„Meðan hjarta mitt grætur fyrir Palestínu þá get ég ekki sungið fyrir Ísland“

Tón­list­ar­konan Sunna Krist­ins­dóttir, eða Sunny, mun ekki fara til Sví­þjóðar fyrir Íslands hönd skyldi hún sigra Söngvakeppni sjón­varps­ins. Hún vill ekki keppa á móti Ísraelum vegna átak­anna sem nú geisa í Palest­ínu. Hún segir stóran hluta kepp­enda vera á sama máli og RÚV gera sitt besta til að koma til móts við þau öll.

„Meðan hjarta mitt grætur fyrir Palestínu þá get ég ekki sungið fyrir Ísland“
Keppandi „Ég vil alls ekki bregð­ast þeim sem myndu kjósa mig ef það er fólk sem vill að ég fari í Eurovision.“ Mynd: Hörður Sveinsson

Sunna Krist­ins­dóttir, eða tón­list­ar­konan Sunny, er einn af kepp­end­unum í Söngvakeppni sjón­varps­ins í ár. Hún sendi lag sitt inn í keppn­ina áður en þau miklu átök sem nú geisa fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs hófust. Í ljósi þeirra hefur hún tekið þá ákvörðun að fara ekki út í Eurovision í Svíþjóð skyldi hún vinna keppn­ina hér heima. Ástæða ákvörð­un­ar­innar er að Ísrael muni að öllum lík­indum fá að vera með. 

„Ég vil frekar standa með samvisku minni“

„Þegar þessi þjóð­ern­is­hreinsun byrj­aði þá kom stór steinn í mag­ann á mér og það breytt­ist úr því að hlakka til að segja frá – því það er þagn­ar­skylda fyrst – í kvíða að þurfa að segja að ég væri með,“ segir Sunna í sam­tali við Heim­ild­ina. „Það er verið að reyna að útrýma Palest­ínu­mönnum. Maður er bara grát­andi yfir þessu.“

Sunna segir aðstæð­urnar valda henni miklum kvíða. „Ég er hrædd. En ég …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EK
    Elísabet Kjárr skrifaði
    Sunna er alltaf jafn sterk. Hún er fyrirmynd svo margra ungra stelpna sem eru að byrja sín fyrstu skref í baráttunni við kerfislæga ofbeldið hér á landi. Varðandi keppnina held ég að kjósendur séu líka á báðum áttum, því í ár þetta er einmitt ein pólitíkasta keppnin. Lögin sjálf skipta absolútt engu. Ég veit að fullt af fólki hefur tekið ákvörðun um að sniðganga öll fyrirtækin sem auglýsa og kjósa við Bahrir, burtséð frá tónlistinni.
    Muna ekki allir að Úkraína vann með ömurlegt lag? Bahrir gerir það vonandi líka sama hvernig lagið er.
    Ópólitísk keppni my ass.
    2
  • Svala Jónsdóttir skrifaði
    Gott hjá henni að láta eigin sannfæringu ráða.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár