Nýkjörinn formaður eldri borgara skráði sig í félagið viku fyrr og smalaði „úr öllum flokkum“

Hvað gerð­ist raun­veru­lega á aðal­fundi Félags eldri borg­ara í Reykja­vík og nágrenni? Gagn­rýnendur stjórn­ar­kjörs segja það hafa verið þaul­skipu­lagða hall­ar­bylt­ingu Sjálf­stæð­is­manna. Nýkjör­inn for­maður, sem er nýskráður í félagið, seg­ist vera kjós­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins en ekki geið­andi félagi í flokknum.

Nýkjörinn formaður eldri borgara skráði sig í félagið viku fyrr og smalaði „úr öllum flokkum“
Sigurður Ágúst Sig­urðs­son Fyrr­ver­andi for­stjóri DAS, dval­ar­heim­ilis aldr­aðra sjó­manna, er nýr for­maður Félags eldri borg­ara í Reykja­vík og nágrenni. Mynd: Aðsend

Í gær fór fram aðal­fundur hjá Félagi eldri borg­ara í Reykja­vík og nágrenni (FEB) þar sem kos­inn var nýr for­maður og ný stjórn. Fund­ur­inn var hald­inn í Gull­hömrum og þótti mæt­ing góð, enda hátt í 400 manns mætt.

Að sögn við­staddra voru þar fyrir komnir margir vel þekktir ein­stak­lingar úr röðum Sjálf­stæð­is­manna. „Ég hélt á tíma­bili að ég hefði villst inn í Valhöll. Það voru Sjálf­stæð­is­menn út um allt sem ég kann­að­ist við,“ segir Atli Rúnar Hall­dórs­son félags­maður í FEB í sam­tali við Heim­ild­ina. 

Kosinn var til for­manns Sigurður Ágúst Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri DAS, sem hlaut rúm 60% atkvæða. Í öðru sæti var Sig­ur­björg Gísla­dóttir, frá­far­andi vara­for­maður félags­ins. 

Þekkir lítið til starfs FEB

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar skil­aði Sigurður Ágúst inn til­kynn­ingu um for­manns­kjör minna en tveimur tímum áður en frest­ur­inn til þess rann út, eða viku fyrir aðal­fund­inn. For­manns­efnið gekk enn fremur í félagið á sama tíma og hann bauð …

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (10)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    "Ný­kjör­inn formað­ur, sem er ný­skráð­ur í fé­lag­ið, seg­ist vera kjós­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins "
    Öðruvísi hefði hann ekki fengið forstjórastöðu hjá DAS. Hann vill byggja fleiri dasblokkir en minnist ekki á kjarabætur til aldraðra.
    0
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Ég ætla að segja mig úr þessu félagi strax eftir helgi.
    1
  • Heiðar Kristinsson skrifaði
    Hvað ætli Sigurður Ágúst Sigurðsson sé með í eftirlaun.
    0
  • Baldur Gudmundsson skrifaði
    Ég er ekki að skilja atkvæðagreiðslu um gæði greinanna þar sem öll atkvæðin eru á græna reitnum en ekkert á þeim rauða. Eru allir svona ánægðir með greinarnar og enginn ósáttur?
    -1
  • Ásgeir Överby skrifaði
    Það eina sem hefur komið frá Sigurði er að hann vill byggja fleiri blokkir í DAS stíl. Kjör eldri borgara lætur hann bíða þangað til vinstri stjórn tekur við.
    3
  • ÁGS
    Ásgeir Grétar Sigurðsson skrifaði
    Var sem félagsmaður að spá í að mæta á aðalfundinn en sá ekkert mótvægi við þetta sjálfstæðisflokkselement sem kynnt var til framboðs. Það skyldi þó aldrei vera að kjörnir slíkir geti látið gott af sér leiða? Það kemur þá alla vega ánægjulega á óvart ef svo verður.
    0
    • RA
      Reykjavíkur Akademían skrifaði
      vVr ekki mótvægi í öflugum varaformanni og meðlim Öldrunarráðs, fáir sem hafa barist lengur eða meir fyrir bættri stöðu okkar?
      0
  • Heimir Fjeldsted skrifaði
    Afar ánægjulegt að fá gott fólk í stjórn FEB, fólk sem er vant að láta verkin tala.
    -9
  • KB
    Kristinn Björnsson skrifaði
    Furðuleg frétt, aðalfréttin ætti að vera, hvaða vegferð ætlar hann sér með félagið, fyrir hvað brennur hann.
    -1
    • Sigga Svanborgar skrifaði
      ekkert furðulegt við þessa frétt....hér er einfaldlega verið að benda á linnulausa spillingu XD manna.....mikilvægt að þetta sé birt og mikið gert úr.....
      12
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár