Grænir fingur Áslaug Kirstín Ásgeirs­dóttir á ein­stakt sam­band við plöntur. Hoya er í upp­á­haldi og Áslaug á ynd­is­lega blóma­vin­konu sem á yfir 40 teg­undir af hoyu. „Hún er búin að gauka að mér nokkrum hún Rúna mín.“ Mynd: Golli

Þrjár kynslóðir bananaplantna í Mosfellsbænum

„Mold er gull,“ segir Áslaug Kirstín Ásgeirs­dóttir, sem fær ótrú­leg­ustu plöntur til að blómstra. Fyrir níu árum fékk hún lófa­stóra ban­ana­plöntu að gjöf frá Tenerife. Í vetur bar hún ávöxt – tíu góm­sæta ban­ana. Áslaug er með græna fingur og stóran hluta árs­ins ræktar hún allt sitt græn­meti og ávexti sjálf.

Hún blasir við í eld­hús­glugg­anum, tign­ar­leg ban­ana­plantan, alveg frá gólfi og upp í loft, þegar komið er fyrir hornið í Furu­byggð í Mos­fellsbæ. Þar býr Áslaug Kirstín Ásgeirs­dóttir, plöntu­á­huga­kona og kenn­ari, sem er að æfa sig í að hætta að vinna. 

Áslaug er með græna fingur, á því leikur eng­inn vafi. Hoya er upp­á­halds­plantan hennar, hún á ell­efu slíkar, frið­ar­liljan hennar hefur skartað níu blómum sam­tímis, aloe vera kakt­us­inn blómstr­aði fjórum sinnum í fyrra og hún ræktar bróm­ber, hind­ber og alls konar annað góð­gæti í gróð­ur­hús­inu. Og nú hefur ban­ana­plantan hennar borið ávöxt. Ban­ana­plantan er einmitt kveikjan að heim­sókn blaða­konu í Mos­fells­bæ­inn. 

„Vinkona mín kom með hana, pínu­litla, lófa­stóra, inn­sigl­aða og mold­ar­lausa, frá Tenerife, ætli það séu ekki svona átta eða níu ár síðan,“ segir Áslaug sem leiðir blaða­konu beint að „dótt­ur­inni“ eins og hún kallar ban­ana­plönt­una. Það var nefni­lega móð­irin sem Áslaug eign­að­ist fyrst. „Hún varð alveg …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár