Reikningar frá Klíníkinni í skoðun hjá Sjúkratryggingum

Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafa opnað mál gegn einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni vegna meintra of hárra reikn­inga til rík­is­ins fyrir þjón­ustu við við­skipta­vini. Eitt málið snýst um tugi millj­óna króna. Sjúkra­trygg­ingar Íslands svör­uðu ekki spurn­ingum þrátt fyrir tæp­lega tveggja vikna frest.

Reikningar frá Klíníkinni í skoðun hjá Sjúkratryggingum
Heil­brigð­is­kerfið á tíma­mótun Íslenska heil­brigð­is­kerfið stendur á ákveðnum tíma­mótum hvað varðar einka­væð­ingu heil­brigð­is­þjón­ustu. Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur tekið skref í þessa átt sem eng­inn annar hefur tekið og telja sumir læknar á sjúkra­húsum að yfir­völd heil­brigð­is­mála hylli Klíník­inni í Ármúla og reyni að stýra verk­efnum þangað. Mynd: Heiða Helgadóttir

Síð­ast­liðið vor, eftir að Sigurður Helgi Helgason hafði tekið við for­stjóra­starf­inu hjá Sjúkra­trygg­ingum Íslands (SÍ), var útistand­andi mál þar gegn lækni hjá einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni. Lækn­ir­inn var tal­inn hafa ofrukkað stofn­un­ina, og þar með íslenska ríkið, um tugi millj­óna króna og látið ófag­lærða starfs­menn vinna verk sem lækn­ir­inn átti að sjá um. Þetta herma upp­lýs­ingar Heim­ild­ar­innar.

„Það er fyllsta ástæða til að hafa meira eft­ir­lit með þeirri þjón­ustu sem greitt er fyrir úr opin­berum sjóðum á Íslandi.“
Runólfur Pálsson,
for­stjóri Land­spít­al­ans

Eitt af því sem slík mál geta leitt til er að Sjúkra­trygg­ingar Íslands krefj­ist end­ur­greiðslu frá við­kom­andi ein­stak­lingi eða fyr­ir­tæki og slíti jafn­vel samn­ingum við þessa aðila þannig að þeir geti ekki sinnt heil­brigð­is­þjón­ustu með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. Umrætt mál er ekki það fyrsta sem komið hefur upp innan Sjúkra­trygg­inga Íslands sem varðar gjald­töku Klíník­ur­innar, sam­kvæmt heim­ildum. Ekkert hefur komið fram opin­ber­lega um þessi mál tengd Klíník­inni innan Sjúkra­trygg­inga. 

Svöruðu …

Kjósa
74
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Mammon sér um sína, Willum Þó er ekki mikið í sviðsljósinu þessa dagana, sennilega vegna þess að hann er svo mikið að vinna á bak við tjöldin. Pínu snákslegt þó hann hafi enga líkingu við snák Hermesar.
    0
  • Kári Jónsson skrifaði
    Svokölluð einkarekin heilbrigðisþjónusta er EKKI einkarekin í raun því hver einasta króna er greidd úr sameiginlegum ríkissjóð, þinglýstir eigendur t.d. Klíníkunar leggja EKKI 1-krónu fram af eiginfé fyrirtækisins í þessar aðgerðir, í raun er Klíníkin 100% óþarfur milliliður, nær væri að Willum Þór tryggði læknum Klíníkunnar góð laun og tryggði fulla fjármögnun á opinberri heilbrigðisþjónustu, sem gæti svo ráðið þessa ágætu lækna til starfa, sama ætti að gilda að sjálfsögðu um svokallaðar einkareknar heilsugæslustöðvar = Góð laun fyrir góða lækna sem starfa hjá ríkisreknum heilsugæslum. Það er þjóðarviljinn óumdeilt. Ps. Það er mjög mikilvægt að fjölmiðlafólk átti sig á að það er ENGINN einkarekstur sem er greiddur 100% af almenningi í landinu.
    9
    • SÍF
      Sveinn í Felli skrifaði
      Ekki frekar en nám í einkaskólum sem sé 100% fjármagnað af ríkissjóði.
      5
    • Jón Ragnarsson skrifaði
      Það er bara ,,einkavinarekstur" í boði Willum.
      5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkratryggingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eftirlitsmál gegn Klíníkinni
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands svara ekki hvort opnuð hafi verið eft­ir­lits­mál gegn Klíník­inni

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands hefur ekki svarað spurn­ingum sem Heim­ildin sendi henni fyrir tveimur mán­uðum síðan. Engin svör hafa borist um af hverju spurn­ing­unum hefur ekki verið svarað. Meðal spurn­inga er hvort Sjúkra­trygg­ingar Íslands hafi opnað eft­ir­lits­mál gegn einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tæk­inu Klíník­inni líkt og Heim­ildir herma.
Willum opnar á meiri einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu: „Þannig aukum við skilvirkni“
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Willum opnar á meiri einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu: „Þannig aukum við skil­virkni“

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra svarar spurn­ingum um einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu með kostn­að­ar­þátt­töku rík­is­ins. Einka­rekna heil­brigð­is­fyr­ir­tækið Klíníkin hefur í auknum mæli fengið til sín aðgerðir sem áður voru bara fram­kvæmdar á rík­is­reknum sjúkra­húsum. Skriður hefur kom­ist á þessa einka­rekstr­ar­væð­ingu eftir að Willum Þór tók við emb­ætti heil­brigð­is­ráð­herra.
Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Framlengja umdeildan samning við Klíníkina á grundvelli aðgerðareynslu
FréttirKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­væð­ing í heil­brigð­is­kerf­inu: Fram­lengja umdeildan samn­ing við Klíník­ina á grund­velli aðgerð­a­r­eynslu

Sjúkra­trygg­ingar Íslands ætla að fram­lengja samn­ing um lið­skipta­að­gerðir sem gerður var í mars við Klíník­ina og Cosan. Samn­ing­ur­inn mun byggja á því hversu margar aðgerðir þessi fyr­ir­tæki náðu að gera á þessu ári. Klíníkin gerði langstærstan hluta þeirra 700 aðgerða sem gerðar voru með kostn­að­ar­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands og munu því fá stærstan hluta af þessum aðgerðum.
Nýsköpun í heilbrigðiskerfinu og tengsl rikisstjórnarinnar og Klíníkurinnar
SkýringKlíníkin og einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Nýsköpun í heil­brigð­is­kerf­inu og tengsl rikis­stjórn­ar­innar og Klíník­ur­innar

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir nýsköp­un­ar­ráð­herra tala með sam­bæri­legum hætti um mik­il­vægi nýsköp­unar fyrir heil­brigð­is­kerfið. Á sama tíma liggur fyrir að fram­kvæmda­stjóri Klíník­ur­innar, Sigurður Ingi­bergur Björns­son, er að taka við rekstri dótt­ur­fé­lags hjá Klíník­inni sem mun sér­hæfa sig í nýsköpun í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár