Móðir fatlaðs drengs leitaði til lögreglu þegar hann fannst ekki eftir skutl

Móðir fatl­aðs drengs er ósátt eftir að sonur hennar var skil­inn eftir af bíl­stjóra á vegum Pant ferða­þjón­ustu. Var hann með bux­urnar á hæl­unum og illa hald­inn. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem dreng­ur­inn er ekki sóttur.

Móðir fatlaðs drengs leitaði til lögreglu þegar hann fannst ekki eftir skutl
John Rodriguez þarf stuðn­ing við dag­legar athafnir og má því alls ekki vera skil­inn eftir umsjá­laus. Mynd: Aðsend

Í gær beið Evelyn Rodriguez, fram­kvæmda­stjóri og eig­andi Cocina Rodriguez í Gerðu­bergi, óþreyju­full heima hjá sér í Safa­mýr­inni eftir fötl­uðum syni sínum, John Rodriguez. Átti hann að vera á leið­inni heim með bíl­stjóra frá Hreyfli á vegum Pant sem ann­ast akst­urs­þjón­ustu fyrir fatl­aða í Reykja­vík. Þegar hann skil­aði sér ekki heim hringdi Evelyn á lög­regl­una. 

Skilinn eftirJohn kom inn í Vikings heim­ilið með bux­urnar á hæl­unum, búinn að pissa og kúka á sig.

Evelyn hringdi í Pant en þar svar­aði eng­inn. Hún reyndi að hafa sam­band við skól­ann en fékk á sama tíma hring­ingu úr núm­eri sem hún þekkti ekki. Í sím­anum var starfs­maður frá íþrótta­húsi Víkings. Evelyn var tjáð að John væri þar. Starfs­mað­ur­inn vissi ekki hvers vegna John hefði verið skil­inn eftir eða hvað hefði orðið af bílnum sem átti að sækja hann. „John kom inn í húsið með bux­urnar alveg á hæl­unum. Hann var búinn að pissa og kúka á sig.“ 

John talar ekki og er með litn­ingagalla, floga­veiki og ein­hverfu. Hann þarf stuðn­ing við allar dag­legar athafnir og er með 100% stuðn­ing í skól­anum.

Sjálf hefur Evelyn, sem kemur upp­runa­lega frá Dóminíska lýð­veld­inu og bæði á og rekur sinn eigin veit­inga­rekstur, áður lent í því að leita sonar síns eftir að hann skilar sér ekki úr skutl­þjón­ustu.

Upplifir að öllum sé sama

„Ég var búin að hringja í lög­regl­una,“ segir Evelyn. Hún var ósátt með vinnu­brögð lög­regl­unnar. Þau komu ekki inn að ræða við hana þar sem henni þykir þetta mjög alvar­legt að John sé skil­inn einn eftir án eft­ir­lits. Þau höfðu engar frek­ari spurn­ingar. „Þau bara, er þetta John, hann er kom­inn heim. Við ætlum að bóka þetta hjá okkur og bless.“

„Hann er það fatl­aður að það á að afhenda hann hönd í hönd. Það er ekki verið að sækja ein­hverja venju­lega mann­eskju,“ sagði Evelyn.

John var í miklu upp­námi í gær. „Í gær var hann bara í fang­inu á mér með hraðan hjart­slátt.“ Hann bar þess merki að hafa upp­lifað djúp­stæðar til­finn­ingar, án þess að hafa get­una til að tjá þær. „Hann veit ekki hvernig hann á að segja að honum líði illa eða sé illt. Ég get ekki vitað hvernig hann er að hugsa um það sem gerð­ist. Ég veit það ekki.“

„Ég er bara ennþá í sjokki“
Vill ekki að þetta komi fyrir afturEvelyn óskar eftir við­brögðum og vill að þetta komi ekki fyrir son sinn og aðra aftur.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem John er skil­inn svona eftir. Í maí árið 2022 átti bíl­stjóri frá Hreyfli, sem keyrir fyrir Pant akst­urs­þjón­ustu, að skutla John heim. Hann skil­aði sér hins vegar ekki. „Ég stóð í eld­hús­glugg­anum, með opna hurð og beið og beið en það kom eng­inn bíll. Allt í einu birt­ast nágrannar mínir með John. Þau halda í hend­ina á honum og koma með honum inn. Hann fann John bara úti á götu.“

Þegar Evelyn heyrði í Pant tjáðu þau henni að leigu­bíl­stjór­inn skildi hann eftir vegna þess að John hefði labbað inn. „Ég spurði, labb­aði inn hvert? Hann veit ekki einu sinni hvar hann á heima. Hann er svo fatl­aður að hann veit það ekki.“

Lítið um viðbrögð

Þrátt fyrir að hafa haft sam­band við deild­ar­stjóra Pant, Sturlu Hall­dórs­son, og fram­kvæmda­stjóri Hreyfils, Harald Axel Gunn­ars­son,  hefur Evelyn aldrei fengið að vita neitt meira en að bíl­stjór­inn sem átti að keyra John heim í maí í fyrra hefði fengið til­tal. Hún fékk lof­orð frá Pant að þeir ætl­uðu að sjá til þess að þetta myndi ekki ger­ast aftur „og bla, bla, bla. Svo ger­ist það nákvæm­lega sama aftur,“ segir hún.

„Svona fólk á ekki að keyra fyrir ferða­þjón­ust­una. Svona fólk á ekki að vinna fyrir fatlað fólk. Svo fór ég að hugsa, kannski er þetta bara sama mann­eskja?“ 

Í sam­tali við blaða­mann Heim­ild­ar­innar var Evelyn gráti næst. „Það gæti eitt­hvað komið fyrir barnið mitt og eng­inn er að hugsa um það.“

„Fólkið sem er að keyra fatlað fólk er fólkið sem á að taka ábyrgð á því og sýna fólki virð­ingu. Þetta er fólk sem getur ekki tjáð sig.“

Akst­urs­þjón­usta fatl­aðra tók fyrir þremur árum upp heitið Pant akstur. Við þær breyt­ingar var ákveðið að hlut­fall leigu­bíla­akst­urs færi úr 10% í 30%. Mörg dæmi hafa komið upp í opin­berri umræðu und­an­farin ár um fatlað fólk sem er skilið eftir hjálp­ar­laust eftir skutl­þjón­ust­una. Í fyrra lýsti leik­stjóri, sem hélt úti sýn­ingu með fötl­uðum leik­urum, miklum brota­lömum á þjón­ust­unni. Þeir hefðu ýmist verið skildir eftir úti á bílaplani eða sóttir tveimur klukku­stundum of snemma eða seint.

Kjósa
33
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Fanney Osk Eyolfsdottir skrifaði
    Ekki að þetta komi mér á óvart en þetta er ófyrirgefanlegt
    0
  • Ásta Jensen skrifaði
    Þeir nenna ekki að fara með börnin inn til foreldra eða stuðningsmanna
    0
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Þessi frétt er Akstursþjónustuni til skammar og takk fyrir það en að hinu hver er tilgangur blaðamans að nefna stöðu móður svo sem framkvæmdastjóra og eiganda ,er hér um alvarlegra atburð að ræða en hafi hún verið húsmóðir spyr sá er ekki veit
    0
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Skelfilegt og ófyrirgefanlegt að fara svona með blessaðan drenginn, og bílstjórinn á Hreyfli. Hvernig hefði fyrirsögnin verið, hefði bílstjórinn verið á ,,vitlausri" stöð?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár