„Eitthvert helvítis asnastrik suðrá Balkanskaga“

Á þessu ári eru rétt 110 ár frá upp­hafi fyrri heims­styrj­aldar. Af því til­efni verður flækju­sagan á árinu með óreglu­legu milli­bili helguð þeim hroða­lega hild­ar­leik sem Evr­ópu­búar og raunar mann­kynið allt sýpur enn seyðið af.

„Eitthvert helvítis asnastrik suðrá Balkanskaga“

Um árið 1000 ET voru nokkur slav­nesk fursta­dæmi komin til sög­unnar á norð­vest­an­verðum Balkanskaga. Þau helstu voru kennd við Króata og Serba. Nágrann­arnir voru sýnu öfl­ugri en þessi slav­nesku ríki: Býsans­ríkið í suðri, Ung­verjar í norðri og Búlgarar í austri en þeir höfðu að vísu tekið upp slav­neska háttu og tungu­mál þegar þarna var komið sögu. Á 11. öld­inni gerð­ist sá afdrifa­ríki atburður að full vin­slit urðu milli kirkju­deilda í Róm ann­ars vegar og Kon­stant­ínópel hins vegar. Króatar ákváðu þá að binda trúss sitt við hina kaþ­ólsku kirkju í Róm, enda höfðu þeir þegar marg­vís­leg tengsl í vestur og höfðu til dæmis tekið upp lat­ínu­letur. Serbar treystu hins vegar á rétt­trún­að­ar­kirkj­una í Býsans og héldu áfram að skrifa á hinu svo­nefnda kýrill­íska letri.

Tyrkir birtast á Balkanskaga

Þarna má segja að tvær ólíkar þjóðir hafi farið að þró­ast fyrir alvöru. Króatar og Serbar töl­uðu þó áfram (nán­ast) sama tungu­málið og áttu yfir­leitt sam­leið.

Á 14. öld birt­ist óvænt nýtt og öfl­ugt veldi á Balkanskaga. Þar voru komnir Tyrkir, höfðu tekið íslams­trú þrem öldum fyrr og reynd­ust nú næsta ósigr­andi. Um þær mundir var fursta­dæmi Serba býsna stöndugt en í orr­ustu í Kosovo 1389 voru Serbar og banda­menn þeirra ger­sigr­aðir af Tyrkjum. Ósig­ur­inn var gríð­ar­legt áfall fyrir Serba, bæði þá og síðar, og má segja að hafi mótað þjóð­arsál­ina ef slíkt fyr­ir­bæri er þá til. Tyrkir lögðu Serbíu ekki að fullu undir sig fyrr en mörgum ára­tugum síðar en ósig­ur­inn við Kosovo hefur í vit­und Serba orðið að ógró­andi holund­arsári sem sannar þeim að hættu­legur óvinur að utan sitji alltaf og ævin­lega um hina prúðu og hjarta­hreinu þjóð þeirra.

Undir oki Tyrkja í aldir

Í rúm 300 ár var Serbía svo her­setin af Tyrkjum sem þá höfðu náð öllum Balkanskaga og gert sér höf­uð­borg í hinni fornu Kon­stant­ínópel. Um tíma ógn­uðu Tyrkir ger­vallri Mið-Evrópu en þýska her­toga­dæmið Aust­ur­ríki varð sá brim­brjótur sem sóknir Tyrkja brotn­uðu ævin­lega á. Smátt og smátt söfn­uð­ust fleiri héruð undir Habs­borgar-ætt­ina sem réði Aust­ur­ríki, her­togar þar urðu keis­arar og nýtt evr­ópskt stór­veldi var risið á 18. öld.

Snemma á 19. öld var ljóst að þróttur Tyrkja­veldis fór mjög minnk­andi. Þá gerðu Serbar upp­reisn og tókst í nokkrum áföngum að brjót­ast undan valdi Kon­stant­ínópel. Segja má að sjálf­stæðið hafi verið tryggt í raun 1830. Um þær mundir höfðu Serbar eign­ast mjög öfl­ugan banda­mann sem var hið ört vax­andi veldi Rúss­lands. Rússar þráðu að ná Kon­stant­ínópel og gerðu margar til­raunir til þess á 19. öld og studdu þá um leið Serba til að veikja Tyrki.

Serbía og nágrenni árið 1914

Serbía endurheimtir sjálfstæði

Serbar voru mjög eðli­legir banda­menn fyrir Rússa, ekki síst vegna þess að þeir deildu sama trú­fé­lagi. Serbar höfðu varð­veitt sína rétt­trún­að­ar­kirkju af mik­illi hind allan tím­ann undir stjórn Tyrkja og þar með í reynd sína „aust­urslav­nesku“ menn­ingu. Um það leyti sem Serbía fékk sjálf­stæði var Króatía hins vegar komin undir stjórn Aust­ur­ríkis og síðar á öld­inni náðu Aust­ur­rík­is­menn líka eig­in­legum yfir­ráðum í Bosníu, þótt Tyrkir héldu þar áfram um stjórn­ar­taumana að nafn­inu til.

Árið 1882 lýstu Serbar yfir stofnun kon­ungs­ríkis með til­styrk stór­veld­anna og urðu þá að fullu og form­lega sjálf­stæðir. Fram undir þetta höfðu sam­skipti þeirra við nágrann­ana í ríki Habs­borg­ara (sem nú hét Aust­ur­ríki-Ung­verja­land) verið með ágætum en fóru nú heldur að versna.

Vináttan við Rússa

Margt kom til. Náin og æ nán­ari vin­átta Serba og Rússa fór í taug­arnar á Habs­borg­urum enda litu þeir á Rússland sem helsta keppi­naut sinn bæði um yfir­ráð yfir vest­ari hluta Úkraínu og áhrifa­vald yfir Balkanskaga. Aust­ur­rík­is­menn litu á löndin og hér­uðin á Balkanskaga, sem nú voru óðum að brjót­ast undan Tyrkjum, sem sinn „bak­garð“, bæði efna­hags­lega og póli­tískt, en Serbar vildu engum háðir vera og þráðu að keppa við Habs­borg­ara á sviði land­bún­að­ar­fram­leiðslu, tolla­mála, járn­braut­ar­lagn­ingar og fleira.

Þá fór ekk­ert á milli mála að Serbar vildu ólmir end­ur­heimta þann stór­veld­is­sess á Balkanskaga sem þeir töldu sig hafa misst á 14. öld. Þeir fóru lítið í felur með að þeir vildu safna Króötum, Slóvenum og fleiri frænd­þjóðum undir sinn vernd­ar­væng og með vax­andi þjóð­ern­is­hyggju virt­ist sú hug­mynd reyndar næsta eðli­leg að „Suð­ursla­var“ á Balkanskaga mynd­uðu sam­eig­in­legt ríki.

Vildu aðgang að sjó

Serbar voru þó fyrst og fremst að hugsa þá um að stækka Serbíu og taka að sér stjórn á frænd­garði sínum. Þjóð­ern­is­of­stopi fór mjög að segja til sín með Serbum strax á 19. öld og allt að 150.000 Albanir í Serbíu voru til dæmis reknir með hörku frá heim­ilum sínum og end­uðu flestir slyppir og snauðir í Kosovo. Þrátt fyrir mik­il­vægi hér­aðs­ins í sögu Serba tald­ist hér­aðið þá ekki til Serbíu, heldur enn til Tyrkja­veldis  en þar bjuggu næstum ein­göngu Albanir.

Auk þjóð­ern­is­hug­mynda höfðu blá­berir eig­in­hags­munir líka sitt að segja um ásælni Serba í vest­ur­átt – þeir vildu fá aðgang að sjó við Adría­hafið og Króatía var vegna náinna tengsla við Vest­ur­lönd komin lengra á braut nútíma­væð­ingar og vel­sældar en Serbía. 

Í bæði Króatíu og Bosníu stóð Aust­ur­ríki-Ung­verja­land í bili gall­hart gegn ásælni Serba í lönd í vestri. Konungar Serbíu tóku því þann kost að frið­mæl­ast við Vín­ar­valdið og ágrein­ings­efnum var sópað undir teppi í bili. Eftir því sem hrun Tyrkja­veldis færð­ist í auk­ana juk­ust mögu­leikar Serba að ná þar fleiri svæðum.

Kóngur og drottning drepin!

Árið 1903 breytt­ist saga Serbíu í einu vet­fangi þegar her­skáir her­for­ingjar rændu völdum í land­inu með því að myrða kon­ungs­hjónin Alex­ander og Drögu Mašin. Fyrir því voru ýmsar ástæður en ekki síst sú trú her­for­ingj­anna að Alex­ander væri orð­inn of und­ir­gef­inn Habs­borg­urum.

Á því varð nú breyt­ing þegar Pétur 1. varð kóngur í stað Alex­and­ers. Serbar hófu strax að brjót­ast undan efna­hags­legu valdi Habs­borg­ara og leit­uð­ust til dæmis við að efla sam­skipti við bæði Frakka og Þjóð­verja, auk þess að styrkja á ný vin­áttu sína við Rússa. Aust­ur­rík­is­menn brugð­ust illa við og settu háa tolla á það svína­kjöt sem Serbar höfðu flutt út til þeirra í miklu magni en svína­kjötið var helsta útflutn­ings­vara Serba. Braust þá út hið svo­nefnda svína­stríð milli Aust­ur­ríkis-Ung­verja­lands og Serbíu 1906–1908 en það var að vísu ekki háð á víg­völlum, heldur ein­ungis í stjórn­ar­skrif­stofum.

Bosnía innlimuð

Árið 1908 inn­lim­uðu Aust­ur­rík­is­menn svo Bosníu form­lega í ríki sitt, meðal ann­ars og ekki síst til að sporna gegn því að Serbar þar í hér­aði (og raunar Króatíu líka) tækju að líta sam­ein­ingu við Serbíu of hýru auga. Þetta fannst Serbum slík sví­virða við sig og serbneska Bosn­íu­menn að síðan var fullur og vax­andi fjand­skapur með ríkj­unum.

Serbía styrkti svo stöðu sína á miðjum Balkanskaga með stríðs­á­tökum við nágranna sína 1912 og 1913. Þá tóku þeir meðal ann­ars Kosovo-hérað og byrj­uðu strax að kúga albanska íbúa; mörg þús­und Albanir voru hrein­lega drepnir. Því miður er saga Serbíu eitt sorg­legt dæmi af svo alltof mörgum um ger­valla mann­kyns­sög­una að kúg­aðar þjóðir eiga til að hefja sjálfar að kúga aðra, undir eins og þær fá tæki­færi til.

Pétur 1. var tal­inn að flestu leyti afar frjáls­lyndur, hann vildi nútíma­væða hið frum­stæða ríki sitt og bæta mann­rétt­indi.

En fyrst og fremst fyrir Serba, því miður.

Kennum Serbum lexíu!

Nú var gremja Habs­borg­ara í garð Serba orðin mikil. Keis­ara­dæmið var sam­safn ólíkra þjóða, flestra slav­neskra, og í Vín og Búdapest ótt­uð­ust menn að stöndug og staffírug Serbía yrði öðrum þjóðum fyr­ir­mynd að slíta sig úr tengslum við ríkið. Þótt Aust­ur­ríki-Ung­verja­land væri víð­áttu­mikið vissu allir sem vildu vita að inn­viðir rík­is­ins voru orðnir hel­stil feysknir og það myndi vart þola mikla ágjöf.

Jafn­framt voru nú taldar auknar líkur á átökum stór­velda álf­unnar og þá mátti búast við nýrri sókn Rússa inn í vest­ur­hluta Úkraínu, Pólland og suður á Balkanskaga. Habs­borg­urum fannst óþægi­leg til­hugsun að vita þá af nánum banda­mönnum Rússa í bak­garð­inum hjá sér. Það eru ekki nema rúmir 300 kíló­metrar af sléttu landi milli Belgrad, höf­uð­borgar Serbíu, og Búdapest, og rétt rúmir 500 til Vínar. Fyrir styrj­öld stór­veld­anna fannst Habs­borg­urum því góð hug­mynd að vera þá búnir að kné­setja Serba sem dug­leg­ast.

Kenna þeim ærlega lexíu, með öðrum orðum.

„Nautið“ kemur til sögunnar

Haft var eftir Bismarck, kansl­ara Þýska­lands, að „næsta stór­styrj­öld Evrópu munu kvikna af ein­hverju hel­vítis asna­striki suður á Balkanskaga“.

„Í Belgrad voru líka menn sem vildu átök. Þar á meðal var ofur­st­inn Dragutin Dimitri­jevi sem var kall­aður Nautið. Fer­leg­asti maður alveg hreint.“

Og það gekk eftir. Því í Belgrad voru líka menn sem vildu átök. Þeir þráðu að veita Aust­ur­ríki-Ung­verja­landi eitt­hvert það högg sem dygði til að auka líkur á sam­ein­ingu Suð­urslava undir serbneskri stjórn. Þar á meðal var ofur­st­inn Dragutin Dimitri­jevi sem var kall­aður Nautið. Fer­leg­asti maður alveg hreint. Hann hafði stofnað leyni­fé­lagið Svörtu hönd­ina til að ann­ast morðin á Serbakóngi og drottn­ingu 1903 og vorið 1914 ákvað Nautið að gera morð­ingja sína út á ný.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Illugi Jökulsson þú átt heiður skilið fyrir að nota FT og ET í staðin fyrir kristlinga tímatalið.
    Hattur ofan fyrir þér Illugi Jökulsson!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár