Verðbólga stendur nánast í stað milli mánaða

Tólf mán­aða verð­bólga mælist nú 6,6 pró­sent en var í síð­asta mán­uði 6,7 pró­sent. Á sama tíma í fyrra stóð tólf mán­aða verð­bólga í tveggja stafa tölu.

Verðbólga stendur nánast í stað milli mánaða

Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 1,33 pró­sent milli mán­aða. Tólf mán­aða verð­bólga mælist nú um 6,6 pró­sent. Á sama tíma í fyrra stóð verð­bólga þó í 10,2 pró­sentum. Síðasta mán­uði lækk­aði verð­bólga um 0,16 pró­sent milli mán­aða og mæld­ist tólf mán­aða verð­bólga þá 6,7 pró­sent. Hafði hún ekki mælst minni síðan í mars 2022.

Þrátt fyrir hækkun í verð­bólgu í febr­úar heldur tólf mán­aða verð­bólga því áfram að lækka eftir því sem háir verð­bólgu mán­uðir frá fyrri hluta síð­asta árs detta úr tólf mán­aða mæl­ing­unni.

Í til­kynn­ingu á vef Hag­stof­unnar segir að vetr­ar­út­sölur sem gengu flestar til baka í mán­uð­inum hafi haft áhrif á verð­bólg­una. Til að mynda hafi verð á fötum og skóm hækkað um 8,4 pró­sent milli mán­aða og verð á hús­gögnum og heim­il­is­bún­aði hækk­aði sömu­leiðis um 5,5 pró­sent. Sam­an­lagt höfðu þessar hækk­anir um 0,61 pró­sent á áhrif á vísi­töl­una. 

Þá segir einnig að kostn­aður við búsetu í eigin hús­næði hafi hækkað um 0,7 pró­sent. Ýmis önnur gjöld eins og sorp­hreinsun, hol­ræsi og kalt vatn hækk­uðu líka milli mán­aða, eða um 11 pró­sent. Verð á mat- og drykkj­ar­vörum hækk­aði um 0,7 pró­sent milli mán­aða.  

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár