Sjálfstæðisflokkurinn hefur selt byggingarrétt fyrir 564 milljónir á tveimur árum

Fyr­ir­tæki og félög hafa ekki gefið Sjálf­stæð­is­flokknum jafn­mikið fé og þau gerðu í fyrra síðan fyrir banka­hrun. Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki voru fyr­ir­ferð­ar­mikil á meðal þeirra sem gáfu. Flokk­ur­inn er sá sem fær hæstu fram­lögin úr opin­berum sjóðum.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur selt byggingarrétt fyrir 564 milljónir á tveimur árum
Formaður Bjarni Bene­dikts­son hefur verið for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá árinu 2009. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Á árunum 2021 og 2022 var kosið tví­vegis, fyrst til þings og svo til sveit­ar­stjórna. Nær allir flokkar skila tapi við slíkar aðstæður, enda kostn­að­ar­samt að taka þátt í kosn­ingum. Einn sker sig úr, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn. Hann er sá flokkur sem fær hæstu fjár­hæð­irnar úr opin­berum sjóðum og sá flokkur sem fær mest fé frá atvinnu­líf­inu, sem gaf honum meira fé á árinu 2022 en það hefur gert síðan á árinu 2007. Þetta eru þó ekki meg­in­á­stæður þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stendur betur en nokk­urt annað stjórn­mála­afl í land­inu. Þær liggja í fast­eigna­þróun. 

Á árinu 2020 var sam­þykkt nýtt deiliskipu­lag Háa­leit­is­brautar 1, lóð­inni sem Valhöll, höf­uð­stöðvar flokks­ins, standa á. Samkvæmt því var heim­ilt að bæta tveimur nýjum bygg­ing­ar­reitum við lóð­ina. Á þeim er meðal ann­ars gert ráð fyrir að byggja 47 íbúða fjöl­býl­is­hús, skrif­stofu­hús­næði og bíla­kjall­ara. Hluti bygg­ing­ar­réttar Val­hall­ar­reits­ins, sem snýr að horni Skip­holts og Bolholts, var seldur á árinu 2021. Ári …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár