Þrír af hverjum fjórum vantreysta Bjarna sem utanríkisráðherra

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins nýtur mun minna trausts til ráð­herra­starfa en vara­for­maður hans. Þegar þau skiptu á ráð­herra­stólum í síð­asta mán­uði tók hann óvin­sældir sínar með sér.

Þrír af hverjum fjórum vantreysta Bjarna sem utanríkisráðherra
Lykla­skipti Bjarni Bene­dikts­son og Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir skipt­ust á lyklum og ráðu­neytum um miðjan síð­asta mánuð. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Bjarni Bene­dikts­son sagði af sér emb­ætti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í byrjun októ­ber. Ástæðan var nið­ur­staða umboðs­manns Alþingis um að Bjarni hefði verið van­hæfur til að taka ákvörðun um sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka til félags í eigu föður hans í mars 2022. 

Bjarni hafði þá setið sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra meira og minna í ára­tug, með stuttu stoppi í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu árið 2017. 

Þegar tölur Maskínu um traust á þeim ein­stak­lingi sem gegnir því emb­ætti eru skoð­aðar vekur athygli að Bjarni hefur aldrei verið í þeirri stöðu að fleiri treystu honum vel til verka en van­treystu honum. Líkt og Katrínu tókst Bjarna þó um tíma að vinna veru­lega á hjá þjóð­inni. Í des­em­ber 2021, skömmu eftir síð­ustu kosn­ingar, voru 38 pró­sent aðspurðra farnir að treysta honum vel á meðan að 44 pró­sent sögð­ust bera lítið traust til hans. Sá árangur ent­ist þó ekki lengi. Mest mæld­ist van­traustið 71 pró­sent í apríl í fyrra, skömmu eftir að áður­nefnd sala á hlut rík­is­ins í Íslands­banka, sem hefur hlotið marg­háttað áfelli eft­ir­lits­stofn­ana, fór fram. Þá sögð­ust ein­ungis 18 pró­sent aðspurðra treysta Bjarna vel. Á fimm mán­uðum gjör­breytt­ist staðan. 

Bjarni á þó aðeins í land með að ná því van­trausti sem Árni M. Mathiesen, fjár­mála­ráð­herra í hrun­stjórn­inni, mæld­ist með í byrjun des­em­ber 2008. Þá sögð­ust ein­ungis 5,5 pró­sent aðspurðra treysta honum vel en 79 pró­sent báru lítið traust til hans. 

Í nóv­em­ber í fyrra hafði staða Bjarna lag­ast lít­il­lega og van­traustið var komið niður í 62 pró­sent. Það þýddi samt sem áður að næstum tveir af hverjum þremur báru lítið traust til hans.

Skiptust á stólum en vantraustið elti 

Eftir afsögn Bjarna var ákveðið að hann, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, myndi hafa sæta­skipti við vara­for­mann sinn, Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur, sem gegnt hafði emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra. Þórdís Kolbrún byrjar setu sína í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu í traust­brekku. Alls segj­ast 31 pró­sent treysta henni mikið en 41 pró­sent að þeir beri lítið traust til hennar. Staðan er þó mun skap­legri en í síð­ustu mæl­ingu á trausti til Bjarna til að gegna sama emb­ætti. 

Þórdís Kolbrún sigldi líka nokkuð lygnan sjó í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og fékk sína bestu traust­mæl­ingu þar í fyrra þegar 35 pró­sent sögð­ust treysta henni vel á meðan að 34 pró­sent sögð­ust bera lítið traust til hennar. Það var mesta traust sem mælst hefur til sitj­andi utan­rík­is­ráð­herra síðan fyrir árið 2008.

Bjarni tók óvin­sældir sínar með sér úr fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og yfir í utan­rík­is­ráðu­neytið, þar sem gustað hefur um hann vegna ummæla um stríðið milli Ísraesl og Hamas á Gaza. Í nýj­ustu könnun Maskínu sögð­ust þrír af hverjum fjórum aðspurðum, 75 pró­sent, að þeir van­treystu Bjarna sem utan­rík­is­ráð­herra. Einungis 17 pró­sent sögð­ust bera mikið traust til hans. 

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Eiríkur Jónsson skrifaði
    Trausti rúin talsvert lúin
    titra fúin sprekin smá
    þjóðin snúin þögnin búin
    þrotin trúin formenn á.
    1
  • Gulli Hermannsson skrifaði
    Þórdís Kolbrún aðstoðamaður Bjarna Benediktssonar fjármála- og utanríkisráðherra?
    1
  • Axel Axelsson skrifaði
    best að bjarni barnamorðingavinur segi af sér og skammist sín það sem eftir er . . .
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár