Vilja auka tekjur ríkisins með skattlagningu upp á 24 milljarða

Sam­fylk­ingin leggur fram sinn eigin „kjara­pakka“ sem er ætlað að stemma stigu við verð­bólg­unni og létta undir með heim­il­unum. Hluti af því er að hækka fjár­magnstekju­skatt úr 22% í 25%.

Vilja auka tekjur ríkisins með skattlagningu upp á 24 milljarða
Fjárlög Sam­fylk­ingin boðar að létt verði undir með heim­il­unum og fjár­veit­ingar auknar vegna ástands­ins í Grinda­vík. Mynd: Baldur Kristjánsson

Í þeim breyt­ing­ar­til­lögum sem Sam­fylk­ingin hefur lagt fram á fjár­lögum rík­is­stjórn­ar­innar kemur meðal ann­ars fram að flokk­ur­inn vilji auka skatt­lagn­ingu upp að því sem nemur 24 millj­örðum króna. Til­lög­unum er ætlað að stemma stigu við verð­bólg­unni og létta undir með heim­il­unum í rík­ari mæli.

Sam­fylk­ingin vill að 6 millj­arðar fari í vaxta- og hús­næð­is­bætur og 6 millj­arðar í að fjár­magna aðgerðir vegna ástands­ins í Grinda­vík, svo sem afkomu­trygg­ingu og leigu­st­uðn­ing.

Lokun „ehf-gatsins,“ hækkun fjármagnstekjuskatts og álag á veiðigjöld stórútgerða

Flokk­ur­inn leggur til fjöl­þættar leiðir til að skila þessum auknu tekjum í rík­is­sjóð. Jafn­að­ar­menn vilja meðal ann­ars gera það með því að loka svoköll­uðu „ehf-gati.“

Eins og mál standa geta þeir sem eiga eign­ar­halds­fé­lög reiknað sér afar lág laun fyrir þá vinnu sem felst í rekstr­inum. Í stað þess að telja tekjur sínar fram sem laun eru þær að miklu leyti taldar fram sem fjár­magnstekjur, til dæmis í gegnum arð­greiðslur. 

Þetta felur í sér umtals­verðan sparnað á skatti. Hæsta skatt­þrepið á hagnað fyr­ir­tækja og arð­greiðslur ofan á hann er sam­tals og upp­safnað 37,6%, en 46,25% á almennan tekju­skatt. Enn fremur er ekk­ert útsvar greitt til sveit­ar­fé­laga vegna fjár­magnstekna, ólíkt almennum tekju­skatti. 

Rík­is­stjórnin hafði til­kynnt að frum­varp þess efnis að loka „ehf-gat­inu“ myndi liggja fyrir á haust­þingi. Enn bólar ekki á því. Auk þess hefur ekk­ert heyrst af vinnu starfs­hóps sem átti að skila til­lögum til gerðar slíks frum­varps í júní.

Sam­fylk­ingin vill hækka fjár­magnstekju­skatt úr 22% í 25%. Auk þess vill hún leggja álag á veiði­gjald stór­út­gerða og aft­ur­kalla banka­skatts­lækkun. 

Þessari banka­skatts­lækkun var komið á í mót­væg­is­að­gerðum stjórn­valda vegna heims­far­ald­urs kór­óna­veirunnar. Banka­skattur var þá lækk­aður úr 0,376% af heild­ar­skuldum banka umfram 50 millj­arða niður í 0,145%. 

Átti þetta að auð­velda bönkum að lækka vexti á útlánum sam­hliða vaxta­lækk­unum Seðla­bank­ans og auka þannig útlán. Bank­arnir sögðu að með breyt­ing­unni myndi vaxta­munur drag­ast saman og lán til heim­ila og fyr­ir­tækja verða ódýr­ari.

Lækkunin á banka­skatti minnk­aði skatt­greiðslur bank­anna þriggja um 12 millj­arða króna. 

Hærri vaxtabætur vegna hærri vaxta

Til þess að milda höggið fyrir heim­ilin vill Sam­fylk­ingin að vaxta­bætur verði hækk­aðar sam­hliða vaxta­stigi. Með því er sagt að hægt verði að styðja við 10.000 fleiri skuld­sett heim­ili en áður. Eins og fjár­lögin liggja fyrir núna myndu 5.000 heim­ili detta út úr vaxta­bóta­kerf­inu.

Sam­fylk­ingin vill hús­næð­is­bætur til leigj­enda verði hækk­aðar og vaxta­bætur til bænda auknar. Það síð­ar­nefnda er tíma­bund­inn stuðn­ingur sem ætl­aður er bændum sem hafa þunga vaxta­byrði.

Auk ann­arra aðgerða eru tíma­bundin leigu­bremsa að danskri fyr­ir­mynd, ívilnun til upp­bygg­ingar á almennum íbúðum og auknar hömlur á útleigu í gegnum Airbnb og skamm­tíma­leigu íbúða.

Haft er eftir Kristrúnu Frosta­dóttur að ótrú­legt sé að rík­is­stjórnin ætli að minnka stuðn­ing við skuld­sett heim­ili og leigj­endur í ljósi hárra vaxta og verð­bólgu. Sam­fylk­ingin vilji fara aðra leið, að boða aðhald þar sem „þenslan er í raun og veru“.

Spurður nánar út í hvað frek­ari stjórn á íbúðum í skamm­tíma­leigu gæti falið í sér segir Ólafur Kjaran Árnason, aðstoð­ar­maður Kristrúnar Frosta­dóttur, að hug­myndin sé að auka fram­boð hús­næðis fyrir fólk að búa í.

Hann segir að helst þurfi að taka á skamm­tíma­leigu í atvinnu­skyni en vitað er um heilu blokk­irnar sem eru leigðar út í skamm­tíma­leigu í atvinnu­skyni og nýt­ist því ekki sem hús­næði fyrir íbúa. Hægt sé að breyta reglu­gerðum í kringum slíkan rekstur. Til dæmis að gera kröfu um að allt slíkt hús­næði verði skráð sem atvinnu­hús­næði og lúti skipu­lags­reglum sam­kvæmt því auk þess sem fast­eigna­gjöld eru hærri af atvinnu­hús­næði en íbúð­ar­hús­næði.

„Sveit­ar­fé­lög þurfa að fá auknar heim­ildir til að ákveða sjálf stað­setn­ingu og fjölda íbúða sem not­aðar í skamm­tíma­leigu í atvinnu­skyni. Svo þarf að auka eft­ir­lit með bæði þessu og heimagist­ing­unni til að reglum sé fylgt,“ segir Ólafur. Hann segir Sam­fylk­ing­una einnig telja eðli­legt að jafn­ræðis sé gætt og að gistin­átta­skattur verði greiddur af heimagist­ingu eins og allri annarri gist­ingu.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár