Varaþingmaður VG segir að mál dvalarleyfishafanna strandi á Bjarna

Bryn­hildur Björns­dóttir, sitj­andi vara­þing­maður Vinstri grænna, segir þing­flokk sinn sam­stíga í að vilja sækja dval­ar­leyf­is­haf­ana sem fastir eru á Gaza. Það sé þó ekki hlut­verk for­sæt­is­ráð­herra að stíga inn á vald­svið ann­arra ráð­herra. Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, segir að málið snú­ist um sið­ferð­is­lega skyldu – ekki bara laga­lega ábyrgð.

Bryn­hildur Björns­dóttir, sitj­andi vara­þing­maður Vinstri grænna, segir að klár vilji sé hjá VG að sækja dval­ar­leyf­is­haf­ana sem fastir eru á Gaza. Spurð hvort að aðgerð­irnar strandi á Bjarna Bene­dikts­syni utan­rík­is­ráð­herra sagð­ist Bryn­hildur ekki sjá betur en að svo væri.

Auk hennar voru Kristín S. Hjálmtýs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Rauða kross­ins á Íslandi, og Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, við­mæl­endur Aðal­steins Kjart­ans­sonar í nýjasta þætti Pressu. 

 „Hverjum dettur í hug að vinstrisnnaður félagshyggjuflokkur vilji ekki bjarga mannslífum?“

Bryn­hildur segir að Vinstri græn séu sam­stíga í afstöðu sinni að vilja sækja dval­ar­leyf­is­haf­ana á Gaza. „Hverjum dettur í hug að vinstrisnn­aður félags­hyggju­flokkur vilji ekki bjarga manns­lífum?“ spurði hún.

Það væri þó ekki hlut­verk for­sæt­is­ráð­herra að fara inn á vald­svið ann­arra ráðu­neyta. „Ég held að við viljum ekki hafa for­sæt­is­ráð­herra sem getur af geð­þótta, eða það sem hann metur vera mik­il­væga hluti, gengið inn og farið yfir vald­svið ráð­herra.“ Enn fremur væri það ekki gott fyrir dval­ar­leyf­is­haf­ana …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KH
    Kristinn Halldórsson skrifaði
    Forsætisráðherra, hum, gildishlaðið orð, virðingarmikið embætti, hæðstu launin af ráðherrum.
    Veruleikafyrring VG liða er orðin meira og meira áberandi.
    "Það sé þó ekki hlut­verk for­sæt­is­ráð­herra að stíga inn á valdsvið annarra ráð­herra."
    Hvert er hlutverk forsætisráðherra í augum VG liða, kannski bara upplýsingafulltrúi annara ráðherra. Núna er greinilega mjög rólegt hjá forsætisráðherranum því ráðherrann gat sippohojað ráðuneiti Svandísar inn á sig.
    Kannski þingflokksformaður VG gæti skrifað greiningu, hér inni á Heimildinni, um með hvaða gleraugum hann sér valdsvið forsætisráðherra fyrir sér.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Pressa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár