Viðtal: „Þetta er svo galin tilfinning að vilja missa aleiguna. Bara til að fá hana bætta“

Grind­vík­ing­ur­inn Bryndís Gunn­laugs­dóttir segir í við­tali við Heim­ild­ina að allt hafi breyst 10. nóv­em­ber þegar kviku­gang­ur­inn kom undir Grinda­vík og það þurfti að rýma bæinn. „Þá fædd­ist þessi sviðs­mynd að Grinda­vík gæti farið undir hraun og eld­gosið gæti komið upp undir bænum. Ég held að það sé sár sem verði lengi að gróa.“

Íbúafundur með Grindvíkingum „Erfiðasti dagurinn frá 10. nóvember var þegar ég vaknaði um morguninn og ég sá að húsið mitt var ekki brunnið. Húsið mitt er við hraunjaðarinn, því ef húsið mitt hefði brunnið, þá hefði ég fengið fjárhagslegt sjálfstæði, ég hefði fengið vissu og ég hefði getað byggt upp nýtt heimili og þessi snara sem er utan um væri farin.“

„Úr Grinda­vík eru mínar bestu en líka verstu minn­ingar,“ segir Bryndís Gunn­laugs­dóttir, Grind­vík­ingur sem þurfti að flýja bæinn vegna jarð­hrær­inga. Þegar Bryndís lýsir upp­lifun sinni af jarð­hrær­ing­unum á Suð­ur­nesj­unum segir hún jarð­skjálft­ana hafa verið pirr­andi, „sér­stak­lega þegar þeir voru á nótt­unni og maður náði ekki að sofa.“

Hún segir allt hafa breyst 10. nóv­em­ber þegar kviku­gang­ur­inn kom undir Grinda­vík og það þurfti að rýma bæinn. „Þá fædd­ist þessi sviðs­mynd að Grinda­vík gæti farið undir hraun og eld­gosið gæti komið upp undir bænum. Ég held að það sé sár sem verði lengi að gróa.“ 

„Ég væri ekki sú mann­eskja sem ég er í dag nema vegna Grinda­víkur“

Bryndís segir frá því í við­tal­inu hvernig það var að alast upp í Grinda­vík. „Maður gat gert allt,“ segir hún þar sem hún æfði körfu­bolta, fót­bolta, stund­aði tón­list­ar­nám, var í skóla og í ræðu lið­inu. …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár