Lögreglan hætt rannsókn á meintum líflátshótunum í garð blaðamanna

Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra hefur fellt niður rann­sókn á kæru sem tveir blaða­menn lögðu fram gegn skip­stjóra hjá Samherja. Blaða­menn­irnir líta svo á að þeim hafi verið hótað af mann­inum þegar“ hann sendi þeim póst um að hann neydd­ist til að „grípa til ann­ara ráða til þess að stoppa ykkur.“ Áður hafði mað­ur­inn ýjað að því opin­ber­lega að hann vildi nota skot­vopn gegn blaða­mönnum.

Lögreglan hætt rannsókn á meintum líflátshótunum í garð blaðamanna
Blaða­menn­irnir upp­lifðu orð Páls sem hótun en hann hafði áður ýjað að því að hann vildi nota skot­vopn á blaða­menn. Mynd: Samsett / Heimildin

„Rannsókn máls­ins hefur verið hætt þar sem ekki var tal­inn grund­völlur til að halda henni áfram.“ Þetta kemur fram í bréfum sem skrifuð voru þann 27. des­em­ber síð­ast­lið­inn hjá emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Norð­ur­landi eystra og stíluð ann­ars vegar á Þórð Snæ Júl­í­us­son og hins vegar á Aðal­stein Kjart­ans­son.  

Málið sem lög­reglan vísar til snýst um að Þórður og Aðal­steinn kærðu Pál Stein­gríms­son, skip­stjóra hjá Samherja, fyrir hót­anir í sinn garð eftir að þeir fengu frá honum tölvu­póst þar sem sagði að hann sagð­ist neyð­ast til að „grípa til ann­ara ráða til þess að stoppa ykkur.“ Kærurnar lögðu þeir fram í sept­em­ber 2022.

„Ég taldi umræddan póst fela í sér hótun,“ segir Þórður Facebookfærslu sem birt­ist á fimmtu­dag: „Meðal ann­ars með vísun í að umræddur Páll virð­ist eiga umtals­vert magn af skot­vopnum og hafði birt mynd af slíku vopni á sam­fé­lags­miðlum þar sem hann ýjaði að því að um væri að ræða það vopn sem hann vildi helst nota á blaða­menn. Auk þess hafði Páll oft, með opin­berum yfir­lýs­ingum og ummælum á sam­fé­lags­miðlum, sýnt af sér þannig hegðun að mér þótti eðli­legt að efast stór­lega um dóm­greind hans og jafn­vægi,“ segir hann.

Markmiðið að hafa æruna af blaðamönnum

Þórður og Aðal­steinn eru meðal þeirra fimm blaða­manna sem hafa fengið stöðu sak­born­inga eftir umfjöllun Kjarnans og Stund­ar­innar árið 2021 um hóp fólks sem kall­aði sig „Skæru­liða­deild Samherja“. Umfjöll­unin byggði á gögnum sem sýndu hvernig stjórn­­­end­­­ur, starfs­­­fólk og ráð­gjafar Sam­herja höfðu lagt á ráðin um að ráð­­­ast gegn nafn­­­greindum aðilum, til að mynda blaða­mönnum, til að hafa af þeim æruna. Á þessum tíma var Þórður rit­stjóri Kjarnans en Aðal­steinn blaða­maður Stund­ar­innar. Báðir starfa þeir nú á Heim­ild­inni sem varð til við sam­runa miðl­anna tveggja.

Í umfjöll­un­inni kom fram að einn þeirra sem gegndi lyk­il­hlut­verki í áróð­ur­steymi Samherja var Páll Stein­gríms­son. Hópurinn var í reglu­legum sam­skiptum við æðstu stjórn­endur Samherja um hvernig hann ætti að beita sér. Þessi hegðun átti sér stað allt frá því að Kveikur, Stund­­­in, Wiki­leaks og Al Jazeera birtu umfjall­anir sínar um Sam­herja og atferli fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu í nóv­em­ber 2019 og þangað til að umræddar fréttir og frétta­skýr­ingar voru birtar í Stund­inni og Kjarn­anum.

Aðhafðist ekkert í meira en ár

Rannsókn á lög­mæti lög­reglu­rann­sókn­ar­innar á blaða­mönn­unum vegna umfjöll­unar um „skæru­liða­deild Samherja“ hefur staðið yfir í nær þrjú ár. Þar hafa blaða­menn­irnir haft stöðu sak­born­ings í brátt tvö ár. 

Þórður skrifar í færsl­unni sinni að „máls­gögnin sýna að rann­sókn máls­ins sam­an­stóð af einni 22 mín­útna langri skýrslu­töku yfir Páli sem fór fram í byrjun nóv­em­ber 2022. Svo gerði lög­reglan ekk­ert í rúma 13 mán­uði, eða þar til að ég spurð­ist fyrir um afdrif máls­ins og hún ákvað að fella það niður.“ 

Aðal­steinn gerir nið­ur­fell­ingu lög­regl­unnar á kæru þeirra einnig að umtals­efni í grein sem hann birti á Heim­ild­inni á fimmtu­dag sem ber heitið: „Það sem lög­reglan telur í lagi að segja og hvað ekki“.

Þar segir hann að áður­nefndur Páll sem og Páll Vil­hjálms­son, fram­halds­skóla­kenn­ari og blogg­ari, haldi fram sam­sær­is­kenn­ingum um að hann sé glæpa­maður fremur en blaða­maður, sem „eitri bjór á Akureyri í þeim til­gangi að kom­ast yfir síma“. Páll Vil­hjálms­son hefur end­ur­tekið kallað skæru­liða­málið „byrl­unar- og síma­stulds­málið“ á blogg­inu sínu. 

Aðal­steinn fékk nú fyrir jólin það sem hann kallar „jóla­kveðju“ í tölvu­pósti frá Páli Stein­gríms­syni. Þar var hlekkur á blogg­færslu Páls Vil­hjálms­sonar þar sem því var haldið fram að Aðal­steinn væri van­hæfur til að fjalla um Sam­herj­a­málið í Namibíu af því hann væri til rann­sóknar í öðru máli hér á Íslandi. 

Halda þeir því á lofti að nekt­ar­mynd af inn­an­hús­lög­fræð­ingi Samherja hafi verið að finna á síma Páls skip­stjóra þar sem gögn um „skæru­liða­deild“ Samherja voru geymd og full­yrða þeir því að Aðal­steinn sé til rann­sóknar fyrir staf­rænt kyn­ferð­is­brot gagn­vart henni. 

„Ég veit ekki hvað hefur verið í síma Páls, enda hef ég ekki séð hann eða skoðað“
Aðal­steinn Kjart­ans­son

„Fyrst umrædd kona sé sak­born­ingur í rann­sókn á mútu­greiðslum Samherja til ráða­manna í Namibíu sé ég van­hæfur til að fjalla nokkuð meira um það mál,“ skrifar Aðal­steinn í grein sinni: „Ég veit ekki hvað hefur verið í síma Páls, enda hef ég ekki séð hann eða skoðað, en ég veit að þessi sam­sær­is­kenn­ing er röng. Ekkert slíkt efni fannst við rann­sókn lög­reglu og sam­kvæmt því sem mér var kynnt þegar ég var yfir­heyrður í mál­inu er ég ekki til rann­sóknar fyrir staf­rænt kyn­ferð­is­brot,“ skrifar hann.

Meindýr en ekki blaðamenn

Þórður var gestur í hlað­varps­þætt­inum Synir Egils á Sam­stöð­unni rétt fyrir ára­mótin þar sem hann ræddi kæruna sem þeir Aðal­steinn lögðu fram. 

Þann 4. jan­úar birtit grein eftir Pál Stein­gríms­son á Vísir.is þar sem hann gerir lítið úr þeim skiln­ingi Þórs og Aðal­steins að hann hafi verið að hóta þeim. Páll seg­ist ein­fald­lega hafa vera að tala um „mein­dýr og hæl­bíta en ekki blaða­menn.“ 

Hann hefur hins vegar ýjað að því á sam­fé­lags­miðlum hvaða skot­vopn hann myndi vilja nota á blaða­menn, ásamt því að birta af því mynd. 

Páll heldur því fram í grein sinni að þessi ummæli hans á Facebook um „and­stæð­inga“ Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, hafi ekki verið beint að blaða­mönn­unum heldur vill hann meina að hann sé að ræða við vin sinn, sem er mein­dýra­eyðir, um mein­dýr og hæl­bíta. „Virðist sem þeir kump­ánar hafi séð sjálfa sig í þessu sam­tali, ein­hverra hluta vegna,“ skrifar Páll Stein­gríms­son.

Aðal­steinn fjallar enn­fremur um þetta. „„Við getum verið stolt af því að vinna hjá Máa,“ skrifað vin­kona hans í þessum Facebook-þræði og fékk svarið frá Páli um að engir hæl­bítar fengju að hafa áhrif á það. Hælbítar væru mein­dýr, sem best væri að skjóta. Síðan birti hann mynd af byss­unni sem hann vildi nota. Sam­hengið er auð­vitað öllu fólki nálægt með­al­greind ljóst. Orðin beindust að þeim sem Páll upp­lifir sem and­stæð­inga Samherja,“ skrifar Aðal­steinn í grein­inni.

Fékk aldrei að gefa skýrslu hjá lögreglu

Aðal­steinn og Þórður kærðu Pál Stein­gríms­son upp­haf­lega til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en þegar þeir köll­uðu eftir upp­lýs­ingum um hvar málið stæði var þeim til­kynnt að rann­sóknin hefði verið send til lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra. Í grein Aðal­steins segir að í svari lög­regl­unnar við fyr­ir­spurn sem Þórður lagði fram skömmu fyrir jól um hvar málið standi kemur fram að rann­sókn­inni hafi verið hætt þar sem ekki var tal­inn grund­völlur til að halda henni áfram. 

Aðal­steinn seg­ist sjálfur aldrei hafa fengið tæki­færi til að gefa lög­reglu­skýrslu „eða benda á sam­hengi hót­un­ar­innar, né að koma öðru á fram­færi en þessu skjá­skoti af Facebook. Það eina sem hefur gerst síðan ég kvitt­aði undir eitt­hvað eyðu­blað á lög­reglu­stöð­inni við Hverf­is­götu þann 5. sept­em­ber árið 2022 er að málið var sent norður án þess að ég fengi að vita það og þar fram­kvæmdi lög­reglan rann­sókn sem stóð yfir í innan við hálf­tíma,“ skrifar hann. 

„Það er það eina sem okkur hefur verið gefið að sök að gera, að það er að hafa tekið við gögnum og skrifað frétt um það“
Þórður Snær Júl­í­us­son

Þórður segir í færslu sinni að hann hafi óskað eftir rök­stuðn­ingi hvers vegna málið verði ekki tekið til frek­ari rann­sókna og eftir aðgangi að öllum máls­gögnum. „Í rök­stuðn­ingnum segir að til þess að eitt­hvað telj­ist hótun í skiln­ingi hegn­ing­ar­laga verði að vera sett fram hótun um að fremja refsverðan verknað af til­teknum gróf­leika. Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra telur það orða­lag sem Páll not­aði ekki fela í sér hótun um refsi­verðan verknað,“ skrifar Þórður í færsl­unni sinni.

Í við­tal­inu á Sam­stöð­unni fjall­aði Þórður einnig um hvernig ýmsir fjöl­miðlar gefa skoð­unum Páls Stein­gríms­sonar og Páls Vil­hjálms­sonar byr undir báða vængi: „Það sem er alvar­leg­ast er það sem við erum að upp­lifa í gegnum lög­reglu­rann­sókn sem við erum undir og hvernig er verið að fjalla um hana og hvernig ýmsir meg­in­straums miðlar taka þátt í umfjöll­un­inni um hana vegna þess að þar er und­ir­liggj­andi að verið er að sækja að blaða­mönnum ein­vörð­ungu fyrir að skrifa fréttir. Það er það eina sem okkur hefur verið gefið að sök að gera, að það er að hafa tekið við gögnum og skrifað frétt um það.“

Fyr­ir­vari: Blaða­menn­irnir sem fjallað er um, þeir Þórður Snær Júl­í­us­son og Aðal­steinn Kjart­ans­son, eru starfs­menn Heim­ild­ar­innar.

Kjósa
37
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingunn Björnsdóttir skrifaði
    Ríkissaksóknari er víst lögreglunni sammála um að þarna hafi hreint ekki verið um líflátshótun að ræða. Sannast sagna furðulegt hvernig mönnunum gat dottið slíkt í hug: Eitthvað gengur þeim kumpánunum nú illa að sannfæra lögreglu- og dómskerfi um að þeir hafi orðið fyrir hótunum: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/04/08/kaerur_thordar_snaes_og_adalsteins_endanlega_fellda/
    0
  • BK
    Breki Karlsson skrifaði
    Alltaf er maður minntur á það reglulega að örfáir einstaklingar stjórna eiginlega öllu kerfinu. Af hverju teljum við að kosningaréttur sé einhvers virði?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár