Spurningaþraut Illuga 2. febrúar 2024

Hér geta les­end­ur spreytt sig á spurn­inga­þraut Ill­uga Jök­uls­son­ar sem birt­ist í tölu­blaði Heim­ild­ar­inn­ar 2. febr­úar.

Spurningaþraut Illuga 2. febrúar 2024
Mynd 1 Í útjaðri hvaða þétt­býl­is­staðar á Íslandi er þessi mynd tekin?

Mynd 2:

Hvað heitir konan?

Almennar spurninar: 

  1. Hvaða starfi gegnir Bryn­hildur Guð­jóns­dóttir um þessar mundir?
  2. Frá hvaða landi er Melania Trump, fyrr­ver­andi for­seta­frú Banda­ríkj­anna?
  3. Ásta Sóllilja er per­sóna í hvaða skáld­sögu Halldórs Laxness?
  4. Leik­ritið Sakn­að­arilmur verður brátt frum­sýnt í Þjóð­leik­hús­inu. Það er gert eftir tveimur bókum sem ... hver ... skrif­aði?
  5. Hvað heitir aðal­per­sónan í söng­leiknum/bíó­mynd­inni Frost eða Frozen?
  6. Hver er höf­undur leik­rits­ins Lúna?
  7. Undir hvaða nafni er Richard Starkey þekkt­astur?
  8. Næst­hæsta fjall Íslands er 2.000 metra hátt og heitir ... hvað?
  9. Mjög vin­sæl söng­kona gaf út fyrstu plötu sína 1967 og síðan hafa komið um 50 plötur, sú nýjasta í fyrra. Þessi fyrsta plata hét Hello, I'm ... og svo kom nafnið hennar. Hver er hún?
  10. Kasakstan, Tur­k­menistan, Kyrgyztan, Tajikistan og ... hvað?
  11. Hver er höf­uð­borg Indlands?
  12. En hvað heitir höf­uð­borg Tyrk­lands?
  13. Hversu mörg eru frum­efni lotu­kerf­is­ins? Eru þau 4 – 12 – 42 – 118 – eða 1869?
  14. Frank Lloyd Wright var Banda­ríkja­maður og þótti einna fremstur í sinni grein á 20. öld. Hver var hans grein?
  15. Hvað heitir gríð­ar­vin­sæl þýsk rokk­hljóm­sveit sem hefur m.a. sent frá sér lögin Mutter, Sehnsucht og Du hast?


Svör við mynda­spurn­ingum:
Fyrri myndin er tekin í Stykk­is­hólmi. Seinni myndin er af Guð­björgu Matth­í­as­dóttur athafna­konu. Í þessu til­felli dugar Guðbjörg.
Svör við almennum spurn­ingum:
1.  Borg­ar­leik­hús­stjóri.  —  2.  Slóveníu.  —  3.  Sjálf­stæðu fólki.  —  4.  Elísabet Jök­uls­dóttir.  —  5.  Elsa.  —  6.  Tyrf­ingur Tyrf­ings­son.  —  7.  Ringo Starr.  —  8.  Bárð­ar­bunga.  —  9.  Dolly Parton.  —  10.  Úsbekistan.  —  11.  Delí.  —  12. Ankara.  —  13.  118.  —  14.  Arki­tektúr.  —  15.  Ramm­stein.
Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár