Kristrúnu finnst ekki hafa verið rétt að veita Venesúelabúum viðbótarvernd á sínum tíma

Kristrún Frosta­dóttir telur að ekki hafi verið ástæða til þess að taka fólk frá Venes­ú­ela sér­stak­lega út fyrir sviga þegar ákveðið var að veita þeim við­bót­ar­vernd fyrir nokkrum árum. Hún segir að öllu sé blandað saman í umræðu um útlend­inga­mál. Í stóru mynd­inni séu fæstir inn­flytj­endur hæl­is­leit­endur.

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar, segir að kostnaðaraukning í hælisleitendakerfinu síðastliðin ár hafi að miklu leyti verið vegna þess að fólk frá Venesúela var látið bíða á framfærslu hins opinbera meðan ákveðið var hvort þau fengju að vera áfram á Íslandi eða ekki.

Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, telur að sú ákvörðun íslenskra stjórn­valda að veita öllum Venes­ú­ela­búum við­bót­ar­vernd hafi ekki verið rétt ákvörðun á sínum tíma. „Vegna þess að það liggur alveg fyrir að stór hópur af öðrum ein­stak­lingum frá öðrum löndum þar sem líka var neyð var þá settur aftar í röð­ina. Og það var engin ástæða til þess að taka þennan hóp, að mínu mati, sér­stak­lega út fyrir sviga,“ segir hún.

Kristrún var við­mæl­andi Helga Seljan í nýjasta þætti Pressu. Þar ræddu þau meðal ann­ars um útlend­inga­málin.

Fólk frá Venesúela hefði getað fengið efnislega meðferð

Kristrún segir að þegar sú ákvörðun er tekin að veita fólki frá Venes­ú­ela við­bót­ar­vernd sé verið að segja að allir sem komi frá Venes­ú­ela, óháð per­sónu­legum aðstæðum, kom­ist inn. „Það þýðir að allir sem eru að koma frá öðrum löndum, sem eru líka óör­ugg, sem fá ekki við­bót­ar­vernd, þeir fara aftar í röð­ina.“

…
Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Einarsson skrifaði
    Öllum venúsalabúum var boðið til Íslands í boði Sjálfstæðisflokksins.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár