Eignuðust sjö börn á tíu árum

For­seta­fram­bjóð­and­inn Guðni Þór Þránd­ar­son býr í sum­ar­bú­stað við Þjórsá ásamt eig­in­konu sinni og sjö börnum. Þau eru bæði með ein­hverfu og ADHD, og hann bendir á að sjálfur Thomas Jeffer­son, þriðji for­seti Banda­ríkj­anna, sé tal­inn hafa verið með ein­hverfu.

Eignuðust sjö börn á tíu árum
Marie Lega­telois og Guðni Þór Þránd­ar­son ásamt sex af börn­unum sjö. Mynd: Aðsend

Guðni Þór Þránd­ar­son til­kynnti form­lega um fram­boð sitt til for­seta Íslands á fimmtu­dag á Aust­ur­velli. Hans helsta mark­mið, nái hann kjöri, er að vinna gegn fákeppni og spill­ingu. Það vill hann til að mynda gera með því að skatt­leggja „upp í topp“ hagnað af auð­lindum þjóð­ar­innar, en hann segir skatt­lagn­ingu vera öfl­ug­asta stjórn­tækið. 

„Ég mun tala fyrir sann­reyndri aðferð til að mæla ein­ok­un­ar­hagnað af auð­lindum okkar og mörk­uðum, skatt­leggja hann upp í topp og leggja niður fátækra­skatta eins og launa­skatt og virð­is­auka­skatt,“ segir Guðni.

Marie Lega­telois, eig­in­kona hans, er stór hluti af fram­boð­inu, svo stór að í til­kynn­ingu frá þeim er talað um fram­boð „til for­seta­hjóna Íslands“.

Joðbætt víkingasalt

Guðni er 35 ára. „Ég hef mik­inn áhuga á heim­speki og því sem finnst í heim­inum. Lærði nátt­úru­fræði í MR, efna­fræði í HÍ, var eitt ár í lækn­is­fræði og er með einka­flug­manns­próf. Eftir útskrift kynnt­ist ég Marie Lega­telois í fugla­rann­sóknum á Látra­bjargi og hún útskrif­að­ist með M.Sc. í haf- og strand­svæða­stjórnun frá Háskóla­setri Vest­fjarða. Við giftum okkur á fæð­ing­ar­stað Jóns Sig­urðs­sonar, Hrafns­eyri við Arn­ar­fjörð, árið 2014. Við höfum mest unnið að upp­bygg­ingu fram­leiðslu nýrrar teg­undar af salti sem við teljum að muni hjálpa mörgu fólki,“ segir hann. 

Um er að ræða joð­bætt salt sem þau hafa kallað „Viking Silver – the Super Salt“ og stóðu til að mynda fyrir söfnun á Karolina Fund fyrir níu árum til að fjár­magna fram­leiðsl­una en verk­efnið hefur verið í lægð síð­ustu fjögur ár. Saltið fram­leiddu þau með því að brenna þara, en það var joðið sem fyrst vakti áhuga Guðna. „Joð er sér­stak­lega mik­il­vægt fyrir konur, það á að minnka líkur á brjóstakrabba­meini, eggja­stokka­krabba­meini og er mik­il­vægt fyrir frjó­semi og upp­vöxt fóst­urs,“ segir hann.

Vill stuðning fyrir verðandi mæður

Guðni á ýmis­legt sam­eig­in­legt með sitj­andi for­seta, Guðna Th. Jóhann­essyni. Báðir eru þeir kvæntir konu af erlendum upp­runa, en Marie er frönsk. Þá eiga þeir einnig fjölda barna, en Guðni Þór og Marie eiga saman sjö börn. Yngsta barnið verður árs gam­alt á þessu ári, það elsta verður 10 ára í júní, en hin fimm börnin eru 2ja, 4ra, 5, 7 og 8 ára gömul. 

„Við lítum á þau sem fram­hald af ást okkar á hvort öðru“

„Okkur finnst ótrú­lega verð­mætt að eiga þessi börn, að leyfa þeim að koma. Við höfum ekki hindrað það hingað til. Við lítum á þau sem fram­hald af ást okkar á hvort öðru, að við séum að byggja eitt­hvað upp. Við eigum erfitt með að tengj­ast öðru fólki en eigum gott með að tengj­ast þeim,“ segir hann. 

Á vef Alþingis má sjá umsögn sem Guðni skrif­aði árið 2019 um frum­varp sem mið­aði að því að rýmka lög um þung­un­ar­rof, en hann lagð­ist þar gegn slíku. „Við skrif­uðum grein­ina saman, eða meira konan mín. Það er ólík­legt að við séum bein­línis ósam­mála neinu þar núna en það sem ég myndi vilja leggja áherslu á í dag er að koma í veg fyrir að konur hafi áhuga á fóst­ur­eyð­ingum; að það þurfi að vera meiri stuðn­ingur við konur til að eign­ast börnin, hvort sem þær velja að gefa þau í fóstur eða sjá um þau sjálfar,“ segir Guðni. Aðspurður seg­ist hann þó ekki sjá fyrir sér að tala gegn þung­un­ar­rofi ef hann yrði for­seti: „Nei, for­seti hefur ekki þetta vald. Hann er bara að vinna að vilja þjóð­ar­innar,“ segir hann. 

Líður ekki vel í þéttbýli

Ekkert af börnum þeirra hafa farið á leik­skóla, bæði vegna fjár­hags­stöðu þeirra Guðna og Marie en einnig því þau hafa sjálf viljað upp­fræða þau. Þá eru eldri börnin að hluta í heima­skóla en sækja verk­lega kennslu í hefð­bundnum grunn­skóla. 

Guðni segir þau Marie bæði vera með ein­hverfu og ADHD. Þó það hafi ekki síst verið vegna fjár­skorts sem þau búa í sum­ar­bú­stað með börnin sjö, nánar til­tekið í Flóa­hreppi við Þjórsá, þá fari afar vel um þau þar: „Okkur líður ekki vel í þétt­býli,“ segir hann. Embætti for­seta fylgja óhjá­kvæmi­lega ýmis­leg emb­ætt­is­verk í þétt­býli, gesta­gangur og heim­sóknir, sem Guðni segur þó ekki fyrir sig. „Í tengslum við þetta frum­kvöðla­verk­efni með saltið þá höfum við þurft að vera innan um alls konar fólk, for­stjóra og fleiri. Það truflar okkur ekki á meðan við erum að vinna að því sem skiptir máli,“ segir hann, en það myndi sömu­leiðis skipta hann máli að vekja athygli á spill­ingu hér á landi. 

Landsfaðir með einhverfu

Hann segir það tví­mæla­laust kost á margan hátt að vera með ein­hverfu og ADHD. „Við erum óhrædd við að kafa djúpt ofan í hluti sem kannski fæstir myndu gera. Þetta hefur sett mark á hvernig við lifum okkar lífi, tökum ákvarð­anir fyrir börnin okkar. Í stað­inn fyrir að taka því sem full­komnu sem sam­fé­lagið er búið að setja upp þá hugsum við það upp frá grunni,“ segir hann. Guðni bendir enn fremur á að sjálfur Thomas Jeffers­son, þriðji for­seti Banda­ríkj­anna og einn af lands­feðr­unum, sé tal­inn hafa verið með ein­hverfu. „Þetta er ekk­ert aðal­at­riði en góður vink­ill,“ segir hann.

Guðni seg­ist alls ekki hafa lengi verið að velta fyrir sér fram­boði. „Ég hef haft mik­inn áhuga á stjórn­málum og heim­speki en ég fór ekk­ert að hugsa um þetta alvar­lega fyrr en upp úr ára­mótum,“ segir hann. 

Ertu von­góður um að ná árangri? Finnst þér raun­hæft að þú verðir næsti for­seti Íslands?

„Ég er nógu von­góður til að reyna, það er alla­vega ein­hver von um að ná alla leið. Fyrir utan það þá er ég bara mjög ánægður með að sá fræi og heyra hvernig fólk tekur þeim hug­myndum sem ég er að ræða um,“ segir hann. 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár