Skoðað að sameina Ríkiskaup og aðrar stofnanir

Fjármála­ráðuneytið segir að forstjóri Ríkis­kaupa, Sara Lind Guðbergs­dóttir, hafi verið sett aftur í embætti vegna skoðunar á skipulags­breytingum á stofnuninni.

Sett til mánaðamóta
Sett til mán­aða­móta Settur for­stjóri Rík­is­kaupa, Sara Lind Guð­bergs­dóttir, var sett aftur í emb­ættið og nú til mán­aða­móta. Fjár­mála­ráðu­neytið segir að til skoð­unar sé að sam­eina Rík­is­kaupa og aðrar stofn­anir.

Fjármála- og efnahags­ráðuneytið skoðar nú mögu­leikann á því að sameina Ríkiskaup og aðrar stofnanir í stjórn­kerfinu. Vegna þessa var Sara Lind Guðbergs­dóttir, settur forstjóri Ríkis­kaupa, sett aftur í embætti, nú til mánaða­mótanna febrúar og mars. Þetta kemur fram í svari frá ráðuneytinu við spurningum Heimildarinnar. Athygli hefur vakið að Sara Lind var sett í embættið í apríl í fyrra og svo aftur eftir það.

Miðað við svör ráðuneytisins þá er skýringin á þessu skoðun á skipulags­breytingum. „Yfir stendur skoðun á framtíðar­fyrir­komulagi umgjarðar innkaupa­mála hjá ríkinu þar sem m.a. er lagt mat á hvort fýsilegt sé að sameina stofnunina öðrum einingum í samræmi við áherslur um einföldun stofnana­kerfisins. Vegna þessa hefur sá tími sem forstjóri Ríkis­kaupa er settur í embætti verið fram­lengdur og rennur skipunar­tími hans út um næstu mánaðamót. Gert er ráð fyrir að niður­staða um framtíðar­fyrir­komulag liggi fyrir síðar í mánuðinum.“ 

 Samkvæmt svari ráðuneytisins þá …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kolbrun Þorkelsdottir skrifaði
    Æ,æ, er ÞKRG enn og aftur að fara að rústa innviðum eins og það hefur gengið vel hingað til, sporin hræða.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár