Áhyggjur Landspítala af einkavæðingu Sjúkratrygginga birtast í gögnum stjórnarinnar

For­stjóri Land­spít­al­ans, Runólfur Pálsson, hefur lýst yfr áhyggjum af því að starf­semi Sjúkra­trygg­inga Íslands geti grafið undan starf­semi sjúkra­húss­ins ef einka­væð­ing í heil­brigð­is­kerf­inu verður of mikil. Stjórn spít­al­ans hefur svip­aðar áhyggjur.

Áhyggjur Landspítala af einkavæðingu Sjúkratrygginga birtast í gögnum stjórnarinnar
Stjórn LSH bók­aði áhyggjur Stjórn Land­spít­al­ans bók­aði áhyggjur af því að starf­semi Sjúkra­trygg­inga Íslands og spít­al­ans væri ekki sam­ræmd og að samn­ingar Sjúkra­trygg­inga við eink­að­ila gætu grafið undan sjúkra­hús­inu. Sigurður Helgi Helgason, for­stjóri Sjúkra­trygg­inga, og Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra sjást hér saman.

Stjórn Land­spít­ala-háskóla­sjúkra­húss telur mik­il­vægt að „jafn­vægis“ sé gætt á milli starf­semi  þeirra einka­fyr­ir­tækja á heil­brigð­is­mark­aðnum sem fá greitt sam­kvæmt samn­ingi við Sjúkra­trygg­ingar Íslands og rík­is­stofn­ana. Þá telur stjórn spít­al­ans ein­ing að mik­il­vægt sé að þeir stjórn­mála­menn sem stýra heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu hverju sinni hafi „sam­ráð“ við Land­spít­al­ann áður en ákveðið er að láta Sjúkra­trygg­ingar Íslands sem við einka­að­ila um veit­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu. Þetta kemur fram í bókun í fund­ar­gerð stjórnar Land­spít­ala-háskóla­sjúkra­húss frá því í ágúst síð­ast­liðnum. 

Í fund­ar­gerð­inni er bók­unin feit­letruð en nákvæmt orða­lag hennar er: „Stjórn telur mik­il­vægt að unnið verði að eðli­legu jafn­vægi milli starf­semi opin­berra stofn­ana og aðila sem starfa sam­kvæmt samn­ingi við Sjúkra­trygg­ingar Íslands. Stjórn telur rétt að sam­ráð verði haft við Land­spít­ala áður en samn­ings­mark­mið eru skil­greind og ákveðið að fela Sjúkra­trygg­ingum Íslands að semja um heil­brigð­is­þjón­ustu.“

„Ég hef ákveðnar áhyggjur af því að fram­boð á þjón­ustu utan Land­spít­ala verði það mikið að það …
Kjósa
48
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár