um nokk­urra mán­aða skeið.

Stjórnin var ein­róma um það í fram­hald­inu að óhjá­kvæmi­legt væri að binda enda á ráðn­ing­ar­sam­band Hjálmars og félags­ins. „Stjórn áréttar að full­kom­lega eðli­legt er að for­maður, og eftir atvikum fleiri stjórn­ar­menn, hafi skoð­un­ar­að­gang að reikn­ingum félags­ins. Í því felst nauð­syn­legt aðhald enda segir í lögum félags­ins að stjórn hafi yfir­um­sjón með starf­semi félags­ins og beri á henni fulla ábyrgð. Almennt fer stjórn enda með æðsta vald í mál­efnum félags­ins á milli félags­funda. Fram­kvæmda­stjóri starfar svo í umboði stjórnar og sam­kvæmt þeim fyr­ir­mælum og stefnu sem stjórn ákveður. Svo stjórn geti sinnt hlut­verki sínu og fylgst með því að rekstur sé í réttu horfi þarf hún að hafa aðgang að bók­haldi og banka­yf­ir­litum. Stjórn­ar­menn eru að sjálf­sögðu bundnir sama trún­aði og fram­kvæmda­stjóri um per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar sem kann að vera að finna í bók­haldi eða banka­gögnum félags­ins.“

Óháður bókari rýnir í reikninga félagsins

Stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands lét óháðan bók­ara rýna til­tekin atriði í fjár­reiðum félags­ins síð­ustu tíu ár. Nið­ur­staða hans liggur nú fyrir og hefur verið send til end­ur­skoð­un­ar­skrif­stof­unnar KPMG sem mun skila stjórn félags­ins skýrslu um þær eins fljótt og auðið er. Stjórnin ætlar svo að kynna nið­ur­stöður þeirrar skýrslu fyrir félags­mönnum eigi síðar en á aðal­fundi Blaða­manna­fé­lags Íslands, en hann verður hald­inn 16. apríl næst­kom­andi. Þetta kom fram í bréfi sem Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins, sendi félags­mönnum í mars. 

Þar segir enn fremur að gagn­ger end­ur­skoðun hafi farið fram á umgjörð og reglu­verki í kringum starf­semi félags­ins. „Stjórn BÍ hefur sam­þykkt að leggja fyrir aðal­fund til­lögur að breyt­ingum að lögum félags­ins sem kynntar verða félags­mönnum sér­stak­lega í aðdrag­anda aðal­fundar. Þá hafa stjórnir sjóða félags­ins einnig end­ur­skoðað reglu­gerðir og úthlut­un­ar­reglur til að auka skýr­leika og gagn­sæi í því hvernig fjár­munum sjóð­anna er úthlutað. Þessar til­lögur verða sömu­leiðis lagðar fyrir aðal­fund og kynntar félags­mönnum í aðdrag­anda hans.“

Þessar breyt­ingar koma í kjöl­far þess að stjórn Styrkt­ar­sjóðs Blaða­manna­fé­lags­ins bók­aði á á fundi sínum síð­ast­lið­inn þriðju­dag að hún veki athygli á því og árétti „að í sam­ræmi við reglu­gerð sjóðs­ins eiga þeir einir rétt á greiðslu úr sjóðnum sem greitt hafa í sjóð­inn í að minnsta kosti síð­ast­liðna 6 mán­uði. Réttur til greiðslu úr sjóðnum fyrn­ist á 6 mán­uðum eftir að greiðslum í sjóð­inn er hætt.“


Blaða­menn Heim­ild­ar­innar eru félagar í Blaða­manna­fé­lagi Íslands
Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár