Kostnaður ríkisins við sjálfviljuga heimför þrefaldaðist á einu ári

Kostn­aður íslenska rík­is­ins við sjálf­vilj­uga heim­för hæl­is­leit­enda frá land­inu fór úr um 60 millj­ónum í fyrra í tæpar 190 millj­ónir í ár. Um 500 hæl­is­leit­endur eru á bak við tölur þessa árs, og kost­aði sjálf­viljug heim­för því um 370 þús­und krónur á ein­stak­ling.

Kostnaður ríkisins við sjálfviljuga heimför þrefaldaðist á einu ári
Mótmæli Langstærstur ferða- og end­urað­lög­un­ar­styrkja þessa árs fóru til venes­ú­el­skra hæl­is­leit­anda sem fóru úr landi með flugi íslenskra stjórn­valda og Frontex í nóv­em­ber. Myndin er frá mót­mælum hæl­is­leit­end­anna og stuðn­ings­fólks þeirra í októ­ber. Mynd: Heiða Helgadóttir

Um 600 hæl­is­leit­endur höfðu farið úr landi það sem af var ári þann 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn, að því er fram kemur í svari Útlend­inga­stofn­unar við skrif­legri fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. 500 hæl­is­leit­end­anna fóru sjálf­vilj­ugir, þ.e. sam­þykktu að fara eftir að hafa fengið neitun um alþjóð­lega vernd eða drógu umsóknir sínar til baka, en 100 var brott­vísað í fylgd lög­reglu­manna.  

Kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna slíkra brott­vís­ana var í ár að með­al­tali um sex sinnum meiri á hvern hæl­is­leit­anda en hvern þann sem fór sjálf­vilj­ugur úr landi. 

Kostn­aður við fylgdir úr landi á vegum stoð­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra var um 234 millj­ónir frá 1. jan­úar og til 1. des­em­ber þessa árs, sem er aðeins lægri kostn­aður en fyrir allt árið í fyrra, fyrir um 100 manns. Það kost­aði því ríkið um 2,3 millj­ónir að með­al­tali í ár að fylgja hverjum hæl­is­leit­anda sem vildi ekki fara sjálf­vilj­ugur úr …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár