Varðberg fær fjórar milljónir frá utanríkisráðuneytinu

Félag um vest­ræna sam­vinnu og alþjóða­mál hefur gert styrkt­ar­samn­ing við ríkið svo það geti haldið ráð­stefnu, kynn­ingar og fræðslu vegna afmælis stofnsátt­mála NATO.

Varðberg fær fjórar milljónir frá utanríkisráðuneytinu
Kynning Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra kynnti áherslur sínar í starfi fyrir félags­mönnum í Varð­bergi á fundi sem var hald­inn í nóv­em­ber í fyrra, en Bjarni tók við emb­ætt­inu í októ­ber sama ár. Mynd: Utanríkisráðuneytið

Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ákveðið að gera sam­starfs­samn­ing við Varðberg, félag um vest­ræna sam­vinnu og alþjóða­mál, sem snýst um að félag­inu er falið að standa að ráð­stefnu­haldi, kynn­ingu og fræðslu á sviði öryggis- og varn­ar­mála í tengslum við 75 ára afmæli stofnsátt­mála Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, NATO. Í til­kynn­ingu á vef ráðu­neyt­is­ins vegna þessa var haft eftir Bjarna Bene­dikts­syni utan­rík­is­ráð­herra að sam­starf þess við Varðberg til þessa hefði stuðlað að upp­lýstri umræðu og fræðslu um öryggis- og varn­ar­mál í gegnum tíð­ina. „Það er mik­il­vægt að efla upp­lýsta umræðu um gildi banda­lags­ins á þessum tíma­mótum og stuðla að skoð­ana­skiptum um öryggis- og varn­ar­mál Íslands.“

Heim­ildin óskaði eftir upp­lýs­ingum um hversu langur samn­ing­ur­inn er, hvað hann kosti utan­rík­is­ráðu­neytið og hver hafi átt frum­kvæði að gerð hans. Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að samn­ing­ur­inn er til eins árs og sam­kvæmt honum greiði það Varð­bergi fjórar millj­ónir króna á samn­ings­tím­anum til að standa straum af kostn­aði við til­tekna við­burði. Einu við­burð­irnir sem er sér­stak­lega til­greindur í svar­inu er afmæl­is­ráð­stefna sem haldin verður á kom­andi mán­uðum  í sam­starfi ráðu­neyt­is­ins, Alþjóða­mála­stofn­unar og Varð­bergs „og funda og fyr­ir­lestra um meðal ann­ars konur og varn­ar­mál, net­ör­yggi og ytra öryggi og innri ógnir.“

Ráðu­neytið segir að frum­kvæðið að gerð samn­ings­ins hafi verið sam­eig­in­legt. 

Varð til við samruna

Varðberg varð, í núver­andi mynd, til í des­em­ber 2010 þegar Samtök um vest­ræna sam­vinnu, stofnuð 1958, og gamla Varðberg, stofnað 1961. runnu saman í eitt félag. Á heima­síðu félags­ins segir að til­gangur Varð­bergs sé meðal ann­ars sá að beita sér fyrir umræðum og kynn­ingu á alþjóða­málum, einkum þeim þáttum þeirra sem snúa að öryggis- og varn­ar­málum á norð­ur­hveli jarðar og að efla skiln­ing á gildi lýð­ræð­is­legra stjórn­ar­hátta. Þá vinnur félagið að kynn­ingu á sam­starfi og menn­ingu þjóða, sér­stak­lega störfum og stefnu Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og er í sam­starfi við hlið­stæð félög erlendis.

Núver­andi for­maður og fram­kvæmda­stjóri Varð­bergs er Davíð Stef­áns­son, sem var annar rit­stjóri Frétta­blaðs­ins um nokk­urra mán­aða skeið á árunum 2019 til 2020. Aðrir í stjórn eru Freyja Stein­gríms­dóttir, Gustav Pét­urs­son, Karítas Rík­harðs­dóttir, Kristján Johann­es­sen, Magnús Örn Gunn­ars­son og Sóley Kaldal.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár